Morgunblaðið - 10.09.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
Lyklahús
Sláttuorf
3.495
5.495
rrulás
1.995
1.995
7.995
4.995
3.995
3.995
Kerrulás
Hjólastandur
á bíl
1.995
Tjaldstæðatengi
Tengi
12v í 230v
Hraðsuðuketill 12v
USB 12v tengi
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Alexander Gunnar Kristjánsson
Fagnaðarlæti voru á kosningavöku
Sósíaldemókrata í Svíþjóð þegar út-
gönguspár þingkosninga þar í landi
voru birtar í gærkvöldi. Sýndu
spárnar að flokkurinn er áfram
stærstur á sænska þinginu þrátt
fyrir fylgistap. Ekki síst var því
fagnað að vinstrifylkingin svonefnda
yrði líklega með flesta þingmenn,
sem gæti tryggt áframhaldandi
stjórn Stefans Löfvens, forsætisráð-
herra og formanns Sósíaldemó-
krata.
Þegar leið á kvöldið varð hins veg-
ar ljóst að hnífjafnt var milli vinstri-
og hægrifylkinganna.
Þegar nánast var búið að telja öll
atkvæði í gærkvöldi voru flokkar
sem standa að vinstrifylkingunni
samtals með 144 þingmenn en flokk-
ar í hægrabandalaginu með 143
þingmenn. Svíþjóðardemókratar fá
62 þingmenn. Þá virðist óljóst hvort
vinstristjórnin heldur, en formaður
Miðflokksins og formaður Hægri-
flokksins hafa krafist afsagnar for-
sætisráðherrans, Löfvens.
Ferlið gæti breyst
Kosningarnar eru sögulegar, en
jafnframt eru úrslitin hefðbundin að
sögn Ólafs Þ. Harðarsonar, prófess-
ors í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands. Hann segir sigurvegara
kosninganna vera Svíþjóðar-
demókratana þótt þeir séu ekki
stærsti flokkurinn. Þeir hafi bæði
tekið talsvert fylgi frá Sósíal-
demókrötum og Hægriflokknum.
Fylgisaukning þeirra var um 4,7
prósentustig.
Ef stjórnarmyndunarferlið helst
óbreytt frá síðustu kosningum gæti
ríkisstjórn Löfvens, forsætisráð-
herra og formanns Sósíaldemó-
krata, haldið velli. Hins vegar gæti
farið svo að hægribandalagið semdi
við Svíþjóðardemókrata um ein-
hvers konar samstarf að mati Ólafs.
Hann segir stöðuna algjörlega opna.
„Þetta er í annað skipti sem
hvorki rauða né bláa blokkin fær
meirihluta. Þessi blokkaskipting
hefur verið hryggjarstykkið í
sænskri pólitík. Eftir kosningarnar
2014 fékk hvorug blokkin meirihluta
en þær ákváðu að halda áfram eins
og ekkert hefði gerst og fékk sú
blokk sem varð stærst að mynda
ríkisstjórn. Það er ekki víst að slíkt
gerist núna,“ segir hann.
Með innkomu Svíþjóðardemó-
kratanna í sænsk stjórnmál hefur
stjórnarmyndunarleikurinn riðlast,
en hann hefur verið í föstum skorð-
um í áratugi, bætir Ólafur við.
Ekki sammála um framhaldið
Á kosningavöku Svíþjóðar-
demókrata hitti Morgunblaðið Mal-
ene Egård, sem hefur stutt flokkinn
í hartnær áratug. Malene segist
ánægð með að loksins hilli undir
þarfar breytingar í Svíþjóð. Innflytj-
endamál þurfi að taka föstum tökum
og fyrir því muni Svíþjóðar-
demókratar beita sér. Malene vill
ekki spá um hvað gerist að kosn-
ingum loknum en hún segist þó ekki
telja að eini möguleiki Svíþjóðar-
demókrata á að komast til valda sé
að verja ríkisstjórn bandalags
hægriflokka falli.
„Það má vel hugsa sér annars
konar samstarf þvert á blokkirnar
tvær,“ segir Malene.
Það kvað við annan tón hjá Car-
oline Cederquist, kjósanda Hægri-
flokksins. Hún telur að flokkurinn
hennar muni ekki starfa með Sví-
þjóðardemókrötum, hvorki með því
að hleypa þeim í ríkisstjórn né með
því að mynda ríkisstjórn sem þeir
verji. Nær væri að leita út fyrir rað-
ir hægribandalagsins eftir stuðningi.
