Morgunblaðið - 26.09.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018
Lítill fiskur í stórri tjörn
- samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs
Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og
Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn í Norðurljósasal Hörpumiðvikudaginn
26. september kl. 08:15 til 10:00.
Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2017 og
samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegummarkaði, en um98%af
afla af Íslandsmiðumer seldur þar.
08:15 -Morgunverður
08:30 -Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
08:50 - SjávarútvegsgagnagrunnurDeloitte vegna ársins 2017
Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi, meðeigandi Deloitte
09:10 - Framtíðarhlutverk sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, Háskóla Íslands
09:30 „Skip án stefnu siglir í strand“
Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju
09:50 - Samantekt
Heiðrún LindMarteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Fundarstjóri er Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri
í sjávarútvegsteymi Arion banka.
Skráning á skraning@deloitte.is | Aðgangur 3.500 kr.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Haldnir hafa verið tveir fundir í Vík í
Mýrdal með hagsmunaaðilum þar
sem gerð jarðganga í gegnum Reyn-
isfjall og gerð láglendisvegar hefur
verið reifuð. M.a. hefur verið sagt frá
reynslunni af rekstri Hvalfjarðar-
ganga. Einar Freyr Elínarson oddviti
kvaðst vona að frekari fundahöld um
málið gætu orðið á næstunni. Hann
tók fram að málið væri ekki komið á
það stig að farið væri að formfesta
hugmyndir eða leita fjárfesta.
Í yfirliti um innihald samgöngu-
áætlunar, sem samþykkt var í ríkis-
stjórn í síðustu viku, kom fram að
hringvegur um Mýrdal og jarðgöng
um Reynisfjall væru sett á 2.-3. tíma-
bil áætlunarinnar. Verkefnið er upp á
5,3 milljarða króna. Þar sagði að leit-
að yrði leiða til að fjármagna verk-
efnið í samstarfi við einkaaðila.
„Samgönguráðherra hefur ítrekað
nefnt að hann sjái fyrir sér að þetta
verkefni geti hentað vel í einkafram-
kvæmd. Við sjáum ekkert því að van-
búnaði að ráðist verði í þessar fram-
kvæmdir á 1. tímabili samgöngu-
áætlunar, ef í þetta fást áhugasamir
fjárfestar,“ sagði Einar. „Umferðar-
aukningin um þjóðveginn í Mýrdal
hefur verið ótrúlega mikil. Ég tel að
hún hafi verið í mesta lagi hér, miðað
við aðra vegi á landinu. Hér fara um-
ferðartölur ítrekað fram úr t.d.
Grindavíkurvegi og eru jafnvel ívið
hærri en við Gullfoss og Geysi. Við er-
um á svæði þar sem hótel og gisti-
heimili eru fullbókuð út október, mikil
nýting yfir veturinn og eru svo aftur
orðin fullbókuð í febrúar og mars. Það
er frábært að við séum með sam-
gönguráðherra sem skilur þörfina
fyrir bættar samgöngur hjá okkur.
Kerfið verður að vera svo sveigjan-
legt að það geti brugðist við þessari
miklu umferðaraukningu.“
Myndi spara mikinn akstur
Láglendisvegur meðfram Dyrhóla-
ósi og göng í gegnum Reynisfjall
myndu stytta leiðina til Víkur um þrjá
kílómetra. Um þriðjungur bíla ekur
nú að Reynisfjöru og aftur upp á
hringveg. Þeir tíu kílómetrar myndu
einnig sparast með breyttu vegstæði.
Reiknað hefur verið út að aksturs-
sparnaður vegna breytts vegstæðis
næmi um einum milljarði á ári. Einn-
ig yrði rutt úr vegi einni helstu hindr-
uninni á Suðurlandsvegi frá Hellis-
heiði og austur á firði; Gatnabrún
undir Reynisfjalli. Einar sagði að
ítrekað hefði þurft að loka veginum
þar á veturna. Þar hefðu líka oft orðið
slys og Gatnabrún væri talin ein af
fimm hættulegustu beygjum á hring-
veginum.
Einar sagði að fara þyrfti í fram-
kvæmdirnar sem allra fyrst. „Við
munum beita okkur fyrir því að þessi
framkvæmd verði að veruleika. Við
teljum að hægt sé að fara í hana á
skömmum tíma sé vel haldið á spöð-
unum.“
Einhugur meðal heimamanna
Einhugur ríkir í sveitarstjórn Mýr-
dalshrepps um gerð láglendisvegar-
ins og jarðganga í gegnum Reynisfjall
til að bæta vegtengingu Víkur í Mýr-
dal til vesturs, að sögn Einars. Hann
sagði að göng í gegnum Reynisfjall
hefði verið stærsta málið í sveitar-
stjórnarkosningunum 2010. Þá hefði
það hlotið víðtækan stuðning kjós-
enda.
Vinir vegfarandans í Mýrdals-
hreppi er félagsskapur áhugamanna
um bættar samgöngur og umferðar-
öryggi í hreppnum. Samtökin eru
með síðu á Facebook. Þau benda
meðal annars á nauðsyn þess að tvö-
falda brúna yfir Jökulsá á Sólheima-
sandi. Þá þrýsta þau á um að lagður
verði láglendisvegur með göngum í
gegnum Reynisfjall, eins og gert er
ráð fyrir í aðal- og deiliskipulagi Mýr-
dalshrepps.
Mýrdælingar vilja fá jarðgöng
Rætt um jarðgangagerð í gegnum Reynisfjall Oddviti vill að framkvæmdinni verði flýtt Gríðar-
mikil aukning umferðar um Mýrdal Göng og nýr vegur myndu spara mikinn akstur á hverju ári
Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson
Reynisfjall Láglendisvegur á að liggja með Dyrhólaósi til vinstri og svo komi göng í gegnum fjallið til Víkur.