Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, segir að vilji sé fyrir hendi á Alþingi til að halda áfram því starfi sem hófst í upphafi ársins, þar sem kannað verði hvernig þingheimur getur viðhaldið því átaki sem hófst í kjölfar umræðna um #metoo-bylt- inguna síðasta vetur, m.a. á Alþingi. Hann nefnir sem dæmi að hægt væri að endurtaka með einum eða öðrum hætti Rakarastofuráðstefnu Alþingis, eins og þá sem haldin var í fyrsta skipti hér á landi á Alþingi hinn 9. febrúar sl. Sú ráðstefna þótti vel heppnuð en hún var haldin í sam- starfi við UN Women á Íslandi og ut- anríkisráðuneytið vegna #metoo- byltingarinnar. „Eins og kunnugt er héldum við Rakarstofuráðstefnu Alþingis í febr- úarmánuði sl. og við samþykktum í kjölfar þeirrar ráðstefnu breyt- ingar á siða- reglum alþingis- manna fyrir vorið, þar sem mjög afdráttar- laus ákvæði komu inn í siðaregl- urnar um þetta. Væntanlega er það fyrsta þingið sem ákveður að taka upp mjög skýr ákvæði sem taka á hvers kyns áreitni og ofbeldi. Það snýr að þingmönnum, starfsmönnum okkar og gestum. Það snýr að þinginu bæði út á við og inn á við og leggur skyldur á herðar þing- mönnum hvar sem þeir eru sem op- inberar persónur, á ferðum á vegum þingsins, eða hvar sem er,“ sagði Steingrímur. Vinnum áfram innan þingsins „Það var reynt að ná gjörsamlega utan um þetta í þeirri vinnu sem fór fram seinnihluta vetrar og síðasta vor,“ sagði Steingrímur. Hann segir að mikil og góð vinna hafi verið lögð í breytingarnar á siðareglum þing- manna. Loks sagði Steingrímur: „Þessi mál eiga tvímælalaust að vera áfram á dagskrá hjá Alþingi, með einum eða öðrum hætti. Mér finnst koma fullkomlega til greina að við vinnum áfram með þessi mál innan þingsins. Við gætum til dæmis verið aftur með svona dag eins og Rakarastofuráð- stefnu Alþingis síðasta vetur, en þá kannski með heldur víðtækari hætti, þar sem við tækjum siðareglurnar og hagsmunaskráninguna og fjölluðum almennt um þau mál, til þess að um- ræðan um þessi mál haldist lifandi.“ #metoo áfram á dagskrá hjá Alþingi  Segir vilja á þingi til þess að halda umræðu um #metoo vakandi Steingrímur J. Sigfússon Viðar Már Friðfinnsson, fram- kvæmdastjóri og stjórnarmaður Veit- ingahússins Læks ehf. sem rak kampavínsklúbbinn Strawberries, var í gær sakfelldur í Landsrétti fyrir meiriháttar brot á skattalögum og al- mennum hegningarlögum. Þótti sannað að Viðar Már hefði bæði staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum og vantalið innheimtan virðisaukaskatt sem bar að standa ríkissjóði skil á og að hins vegar hefði hann staðið skil á efnis- lega röngum skattframtölum og kom- ist með því móti hjá því að greiða tekjuskatt og útsvar. Hæfileg refsing Viðars Más er sögð fangelsi í 18 mánuði en dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. Að auki er honum gert að greiða 242.000.000 kr. sekt í ríkissjóð, og ber honum að af- plána 12 mánaða fangelsi ef sektin er ekki greidd innan fjögurra vikna. Þá var Veitingahúsið Lækur ehf. dæmt til að greiða 158.000.000 kr. sekt óskipt með Viðari til ríkissjóðs. Á að greiða 242 millj- ónir í sekt  18 mánaða skilorð í Strawberries-máli Landsréttur mildaði í síðustu viku dóm héraðsdóms yfir 28 ára karl- manni, Kristófer John Unnsteins- syni, sem dæmdur hafði verið í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku eftir starfsmanna- fögnuð á vinnustað þeirra árið 2015. Var stúlkan þá 17 ára og mað- urinn 24 ára. Segir í dómi Lands- réttar að 22 mánuðir hafi liðið frá nauðguninni og þar til ákæra var gefin út, er sú töf metin til refsi- lækkunar og dómurinn lækkaður í tvö og hálft ár. Framburður beggja var stöðugur fyrir dómi en þau greindi á um hvort samþykki hefði legið fyrir. Læknir og hjúkrunarfræðingar á neyðarmóttöku greindu einnig frá því að stúlkan hefði sagt þar að hún hefði margsagt Kristófer að hún vildi þetta ekki. Féllst héraðsdómur sem og Landsréttur á í ljósi þessa og atvika málsins að framburður hennar væri trúverðugur. Þá stað- festi Landsréttur dóm um einka- réttarkröfu stúlkunnar og var Kristófer gert að greiða henni tvær milljónir króna í bætur. Landsréttur mildaði nauðgunardóm Útgefandi:Eik fasteignafélag hf., kennitala 590902-3730, Álfheimum 74, 104 Reykjavík Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu, dagsetta 25. september 2018. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að ný skuldabréf í flokknumEIK 161047 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Lýsingin er gefin út rafrænt á íslensku. Hún er birt á vef Eikar fasteignafélags hf. á slóðinni http://www.eik.is/fjarfestar og verður aðgengileg þar í tólf mánuði frá staðfestingu hennar. Útprentuð eintökmá panta án kostnaðar í gegnumnetfangið gardar@eik.is. Taka til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Sótt hefur verið um aðNasdaq Iceland hf. taki skuldabréfin til viðskipta á Aðalmarkaði ogmun verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Nafnverð útgáfu Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði kr. 20.000.000.000 sem er jafnhátt heimilaðri hámarksstærð flokksins. Öll útgefin skuldabréf í flokknumhafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í kr. 20.000.000 einingum. Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. er EIK 161047. ISIN númer bréfanna er IS0000029320. Reykjavík, 26. september 2018 Stjórn Eikar fasteignafélags hf. Stækkun skuldabréfaflokksins EIK 161047 Birting lýsingar Vorum að fá í sölu eitt af virðulegustu einbýlishúsunum í Vesturbænum. Húsið sem er um 430 fm skiptist m.a. í 3 glæsilegar samliggjandi stofur, 7-8 herbergi, tvö baðherbergi og fl. Sér íbúð í kjallara. Bílskúr. Falleg lóð. Frábær staðsetning. Einbýlishús í Vesturbænum 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali sverrir@eignamidlun.is fs. 861 8514 Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali kjartan@eignamidlun.is fs. 824 9093 Nánari upplýsingar veita:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.