Morgunblaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 32
Fyrsta Ljóðakaffi Borgarbókasafns-
ins fer fram á miðvikudag kl. 20.
Sex ung og upprennandi skáld, svo-
kölluð Svikaskáld, koma í heimsókn
í safnið í Gerðubergi og lesa upp úr
verkum sínum og fjalla um skrif sín.
Svikaskáldin eru Fríða Ísberg, Mel-
korka Ólafsdóttir, Ragnheiður
Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Más-
dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þór-
dís Helgadóttir.
Svikaskáld í Ljóðakaffi
MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 253. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad-áskrift 6.173 kr.
Óvænt úrslit urðu í 1. umferð Olís-
deildar karla í handknattleik sem
hófst í gær. Gróttumenn gerðu jafn-
tefli gegn Íslands- og bikarmeist-
urum ÍBV í Vestmannaeyjum og
Framarar náðu stigi gegn Vals-
mönnum í Safamýri. Í Garðabænum
var hins vegar ójafn leikur en Aftur-
elding vann þægilegan sigur á
Stjörnumönnum. »2
Óvænt úrslit í
fyrstu umferðinni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Þetta var ólíkt því sem við höfum
séð í flestum undanförnum leikjum.
Leikmenn voru andlausir og ólíkir
sér,“ sagði Ólafur Kristjánsson,
þjálfari FH-inga, í samtali við Morg-
unblaðið þegar leitað var eftir við-
brögðum hans eftir 6:0-tap ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu
gegn Svisslendingum í
Þjóðadeild UEFA í
St. Gallen á
laugardaginn.
Íslendingar
mæta Belgum í
sömu keppni
á Laug-
ardalsvell-
inum ann-
að kvöld.
»1
Leikmenn voru and-
lausir og ólíkir sér
Sigurður Ægisson
sigurdur.aegisson@gmail.com
Safaspæta, komin alla leið frá Norð-
ur-Ameríku, hefur undanfarnar vik-
ur og jafnvel mánuði verið í heim-
sókn við Apavatn. Þetta mun vera
kvenfugl, a.m.k. ársgamall. Um-
merki eftir hann sáust í byrjun ágúst
en menn náðu ekki að berja hann
augum fyrr en um þremur vikum
síðar.
Er þarna um afar sjaldgæfa fugla-
tegund að ræða sem einungis hafði
tvisvar áður fundist hér á landi, þ.e. í
júní árið 1961 við Fagurhólsmýri í
Öræfum og í október árið 2007 á Sel-
fossi. Er þetta jafnframt sjötta til-
vikið fyrir Evrópu. Fræðiheitið er
Sphyrapicus varius.
Safaspæta verpir í laufskógum í
suðurhluta Kanada og norðurhluta
Bandaríkjanna en vetrarstöðvarnar
eru í mið- og suðurríkjum Banda-
ríkjanna, í Mið-Ameríku og á eyjum
í Karíbahafi. Fartími á haustin
stendur yfir á tímabilinu frá seinni
hluta ágúst til loka október, en á vor-
in frá seinni hluta mars og fram eftir
maí; líklegt þykir að í vor hafi ein-
hver haustlægðin gripið spætuna og
fært hingað yfir.
Safaspæta er á stærð við skógar-
þröst, 18-22 cm á lengd, 43-55 g að
þyngd og með 34-40 cm vænghaf, að
mestu svört og hvít, en bringa oft
gulleit og af því ber hún nafn á
ensku, er kölluð Yellow-bellied sap-
sucker. Bæði kyn eru þar að auki í
fullorðinsbúningi rauð á enni og ofan
á höfði og karlfuglarnir jafnframt
framan á hálsinum.
Heggur göt á trjábörk
Safaspæta heggur lítil göt í trjá-
börk og eftir nokkurn tíma, þegar
safi eða kvoða hefur myndast í þeim,
kemur hún og drekkur eða étur
afraksturinn. Hún er með virkar
holur í nokkrum trjám á sama tíma
og fer, eftir að hafa tæmt á einum
stað, yfir á annað; á meðan safnast í
nýtæmdu holurnar sem eru þá heim-
sóttar fljótlega aftur. Jafnframt tek-
ur hún skordýr sem í vökvann sækja
eða eru annars staðar á stofnum
trjánna, og einnig ber og ávexti.
Göt á 1.000 trjátegundum
Erlendis eru birki og hlynur vin-
sælustu matarkistur þessarar um-
ræddu spætutegundar en göt hafa
þó fundist á yfir 1.000 trjátegundum.
Á Íslandi hefur hún m.a. sést gogga í
álm, birki, elri, lerki, selju og ösp.
Nú þegar haustmánuður er innan
seilingar og aðrir kaldari eftir það
hafa fuglaáhugamenn í hyggju að
setja hnetusmjör, banana og tólg á
valda staði á núverandi landsvæði
safaspætunnar, í þeirri von að hún
nái að lifa til vors og svo áfram.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Safaspætan í aksjón Þetta mun vera kvenfugl, a.m.k. ársgamall. Myndin var tekin við Apavatn 2. september.
Sjaldséð safaspæta
heimsækir Ísland
Heggur lítil göt á trjábörk og safnar safa og skordýrum