Morgunblaðið - 10.09.2018, Side 12

Morgunblaðið - 10.09.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Ný sending – frábært úrval Flottir í fötum Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033 gallabuxur September og janúar eruþeir mánuðir sem fólkstekkur til og kaupir sérárskort í líkamsrækt. Stóru stöðvarnar eru með góð til- boð í gangi á þessum tíma, sér- staklega á árskortum. Það er engin tilviljun, fólk er að klára sumarfrí eða jólafrí, buxnastrengurinn er orðinn þrengri og erfiðara að smella efstu tölunni á skyrtunni. Þetta ástand kallar á aðgerðir og árskort í líkamsrækt hljómar lokk- andi sem leið út úr ástandinu. Árskort er ekki besta byrjunin En eins og flestir sem hafa lent í að kaupa sér árskort og nýta það svo skerandi lítið vita er árs- kort ekki endilega besta byrjunin. Vænlegri byrjun er að prófa sig áfram, fá að mæta í tvö eða þrjú skipti á þann stað þar sem maður er að íhuga að kaupa árskort. Hugsanlega kaupa einn mánuð. Finna hvort staðurinn hentar. Hvort umgjörðin, þjálfararnir, æf- ingafélagarnir og annað sem skiptir máli er í takt við væntingar okkar. Líður okkur vel á staðnum? Er tek- ið vel á móti okkur? Gera æfing- arnar okkur gott? Vita þjálfararnir hvað þeir eru að gera? Er gaman að æfa á staðnum? Þessum og fleiri spurningum er mikilvægt að svara áður en maður festir sig til lengri tíma. Stórar stöðvar með stór tilboð á þessum tíma árs gera beinlínis ráð fyrir að meirihluti þeirra sem kaupa árskort mæti bara fyrstu vik- urnar, ef það, og láti svo ekki sjá sig aftur fyrr en eftir ár. Það er ekkert leyndarmál. Við vitum þetta öll. Það er ekkert að því að kaupa árskort ef maður veit að maður mun nýta það vel. En ef maður er óviss er betra að fá að prófa fyrst. Festa sig í styttri tíma. Prófa nýja íþrótt Annað sem ég virkilega mæli með fyrir þá sem eru með árskort í ræktina er að prófa eitthvað nýtt. Prófa nýja hreyfingu, nýja íþrótt, nýja leið til þess að koma reglu- legri hreyfingu inn í lífið. Það er ótrúlega margt í boði á Íslandi, bæði rótgróið og nýtt, og það er aldrei of seint að byrja að stunda nýja hreyfingu. Ég hef sjálfur reynslu af því að byrja á nýrri íþrótt á fertugsaldri og tengjast henni sterkum böndum. Hvað sem þú gerir, kæri lesandi, hugsaðu málið vel og taktu ákvörðun út frá því hvað mun henta þér best og gefa þér mest. Njótum ferðalagsins! Morgunblaðið/Árni Sæberg Kraftur Í september flykkist fólk á líkamsræktarstöðvarnar og byrjar æfingar, þar sem kappi skal fylgja forsjá. Ástand sem kallar á aðgerðir Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson gudjon@njottuferdalagsins.is Njóttu ferðalagsins Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mér finnst óendanlegagaman að fylgjast meðlistflugi. Þetta er líkastþví að sjá ballett og aðrir jafna þessu við að sjá haferni. Eftirlætið mitt í þessu öllu eru svo rússnesku list- flugvélarnar eins og við sáum á laugardaginn. Slátturinn í stjörnuhreyfli þeirra er eins og fallegasta tón- list,“ segir Sigríð- ur Elva Vil- hjálmsdóttir, útvarpskona á K100, sem var kynnir á flusýningunni í Reykjavík- urflugvelli síðastliðinn laugardag. Beðið eftir flugmönnum Tugir flugvéla, þotur, þyrlur, listflugvélar, einkavélar og fleiri flygildi voru á sýningunni sem á bilinu 7-10 þúsund manns sóttu. Listflugmenn léku listir sínar og tóku lykkjur og kollhnísa uppi í him- inblámanum. Þá var sýnd Boeing 757 frá Icelandair, vélin Eldfell sem tók lágflug yfir Reykjavíkurflugvöll eins og fleiri vélar gerðu, til dæmis heimasmíðað fis, en mikil gróska er um þessar mundir í þeim kima einka- flugsins. „Einkaflugið hefur sjaldan verið öflugra en núna, sem helst í hendur við mikil umsvif flugfélaganna. Áður fyrr þurfti fólk sem komið var með réttindi atvinnuflugmanns að bíða í mörg ár eftir að fá vinnu, en núna er bókstaflega beðið eftir því,“ segir Sigríður Elva sem hefur verið viðloð- andi flugið lengi og stefnir nú á einkaflugmannsprófið. Ítalskt var bannað Til stóð að tvær ítalskar herflug- vélar sem eru hér á landi í loftrým- isgæslu á vegum Atlantshafs- bandalagsins tækju flug yfir Reykjavíkurflugvöll á sýningunni. Málið var nánast í höfn þegar borg- arstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, tók fyrir þátttöku Ítal- anna. Viðbáran þar var samningur ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 2013 um að öllu herflugi um Reykja- víkurflugvöll skyldi hætt nema ör- yggisatriði krefðust þess. „Við sjáum þetta bara sem fjandsamlegt flugi,“ sagði Matthías Sveinbjörnsson, formaður Flugmála- félags Íslands, við mbl.is. Hann segir þetta bann Reykjavíkurborgar vinna gegn flugi og áhuga nýrrar kynslóðar á því. Þá hafi samkomulaginu ekki verið fylgt fast eftir hingað til. Herflug komst þó að þótt engir væru Ítalirnir. Meðal þeirra sem tóku yfirflug á vellinum var Sig- urður Ásgeirsson, þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, að þessu sinni á vél af gerðinni Cessna O-1E Bird Dog. Vél þessi, sem ber skrán- ingarstafina TF NEI, var lengi í eigu ítalska hersins, smíðuð árið 1962. Vélar þessarar gerðar hafa reynst bæði sterkar og góðar og reyndust Bandaríkjaher vel í stríðs- rekstri þeirra í Kóreu og Víetnam. Hingað til lands var vélin keypt fyrir tveimur árum og er í eigu Sigurðar Ásgeirssonar, Tryggva Baldurs- sonar, Guðjóns Jóhannessonar og Sigurðar M. Jónssonar. Ballett á himni Sláttur hreyfla flugvélanna er sem fallegasta tónlist. Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir útvarpskona var kynn- ir á sýningu á Reykjavíkurflugvelli um helgina þar sem mátti sjá Boeing, Cessnur og fleira fallegt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugdagur Þúsundir mættu á svæðið. Eldfell Icelandair og öldungurinn Páll Sveinsson voru stærstu vélarnar. Flugfeðgar Sigurður Ásgeirsson og Pétur Þór Sigurðsson við stássgripinn Cessna O-1E Bird Dog. Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir Börn Flugið hefur alltaf yfir sér blæ spennu og ævintýra sem höfðar ekki síst til krakkanna. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.