Caroline segir að Svíþjóðar-
demókratar hafi komist upp með að
stjórna umræðunni í sænskum miðl-
um um of og flokkurinn reyni að láta
alla umræðu snúast um innflytj-
endur og aðlögun þeirra, hvert svo
sem viðfangsefnið er.
Hanna Stjernfeld, líffræðinemi
við Háskólann í Uppsölum, segist
hafa kosið Umhverfisflokkinn. Hún
telur umhverfismál mikilvægasta
viðfangsefnið enda fylgi það náminu.
Þar skorar Umhverfisflokkurinn
hæst og flokkurinn sé sá sem nátt-
úruverndarsamtökin Naturskydds-
föreningen telji besta kostinn. Vel-
ferð dýra er henni einnig hugleikin
og segir hún að Umhverfisflokk-
urinn sé þar öðrum fremri.
Ekki er ljóst hvað Hönnu þykir
um mögulega stjórnarmyndun, en
hana skiptir mestu máli bann við
loðdýrarækt og tilraunastarfsemi á
dýrum, auk þess að tryggja betur
réttindi búfjár og annarra dýra.
Í takt við þróun
Að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar eru
úrslitin að vissu leyti mjög hefð-
bundin. „Stjórnarflokkarnir tapa
báðir, það er að segja Sósíal-
demókratarnir og Umhverfisflokk-
urinn. Það er það sem við höfum séð
lengi og nú í meira mæli en áður að
það að vera í ríkisstjórn er langoft-
ast ávísun á tap í kosningum.“
Stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, Hægriflokkurinn Moderat-
erna, tapaði einnig talsverðu fylgi í
kosningunum. Ólafur segir þetta
staðfestingu á svipaðri þróun og hef-
ur orðið hérlendis og víða í Evrópu
að það festist í sessi að flokkum á
þingi fjölgi og þeir verði almennt
minni.
Stjórnarmyndun með öllu óljós
Krafist afsagnar forsætisráðherra Löfven hyggst ekki láta af störfum Munar þingmanni á
milli fylkinga Framhaldið með öllu óljóst Svíþjóðardemókratar með mestu fylgisaukninguna
AFP
Stærstur Stefan Löfven, leiðtogi Sósíaldemókrata, ræðir við fréttamenn í
gærkvöldi. Flokkurinn er áfram sá stærsti í Svíþjóð þrátt fyrir fylgistap.
AFP
Sigurreifur Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókratanna, ávarpar
stuðningsmenn flokksins á kosningavöku í Stokkhólmi í gærkvöldi.
AFP
Vel fagnað Ulf Kristersson, leiðtoga Hægriflokksins í Svíþjóð, var vel fagn-
að þegar hann mætti á kosningavöku flokksins í Stokkhólmi í gærkvöldi.
Naleraq-flokkurinn, einn fjögurra
flokka í grænlensku landsstjórninni,
er hættur í stjórninni vegna ágrein-
ings um rekstur flugvalla. Deilt er
hart um aðkomu Danmerkur að
fjármögnun og eignarhaldi flugvalla
á Grænlandi.
Að sögn fréttavefjarins Sermits-
iaq tilkynnti Hans Enoksen, for-
maður Naleraq-flokksins, á blaða-
mannafundi í gær að flokkurinn
myndi ekki lengur eiga aðild að
landsstjórninni. Haft er eftir tals-
manni Naleraq-flokksins, Jens
Napaattooqs, að ekki sé undir nein-
um kringumstæðum hægt að sætta
sig við að danska ríkið eigi hluta af
Kaalallit Airports, félaginu sem sér
um rekstur flugvalla á Grænlandi.
Miklar deilur hafa verið vegna
frumvarpsins og kemur fram í bréfi
Naleraq-flokksins til samstarfs-
flokkanna fyrrverandi að ekki sé
vilji fyrir því innan flokksins að
samþykkja frumvarpið. Flokkurinn
sé frekar reiðubúinn til þess að
sætta sig við styttri flugbrautir en
að samþykkja aðkomu danskra
stjórnvalda.
Formaður landsstjórnarinnar,
Kim Kielsen, leiðtogi Siumut, segir
að ekki verði boðað til nýrra kosn-
inga. Ætlar hann að leita til annarra
flokka sem geti varið stjórnina falli.
AFP
Grænlenska þingið Frá setningu grænlenska þingsins í Nuuk í vor. Kim
Kielsen, formaður landsstjórnarinnar, gengur fremstur.
Flugvallarmál
felldu landsstjórn
Grænlenska stjórnin sprungin