Morgunblaðið - 10.09.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2018
» TónlistarhátíðinExtreme Chill hófst
6. september og lauk
fjórum dögum síðar, í
gærkvöldi. Fjöldi tón-
listarmanna kom fram
og þá einkum raftónlist-
armenn þar sem hátíðin
er í grunninn helguð
slíkri tónlist. Á föstudag
fóru tónleikar fram í
Gamla bíói og meðal
þeirra sem komu fram
var dúettinn Mankan,
sem þeir Tómas Man-
oury og Kippi Kanínus
skipa. Var ekki minna
lagt upp úr sjónrænu
hliðinni en þeirri hljóð-
rænu.
Gestir Extreme Chill-tónlistarhátíðarinnar skemmtu sér vel í Gamla bíói
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gamla bíó Tvíeykið Mankan var á meðal þeirra sem komu fram á föstudagskvöldið var og skemmtu viðstöddum.
Fjölbreytt hátíð Margir komu fram, þeirra á meðal var Futuregrapher.
Tónleikagestir Þau
Júlíus Ólafsson og
Vigdís Guðmunds-
dóttir voru á meðal
gesta í Gamla bíói á
föstudaginn var.
Tónlistarunnendur Félagarnir Hörður, Ari og Halli létu sig ekki vanta.
Kvikmyndavefurinn Deadline
greinir frá því að átta kvikmynda-
framleiðslufyrirtæki hafi áhuga á
að framleiða gamanmynd um Don-
ald Trump Bandaríkjaforseta, í
leikstjórn hins skoska Armando
Iannucci sem á m.a. að baki hina
lofsungnu gamanmynd The Death
of Stalin eða Dauði Stalíns. Mun
Iannucci þegar hafa fengið eitt
freistandi tilboð frá ónefndu kvik-
myndaveri.
Iannucci tísti fyrir skömmu á
Twitter um hugmynd sína að gam-
anmyndinni, að í henni yrði Trump
gefið svefnlyf og hann fluttur í hús
sem væri nákvæm eftirlíking af
Hvíta húsinu. Þar heldur Trump
áfram störfum sem forseti og hefur
enga hugmynd um að hann er orð-
inn valdalaus. Iannucci tísti að
milljónum – og þá væntanlega doll-
ara eða punda – yrði varið í að ráða
leikara í hlutverk öldunga-
deildarþingmanna, starfsmanna
Trumps, fréttaþula, gesta á kosn-
ingafundum og fleiri persóna í
myndinni. „Kvikmyndaver, gæti ég
fengið ykkar hæstu tilboð,“ tístir
hinn spaugsami Iannucci.
Hann gefur kvikmyndinni, eða
öllu heldur hugmyndinni að henni,
heitið Fake America Great Again
sem er útúrsnúningur á slagorði
Trumps í kosningabaráttunni,
Make America great again, það er
Gerum Ameríku aftur stórkostlega.
Iannucci fékk mikil viðbrögð við
tístinu og skrifaði leikkonan Julia
Louis-Dreyfus meðal annars og
sagðist gjarnan vilja fá að leika í
myndinni.
AFP
Spaugsamur Armando Iannucci vill gera gamanmynd um Donald Trump.
Spennt fyrir grínmynd um Trump
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
ICQC 2018-20