Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Rétta
þjálfunin
sem veitir vellíðan!
Fjölbreyttir tímar frá
morgni til kvölds
Það mun vera einkenni smá-þjóða að vera dálítið upp-
teknar af því sem er sagt um þær
utan landsteina, til hróss eða
háðs.
Einn af fyrrileiðtogum
þjóðarinnar var
næmur á þennan
veika punkt. Hann
hafði einnig þann
hátt á að svara
spurningum með tilvitnun í ein-
hvern sem hann hafði hitt á förn-
um vegi eða í heita pottinum.
Og stundum sameinaði hannhvort tveggja, förumanninn
og snobbið fyrir útlöndum:
En þetta sagði mér maður ímorgun, og hann var meira
að segja útlendingur.
Ekkert er að því að vitna tileinhverra sem standa utan
við íslenska hópamyndun. Þetta
gerði Páll Vilhjálmsson í gær:
Krónan skilaði almenningiefnahagsbata í uppsveiflunni
eftir 2013. Þegar hagkerfið var
við það að ofhitna kom sterk
króna í veg fyrir ósjálfbært inn-
flæði farþega og erlends fjár-
magns. Þegar hættan var liðin
hjá lækkaði gengi krónunnar
enda þurftu útflutningsatvinnu-
vegir á því að halda.
Krónan þjónar sem sagt hag-kerfinu og þjóðinni. Hvorki
dollar né evra gætu gert það.
Enda heyrist mest lítið í þeim
sem vilja skipta úr jafnaðarmanni
Íslands, krónunni.
Staðfesting Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins liggur fyrir. Krónan er
ómissandi.“
Páll
Vilhjálmsson
AGS: Krónan
Íslandi ómissandi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ekki tókst að fella 64 hreindýr af þeim kvóta sem gefinn
var út fyrir nýafstaðið veiðitímabil. Alls voru felld 1.346
hreindýr á tímabilinu. Heildarkvótinn á þessu ári er 1.450
dýr, þar af á að fella 40 hreinkýr í nóvember á svæði 8.
Í fyrra gengu 11 hreindýr af, tveir tarfar og níu kýr, af
1.275 dýra kvóta. Árið áður, 2016, náðist ekki að veiða 29
hreindýr. Met var sett í núverandi kerfi árið 2015 þegar
ekki náðist að veiða 103 hreindýr af þeim 1.274 dýrum
sem veiða átti til 20. september það ár.
Hreindýraveiðum lauk nú að venju 20. september og
þá voru óveidd 61 hreinkýr og þrír hreintarfar, að því er
fram kemur á síðu Umhverfisstofnunar (hreindyr.is).
Á svæði 1 voru tíu kýr óveiddar þegar veiðitímanum
lauk, á svæði 2 níu kýr, á svæði 3 þrjár kýr, á svæði 4 sex
kýr og einn tarfur, á svæði 7 fjórar kýr, á svæði 8 sjö kýr
og tveir tarfar. Langmest stóð eftir á syðsta svæðinu,
svæði 9, 22 kýr. Fram kemur á síðunni að ekki hafi tekist
að úthluta fleiri leyfum á svæðinu. Aðalumsóknir voru fá-
ar og varaumsóknir. Tveir veiðimenn þar þáðu að fá
aukadýr.
Töluvert mörgum veiðileyfum var skilað síðustu dag-
ana og tókst ekki að úthluta þeim til veiðimanna á biðlista
vegna slæms veðurs og veðurútlits. Auk þess náðu sumir
veiðimenn ekki sínum dýrum. gudni@mbl.is
Ekki náðist að fella 64 hreindýr
Alls voru felld 1.346 hreindýr á veiðitímabilinu sem lauk 20. september
Hreindýr Kvótinn náðist ekki.
Steingrímur Ari
Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ), læt-
ur af því starfi 1.
nóvember nk. en
þá tekur við
starfi forstjóra
SÍ María Heim-
isdóttir, sem ráð-
in var forstjóri
SÍ í sumar.
„Ég er að hefja störf á fjárlaga-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins nú
næsta mánudag, 1. október,“ sagði
Steingrímur Ari í samtali við Morg-
unblaðið í gær, þegar hann var
spurður hvað tæki við hjá honum
þegar hann léti af starfi forstjóra
SÍ.
„Ég óskaði eftir tilflutningi í
starfi í framhaldi af því að ég ákvað
að sækja ekki um endurráðningu
sem forstjóri Sjúkratrygginga Ís-
lands. Það er komið inn nýtt laga-
ákvæði í lögin um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna sem gaf
mér kost á því að óska eftir tilflutn-
ingi og því gerði ég það,“ sagði
Steingrímur Ari.
Hann segir staðgengil sinn munu
gegna starfi forstjóra SÍ til 1. nóv-
ember, að nýr forstjóri tekur við.
agnes@mbl.is
Óskaði eftir til-
flutningi í starfi
Flyst í fjármálaráðuneytið
Steingrímur
Ari Arason
Hæsturéttur ætlar að leyfa upptökur í hljóði og mynd þegar dómur verður
kveðinn upp í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, en almennt eru slíkar upp-
tökur ekki leyfðar þegar þinghald fer fram.
Í tilkynningu frá Hæstarétti kemur fram að þegar dómur verði kveðinn
upp í þessu máli verði hann fyrstur í röðinni og svo verði gert 5 mínútna
hlé þar til aðrir dómar verða kveðnir upp.
Almennt eru dómsuppkvaðningar á fimmtudögum og birtist málalisti yf-
ir þau mál sem dómur er kveðinn upp í fyrr um morguninn. Ekki er tiltekið
í tilkynningu réttarins hvort dómur verði kveðinn upp í þessu tiltekna máli
nú á fimmtudaginn eða hvort það verði á næstu vikum. Málflutningur var
13. og 14. september og verða því á morgun tvær vikur frá því að málið var
tekið fyrir. Hæstiréttur hefur fjórar vikur til að úrskurða í málum.
Upptökur leyfðar við dómsuppkvaðningu