Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Síða 40
SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2018
„Ég þurfti að gera við rafstreng sem liggur milli lands og
Vestmannaeyja þegar myndin var frumsýnd á Skjald-
borgarhátíðinni í fyrra, þannig að ég hef ekki séð hana
ennþá. Gat ómögulega sagt fólki að ég gæti ekki lagað
strenginn vegna þess að ég væri að fara í bíó,“ segir
Kjartan Jakob Hauksson, ein af söguhetjunum í heimild-
armyndinni Í kjölfar feðranna, sem sýnd verður í tvennu
lagi á RÚV, í kvöld og á sunnudaginn kemur.
Kjartan var forsprakki hópsins sem réri yfir Norður-
Atlantshafið á opnum árabát og freistaði þess að verða
fyrstur til að sigla þessa leið án véla eða segla. „Slæmt
veður og breytingar í áhöfn gera þessa ferð að hinni
mestu eldraun,“ segir í kynningu á myndinni.
Kjartan hlakkar til að sjá myndina í sjónvarpinu en
framleiðandi er Sagafilm. „Þau eltu okkur út um allan
heim og lögðu gríðarlega mikið í gerð myndarinnar.
Myndatökumaður kom annað slagið um borð hjá okkur
en við tókum líka mikið upp sjálfir, þegar aðstæður
leyfðu. Þegar veðrið var sem verst vorum við eðli máls-
ins samkvæmt með hugann við annað.“
Hann segir þá félaga hafa haft áhyggjur af því að
mynd af þessu tagi gæti ekki orðið skemmtileg; fjórir
karlar að róa. „En mér skilst samt að hún sé nú bara
ágætlega skemmtileg – alla vega á köflum.“
Ræðararnir
fjórir fræknu.
Ljósmynd/Ingrid Kuhlmann
Var að gera við rafstreng og
missti af frumsýningunni
RÚV sýnir í kvöld, sunnudagskvöld, fyrri hluta heimildarmyndarinnar Í kjölfar feðranna.
Hún fjallar um fjórmenninga sem lögðu upp í svaðilför og réru yfir Norður-Atlantshafið.
Sitthvað var í fréttum þennan
dag fyrir réttum eitt hundrað
árum, mánudaginn 9. septem-
ber 1918. Í símskeyti frá Vínar-
borg, sem Morgunblaðinu barst,
sagði eftirfarandi um stöðuna á
ítölsku vígstöðvunum: „Á há-
sléttunni hjá Asiago gerðu
Frakkar og Ítalir áhlaup eftir
ákafa stórskotahríð, en því
áhlaupi hrundu hersveitir vorar
og biðu óvinirnir mikið mann-
tjón. Óvinir þeir, sem komist
höfðu í fremstu skotgrafir vorar
hjá Sisemont-fjallinu, voru
hraktir þaðan með gagn-
áhlaupi.“
Hér heima lauk úrslitaknatt-
spyrnukappleiknum deginum
áður og KR „bar sigur af hólmi –
tvo vinninga móti einum. Hlaut
það félag því verðlaunagripinn –
hið fagra Knattspyrnuhorn Ís-
lands.“
Einhver var svo seinheppinn
að tapa grárri hryssu úr haga-
göngu í Skildinganesi. Finnandi
var beðinn að gera aðvart á
skrifstofu Morgunblaðsins.
Loks mátti lesa þessa „frétt“:
„Bifreið fer til Eyrarbakka mið-
vikudaginn 11. þ. m. kl. 11 f. h.
Nokkrir menn geta fengið far.
Uppl. í síma 127.“
GAMLA FRÉTTIN
KR vann
hornið
Gunnar Schram og félagar í KR unnu hið fagra Knattspyrnuhorn Íslands
haustið 1918. Um þær mundir var líka hægt að fá far með bíl til Eyrarbakka.
Úr bókinni 100 ára saga Íslandsmótsins í knattspyrnu
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Woody Allen
leikari og leikstjóri
Roni Horn
myndlistarmaður
Orri Matthías Haraldsson
háskólanemiSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ljós og lampar
Flos 2097
Gino Sarfatti, 1958
Verð frá 199.000,-
Spunlight T2
Sebastian Wrong, 2003
Verð frá 139.000,-
Ray F2
Rodolfo Dordoni,
2006
Verð 199.000,-
ARCO Led
Achille & Pier Giacomo Castiglioni
1962
Verð 299.000,-
Taccia small
Achille & Pier Giacomo
Castiglioni 1962
Verð 129.000,-
Smithfield S
Jasper Morrison, 2009
Verð frá 119.000,-
FLOS 265
Paolo Rizzatto 1973
Verð 110.000,-
Flos Frisbi
Achille Castiglioni 1978
Verð 52.000
Rosy angelis,
Philippe Starck 1994
Verð 69.900,-
Bonjour
Philippe Starck
Verð frá 44.800,-
MISS K.
Philippe Starck 2003
Verð 38.900,-