Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kringlan leiðandi í stafrænni verslun  Stígur inn í stafræna heiminn  Hægt verður að finna og bera saman vörur í Kringlunni á netinu Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Kringlan ætlar að verða leiðandi í stafrænni verslun. Næstu tólf mán- uði munum við kynna til sögunnar þætti sem lúta að stafrænni þjón- ustu hér í húsinu og eins á netinu,“ sagði Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar. „Tak- markið er að fólk geti verið með Kringluna á netinu og skoðað vöru- úrvalið sem boðið er upp á í hús- inu.“ Stefnumótun um stafræna stefnu Kringlunnar var kynnt rekstrar- aðilum í fyrradag. Undirbúningur hefur staðið lungann úr árinu. Auk Kringlunnar og Reita komu að honum rekstraraðilar og markaðs- ráð Kringlunnar undir handleiðslu Eddu Blumenstein ráðgjafa. „Við stefnum að því að geta þjónað viðskiptavinum okkar með heildstæðri nálgun þar sem net- heimar og raunheimar renna sam- an í eitt,“ sagði Sigurjón. Svipað og fólk getur gengið inn í Kringluna á það að geta vafrað um hana á net- inu og kynnt sér vöruúrvalið. Verslanir Kringlunnar eru komnar mislangt í stafrænni þróun og mun uppbygging stafrænnar Kringlu taka mið af því. Sigurjón segir að þeir sem eru skemmra komnir muni njóta aðstoðar og reynslu þeirra sem lengra eru komnir. „Við höfum sett okkur það markmið að þetta eigi að nást innan árs. Hvort allir verða þá komnir í gang er óvíst en við stefnum að því,“ sagði Sigurjón. Auðveldar vöruleit „Stór hluti viðskiptavina byrjar vöruleit á netinu. Hægt verður að leita undir einum hatti Kringlunnar (kringlan.is) að tiltekinni vöru. Þú þarft ekki að heimsækja hverja og eina verslun til að leita t.d. að svörtum skóm. Það verður nóg að fara inn á kringlan.is og leita að vörunni. Þá birtast allar slíkar vörur sem til eru í verslunum Kringlunnar. Þetta mun auðvelda viðskiptavinunum að finna það sem þá vantar og bera saman verð. Fólk mun eftir sem áður koma í Kringluna til að handfjatla vöruna og máta. Kaupferlið klárast svo innan viðkomandi verslunar á vefn- um eða í raunheimum,“ sagði Sig- urjón. Boðið verður upp á að við- skiptavinir geti sótt vörurnar á einn stað í Kringlunni. Til greina kemur að Kringlan verði einnig með heimsendingarþjónustu. „Við lítum ekki á netverslun sem ógn heldur sjáum við stafræna verslun sem tækifæri og viðbót við það sem fyrir er. Saman hjálpar þetta viðskiptavinunum að ljúka kaupunum á auðveldan og hag- kvæman hátt,“ sagði Sigurjón. „Kringlan ætlar ekki bara að mæta væntingum viðskiptavina, heldur fara fram úr þeim. Stafræn stefna Kringlunnar er því í takt við nýja framtíðarsýn hennar sem skemmti- legur og frumlegur miðbæjarkjarni í raunheimum sem og netheimum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kringlan.is Baldvina Snælaugsdóttir markaðsstjóri og Sigurjón Örn Þórs- son framkvæmdastjóri Kringlunnar hafa tekið þátt í undirbúningnum. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins á Íslandi kynnti í gær árlega út- tekt sína á íslenskum efnahagsmál- um. Var nefndin að mestu leyti ánægð með þær breytingar sem hefðu orðið í íslensku efnahagslífi frá síðustu úttekt sem gerð var í apríl í fyrra. Engu að síður nefndi hún aukna samkeppni í flugsamgöngum og hátt olíuverð meðal nýrra áskor- ana sem flugþjónusta á Íslandi stæði frammi fyrir. Ashok Bhatia, aðstoðaryfirmaður efnahagsþróunar hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum og formaður sendi- nefndar AGS hér á landi, sagði við mbl.is í gær að hægt hefði á hagvexti á Íslandi eftir vöxt síðustu ára, en að sá vöxtur hefði að mestu verið ósjálf- bær. Líkurnar á því að hagkerfið á Íslandi ofhitnaði færu því minnk- andi. Hann undirstrikaði enn fremur að þrátt fyrir að þróunin í efnahagsmál- um væri almennt jákvæð væri einnig mikilvægt að veita nýjum áhættu- þáttum athygli og nefndi þar sér- staklega aukna samkeppni í flug- samgöngum. „Við metum flug- rekstur sem áhættuþátt en það á eftir að koma í ljós hversu stór hann verður,“ sagði Bhatia. Þá þyrfti einnig að mati nefndar- innar að taka mið af aukinni spennu í alþjóðaviðskiptum, sem gæti haft neikvæð áhrif á útflutningsverð á áli og öðrum varningi. Þá yki óvissan um niðurstöðu samninga Breta og Evrópusambandsins um útgöngu þeirra fyrrnefndu líkurnar á veikari útflutningseftirspurn frá einum af stærstu mörkuðum Íslands og gæti flækt frekar fiskveiðisamvinnu á Norður-Atlantshafi. Nefndin tiltók nokkur atriði sem hún taldi rétt að setja í forgang og lagði hún meðal annars til að sam- eina allt eftirlit með fjármálageiran- um, þrautavaralánveitingar og verk- efni skilavalds í Seðlabanka Íslands. Ætti því að mati nefndarinnar að færa fjármálaeftirlit inn í Seðlabank- ann og sagði Bhatia að nefndin hefði einnig lagt þetta til í fyrra. Telja minni líkur á ofhitnun  Aukin samkeppni í flugrekstri meðal áhættuþátta að mati AGS Morgunblaðið/Hari AGS Sendinefnd Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins kynnir úttektina í gær. Lagningu rúmlega sjö kílómetra göngu- og hjóla- stígs frá Hrafnagilshverfinu í Eyjafirði til Akureyr- ar er að ljúka. Þótt eftir sé að malbika síðasta spott- ann er hjólafólk farið að nota stíginn. Göngu- og hjólastígurinn var annað af tveimur stóru málunum hjá sveitarstjórninni sem lauk störf- um í vor, að sögn Stefáns Árnasonar, skrifstofu- stjóra Eyjafjarðarsveitar. Hitt var lagning ljósleið- ara heim á hvert heimili í Eyjafjarðarsveit. Hrafnagilshverfið er að verða 300 manna byggð og fólk sækir mikið vinnu til Akureyrar. Umferð hefur aukist mjög. Tilgangur stígsins er ekki síst að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda með því að færa það af akbrautinni. Lagning stígsins var boðin út á síðasta ári og lauk þeim hluta verksins í vor. Þá var malbikun hans boðin út. Starfsmenn Malbikunar Akureyrar hófu í gær malbikun síðasta spalarins fram í Hrafnagil. Stefán reiknar með að verkinu ljúki í vikunni. Stígurinn er 2,5 metrar á breidd. Hann endar við sveitarfélagamörk Akureyrar en þar tekur við stígakerfi bæjarins. Akureyrarbær lagði þann spotta sem eftir var til að hægt yrði að tengja Eyja- fjarðarstíginn og Vegagerðin er að gera þrengingu á Eyjafjarðarbraut þar sem stígurinn fer yfir veg- inn til að draga úr hraða. Áætlað er að heildarkostn- aður við verkið verði um 200 milljónir króna. Það er unnið í samvinnu við Vegagerðina, sem greiðir hluta kostnaðar. Þegar má sjá töluverða hjólaumferð á þeim hluta stígsins sem er tilbúinn. Stefán kannast við það. „Fólk bíður spennt. Mikið er spurt hvenær þetta verði tilbúið.“ helgi@mbl.is Stígur frá Hrafnagili til Akureyrar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Malbikun Starfsmenn Malbikunar Akureyrar voru við Kristnes um helgina við malbikun Eyjafjarðarstígsins. Þeir eru að leggja síðasta spölinn.  Aukið öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.