Morgunblaðið - 10.09.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r
595 1000
nf
rir
va
ra
. AÞENA
ré
ttt
ill
eið
ré
tti
.
v
4 NÆTUR
Frá kr.
89.995
21. SEPTEMBER
4 NÆTUR
STÖKKTU TIL AÞENU 21. SEPTEMBER
aaaa
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Boð RÚV til sjálfstæðra framleið-
enda og annarra fjölmiðla um að nýta
aðstöðu RÚV og tæki er gert í þeim
tilgangi að auka enn samstarf milli
þessara aðila og bæta nýtingu á góð-
um búnaði. RÚV lítur svo á að það
falli vel að almannaþjónustuhlutverki
RÚV sem lýst er í lögum um Ríkis-
útvarpið. Þetta segir Magnús Geir
Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið greindi frá því í
fyrradag að GN Studios ehf. hefðu
sent Samkeppniseftirlitinu kvörtun
vegna gruns um ólögmætar aðgerðir
RÚV á samkeppnismarkaði.
„Við teljum það vera part af okkar
hlutverki sem almannaþjónustumiðill
að reyna að skapa aðstæður sem
styðja við aðrar menningar- og
menntastofnanir, sjálfstæða fram-
leiðendur og fjölmiðla,“ segir Magnús
að auki. Hann bendir á að samstarfs-
verkefnum hafi fjölgað mjög undan-
farið, RÚV kaupi meira en áður af
sjálfstæðum framleiðendum og
margir aðilar hafi þegið að nýta sér
stuðning RÚV við sölu efnis á er-
lendri grundu.
Afmarkað svið í skipulagi RÚV
Aðspurður segir Magnús að RÚV-
stúdíó sé afmarkað svið í skipulagi
RÚV og hafi fyrst og fremst þann til-
gang að framleiða efni fyrir RÚV en
það sjái einnig um
að þjónusta sam-
starfsaðila sem
kjósa að nýta sér
aðstöðuna. RÚV-
stúdíó er ekki
dótturfélag RÚV
en er aðskilið í
bókum félagsins á
sama hátt og aug-
lýsingasala fé-
lagsins. Þá segir
Magnús að undirbúningur RÚV-
stúdíós hafi staðið yfir lengi og það
hafi verið kynnt vel í nýrri stefnu
RÚV sem opinberuð var í maí 2017 og
svo nánar á vef félagsins í vor.
„Stefnan var unnin í samráði við
fjölda hagaðila og þetta var ein af
þeim fjölmörgu ábendingum sem
bárust í stefnumótunarvinnunni. Þar
var bent á að það gæti bætt hag sjálf-
stæðra framleiðenda að koma þessu í
fastara form og eftir því hefur verið
unnið,“ segir Magnús og heldur
áfram: „RÚV er í almannaþágu, í eigu
þjóðarinnar, og því teljum við það
skyldu okkar að nýta aðstöðu okkar
með hag heildarinnar í huga. Við vilj-
um jú að hér á landi þrífist fjölbreytt
flóra fjölmiðla og sjálfstæðra fram-
leiðenda.“
Magnús segir að markmið RÚV sé
að bjóða upp á aðstöðu og tækjabún-
að á „gagnsæju verði sem er í takt við
það sem gerist og gengur. Verðið er
birt í verðskrá á vefnum“.
Ein af kvörtunum GN Studios er
að RÚV virðist bjóða upp á þjón-
ustuna á verði „sem erfitt eða ómögu-
legt er fyrir einkaaðila að keppa við“.
Magnús segir að reynt hafi verið að
verðleggja þjónustuna með sann-
gjörnum hætti en það hafi stundum
torveldað vinnuna að ekkert sam-
bærilegt myndver sé á landinu og
þegar kemur að tilteknum tækjabún-
aði hafi verið erfitt að gera saman-
burð við aðra aðila þar sem verðskrár
hafi ekki allar verið aðgengilegar.
„Við höfum hins vegar ekki nokk-
urn áhuga á að bjóða verð sem er
undir því sem gerist og gengur. Ef
einhver telur að eitthvað megi betur
fara í þeim efnum þiggjum við ein-
faldlega ábendingar um það með
þökkum,“ segir Magnús að lokum.
Innan hlutverka og skyldna RÚV
Útvarpsstjóri lítur svo á að einingin RÚV-stúdíó falli undir hlutverk og skyldur RÚV sem fjölmiðla-
þjónusta í almannaþágu Einingin var ekki stofnuð sem dótturfélag Unnið í samráði við hagaðila
Magnús Geir
Þórðarson
„Þetta er flottasta listaverk sem ég
hef séð. Þótt ég eigi fleiri málverk
og svona þá er þetta það flottasta,“
segir Þórarinn „Póri“ Jónasson og
hlær þegar blaðamaður spyr um
forsögu hests sem hefur verið kom-
ið fyrir á hlaði Laxness.
„Ég sá svipaðan hest sem þeir
bjuggu til og mér fannst hönnunin
og allt saman hið mesta listaverk,“
segir hann. „Á 50 ára afmæli Lax-
ness ákváðum við hjónin að kaupa
svona hest og gefa okkur og á sama
tíma styrkja Ásgarð,“ útskýrir Þór-
arinn sem rekur Laxnes hestaleigu
ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði
Gíslason.
„Mér finnst voða gaman að
styrkja þetta verkefni hjá strákun-
um en svo er hann líka stórglæsi-
legur. Það komu hvorki meira né
minna en fimm bílar fyrir hádegi
bara til þess að taka myndir af hon-
um. Allt útlendingar,“ segir Þór-
arinn og skellir upp úr. Aðspurður
segist hann ekki hafa velt því fyrir
sér hvort hann ætti að rukka inn á
hlaðið.
Listamennirnir sem gerðu hest-
inn starfa á handverkstæðinu Ás-
garði sem er vinnustaður fyrir fólk
með þroskahömlun og voru þeir um
tvo mánuði að gera hestinn. Morgunblaðið/RAX
Einstakur
hestur á
Laxnesi
Einn af viðburðum Jazzhátíðar Reykjavíkur sem lauk
gær var að Guðmundur Steingrímsson, gjarnan nefnd-
ur Papa Jazz, var hylltur með þakkargjörð í kirkju
Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Þar lék sveit skipuð
landsliði djassara og auðvitað greip Guðmundur rétt
sem snöggvast í trommurnar enda vanur maður. Tón-
leikar þessir voru lokaviðburður djasshátíðarinnar en
hún hefur staðið frá því fyrir helgi.
Þakkargjörð til Papa Jazz
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon