Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.09.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þið ættuð að drífa ykkur út og hreyfa ykkur svolítið því kyrrsetan er óholl. Varastu að dæma aðra. 20. apríl - 20. maí  Naut Horfur á framabraut eru einstaklega góðar á þessu ári. Hlustaðu á ábendingar um það hvernig þú getur hagrætt í vinnunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Ástarsamband rennur út í sandinn. Skelltu þér í ferðalag ef þú get- ur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það má ýmislegt gera sér til dægra- dvalar án þess að það kosti mikið. Þú verður spurð/ur spjörunum úr varðandi hugmynd sem þú kastar fram, undirbúðu þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu varlega núna, tilfinningasemin er allsráðandi og auðvelt að lenda í rimmu. Reyndu að sjá það jákvæða í öllum að- stæðum. Aðrir sjá að þú hittir naglann á höf- uðið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er betra að eiga sér góðan trún- aðarvin en byrgja allt innra með sér, því það getur verið skaðlegt. Gakktu hægt um gleð- innar dyr. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert í góðu jafnvægi andlega sem lík- amlega og mátt ekki láta neitt verða til að trufla það. Brettu nú upp ermarnar og láttu sem flesta heyra frá þér í síma eða með tölvupósti. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu ekkert verða til þess að þú standir ekki við áætlun þína varðandi fjár- haginn. Fáðu vin þinn í lið með þér því betur sjá augu en auga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim- inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Farðu eftir eigin sannfæringu og óttastu ekki því heilladísirnar vaka yfir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að líta málin raunsæjum augum, þótt margt skemmtilegt geti borið fyrir, þegar ævintýragleraugun eru sett upp. Seinni partinn gerist eitthvað skrýtið og skemmtilegt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert gaman að keppa við einhvern sem maður getur unnið auðveld- lega. Farðu varlega í umferðinni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þetta er góður dagur til að líta inn á við og reyna að skilja sjálfa/n þig betur. Mundu að maki þinn er mannlegur rétt eins og þú og hann les ekki hugsanir. Það þótti góður fréttamatur þeg-ar séra Hjálmar Jónsson fór í þriðja skipti holu í höggi, þessi prúði golfleikari, og þakkaði ekki snilli sinni en þótti sem honum hefði tekist þetta með guðs hjálp. Þór- arinn Eldjárn orti „Nýhent“: Margt er hér að skýra og úr að skera. Skulu þar um bálkar ortir vera – (sálmar), að ekkert brýnna hafi guð að gera en golfkúlum að dúndra fyrir séra – (Hjálmar)? Eins og rímfræðingar vita telst Sigurður Breiðfjörð með réttu höf- undur nýhendunnar; „og flesta braghætti, sem nú eru til undir henni, hefur hann fyrstur fundið og ort. Er hún því oft og nefnd Sigurð- arbragur,“ segir síra Helgi Sig- urðsson í Bragfræði sinni og til- færir m.a. þessa vísu eftir Sigurð úr „Aristómenesar rímum og Georgs“: Þú skalt líða heimskra háð, hógvær allar deilur sefa, þú skalt hlýða, ef heilla ráð hygginn maður vill þér gefa. Ég bað Sveinbjörn á Draghálsi einhverju sinni að útskýra fyrir mér nýhendu. Hann fór létt með það og kvað þessa ferskeytlu: Bagar angur bragargang brims ég stangast vési blæinn stranga fæ í fang fram af Langanesi. Sem hann síðan breytti í nýhendu með því að skjóta inn tvílið í aðra og fjórðu hendingu: Bagar angur bragargang brims ég stangast hörðu vési blæinn stranga fæ í fang fram af langa Jóhannesi. Sigurlín Hermannsdóttir segir frá því á Boðnarmiði að í haustferð Iðunnar um Njáluslóðir hafi leið- sögumaður sagt bílastjóra til um hraða rútunnar eftir því sem frá- sögn vatt fram og með tilliti til þess hversu holóttur vegurinn var: Njála á sér ótal lög, einna best þó munum að helgisögnin háð var mjög hraðatakmörkunum. Ekki gat hjá því farið að Reykja- víkurmaraþonið yrði hagyrðingum að yrkisefni: „Brautin of stutt – 213 m!“ Magnús Halldórsson yrkir: Metin reynt við margur getur, mun hér eygja nýja von, en fyrsti apríl færi betur, fyrir „svona“ maraþon. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nýhenda, hraðatakmark- anir og maraþon „GETURÐU EKKI SETIÐ KJURR?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að búa til leikmyndina fyrir leikhúshópinn hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MJÁ, MJÁ, MJÁ, MJÁ NEI, ÉG VIL EKKI KAUPA GÚMMÍMÚS SÍMASÖLUMAÐUR VÁ! TUTTUGUOGSJÖ ÁR SAMAN! ÉG GÆTI EKKI VERIÐ GLAÐARI! NEMA HRÓLFUR SÉ TILBÚINN AÐ LEYFA MÉR AÐ FARA! Ó, ÞÚ! Drottinn er góður, miskunn hans var- ir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns (Sálmarnir 100.5) Ísafjörður var eitt sinn höfuðborgtogaraútgerðar á Íslandi; sjórinn var fullur af fiski og menn máttu fiska eins og þeir vildu. Svo breytt- ust aðstæður og veiðinni voru tak- mörk sett. Það leiddi til margvís- legra breytinga fyrir vestan, svo sem að Guggan gula sigldi burt. Fólkinu fækkaði og atvinnuhættir breyttust. Margt nýtt hefur komið í stað þess sem var og áfram hefur kaupstaðurinn við Skutulsfjörð yfir sér blæ stórborgar, þótt þar búi í dag aðeins 2.600 manns. Þar er nær tugur matsölustaða, allar helstu þjónustustofnanir, stór farþegaskip koma þangað í tugatali yfir sumarið og túristar spóka sig um, reyndar við misjafnlega jákvæðar undir- tektir bæjarbúa. Á eyrinni sem byggðin stendur á er svo alveg ein- stakt gallerí í húsagerðarlist; stjórn- sýsluhús sem minnir á fjöllin sem bærinn er umluktur, og Lands- bankahúsið er í sama stíl og aðal- bankinn fyrir sunnan. Og það er menningarleg reisn yfir því að bóka- safnið skuli vera í glæsilegasta húsi bæjarins, gamla sjúkrahúsinu. x x x Fyrir nokkrum misserum var Eyr-arbakki skilgreindur sem vernd- arsvæði í byggð eins og það er kall- að. Í því felst að halda skal í gömlu bæjarmyndina, það er húsin í þorp- inu sem mörg voru byggð í kringum aldamótin 1900 og sum jafnvel fyrr. Þar er nærtækt að nefna Húsið, íverustað dönsku Eyrarbakkakaup- mannanna, sem byggt var síðast á 18. öldinni en þar er nú sýningar- aðstaða Byggðasafns Árnesinga. Sú var raunar tíðin að flest vötn féllu til Eyrarbakka, sem var helsti versl- unarstaður Sunnlendinga og þar margvísleg menningarleg starfsemi sem munaði um. Halldór Laxness sat löngum stundum á Eyrarbakka og skrifaði skáldverk og margir fleiri listamenn hafa raunar stungið niður staf sínum í byggðinni við ströndina. Í jaðri þorpsins í afgirtri veröld eigin lögmála er svo fangelsið á Litla-Hrauni; bygging sem sak- lausu fólki stendur lúmskur stuggur af – enda á refsing jafnhliða betrun jafnan að fela í sér nokkurn fæling- armátt. vikverji@mbl.is Víkverji

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.