Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 18

Morgunblaðið - 26.09.2018, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Rússneskalyfjaeft-irlitið rækti hlutverk sitt um árabil með mjög sérstökum hætti. Eftirlit þess snerist um að fylgjast með því með fulltingi rússneskra stjórnvalda að rússneskir íþróttamenn tækju örugglega lyf til þess að bæta frammi- stöðu sína og passa upp á að það gætu þeir gert óáreittir af þeim sem eru þeirrar hyggju að lyfjaeftirlit snúist um að koma í veg fyrir að íþrótta- menn neyti slíkra lyfja til þess að fá forskot á keppi- nauta sína. Á endanum var hin óhefðbundna eftirlits- starfsemi afhjúpuð. Árið 2015 setti Alþjóða- lyfjaeftirlitsstofnunin (WADA) rússneska lyfjaeftir- litið í bann og setti margvís- leg skilyrði fyrir því að það hlyti náð fyrir augum þess á ný. Í maí var slegið af kröf- unum og í liðinni viku komst WADA að þeirri niðurstöðu að Rússar væru orðnir trausts verðir á ný og ákvað að aflétta banninu. Þessu fögnuðu Rússar og sögðust hafa lagt gríðarmikið á sig til að bæta ráð sitt. Aðrir voru ekki jafn hrifnir. Meira að segja vara- forseta WADA, Norðmann- inum Lindu Helleland, var nóg boðið og sagði að svörtum skugga hefði verið varpað yfir trúverðugleika lyfjaeftirlits. Fyrrverandi framkvæmda- stjóri WADA, David Howman, lýsti einnig yfir vonbrigðum. Ákveðið hefði ver- ið að víkja frá skilyrðum, sem hefðu verið ákveð- in að rækilega yfirlögðu ráði. Birgir Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands, brást einnig við. Í svari við fyrirspurn mbl.is á mánudag sagði hann að WADA hefði gefið eftir í mál- inu og sýnt „slæmt fordæmi“. Svindlið í Rússlandi hefði ver- ið á „það sturluðum mæli- kvarða“ að stundum áttaði fólk sig ekki á hve „súrreal- ískt það var“. Birgir benti á að margt hreint íþróttafólk, sem hefði lagt allt undir á sín- um ferli hefði misst af sínum augnablikum vegna þess að aðrir einstaklingar hefðu svindlað á því. „Vinnan okkar snýst meðal annars um að reyna að koma í veg fyrir að slíkt komi fyrir, og þá í rauntíma, en þegar lyfjamisferli er ríkisstyrkt og kemur í ljós löngu síðar eins og líkur eru því miður á, þá er tjónið óbætanlegt og lág- markskrafan er sú að aðilar uppfylli skilyrðin sem þeir gengust undir eftir að upp um það komst,“ sagði Birgir. Þetta eru orð að sönnu. Rússneska lyfjaeftirlitið olli markvisst gríðarlegu tjóni og það er ótækt að það fái af- sláttarmiða til að geta hafið störf á ný. Rússneska lyfjaeft- irlitið stundaði stór- fellt svindl um árabil og fær nú starfsleyfi á ný eftir að slegið var af kröfum} Hæpin ákvörðun Umræður umlosun gróðurhúsaloft- tegunda, sem flestir eru sam- mála um að æski- legt sé að draga úr, eru oft á villigötum. Misskilningur ræður þar án efa mestu þó að ekki sé loku fyrir það skotið að einhverjir viti betur. Eitt af því sem stundum heyrist er að bílar, jafnvel bara einkabíllinn, standi fyrir helmingi af þeirri losun sem frá Íslandi stafar. Þetta er fjarstæðukennt. Á vef Um- hverfisstofnunar má til dæm- is sjá að allar vegasam- göngur, þar með taldar rútur og flutningabílar, losa helm- ing þess sem flokkað er sem orka, eða orkugeiri. Sá geiri er hins vegar aðeins lítill hluti af losuninni. Sé losun frá landnotkun sleppt, sem er vitaskuld vafasamt að gera enda segir það að- eins lítinn hluta sögunnar, þá er orkugeirinn með 40% af þeirri heild. Samkvæmt þessu mætti segja að vega- samgöngur væru með 20% heildarlosunarinnar. En þegar horft er til þess að landnotkunin er með tæp 70% af heildarlosuninni, og er þá til dæmis horft til fram- ræsts lands, er augljóst að vegasamgöngur eru aðeins með um 6% af heildarlosun- inni á Íslandi. Einkabíllinn er svo vita- skuld aðeins með hluta af þeirri losun. Það er mikilvægt þegar rætt er um þessi mál, ekki síst þegar umræður eru uppi um verulega íþyngjandi að- gerðir til að sporna við losun, að réttar staðreyndir séu lagðar til grundvallar. Staðreyndir skipta máli, líka þegar rætt er um loftslagsmál} Losaralegt tal um losun Þ að er frábært að heimsækja ís- lenska framhaldsskóla. Á ferð- um mínum undanfarna mánuði hef ég komið inn í ófáa slíka og hitt þar metnaðarfullt skólafólk og öfluga nemendur. Þar er unnið geysilega fjölbreytt og mikilvægt uppbyggingarstarf alla daga. Framhaldsskólastigið er brúin milli bernskunnar og fullorðinsáranna bæði hvað varðar nám og þroska. Á fjárlögum þessa árs kom inn umtalsverð hækkun framlaga til framhaldsskólanna, alls um 1,2 milljarðar kr., og í nýju frumvarpi til fjárlaga ársins 2019 sést að sú fjárveiting til skólanna mun halda sér á næsta ári. Heildar- útgjöld til framhaldsskólastigsins eru áætluð tæpir 33 milljarðar kr. á næsta ári en þar undir er rekstur á yfir 30 skólum úti um allt land. Í þessum skólum eru um 18.000 nemendur. Auknir fjármunir sem runnið hafa til skólanna að undanförnu gera þeim kleift að efla sitt skólastarf enn frekar, meðal annars með því að bæta námsframboð, styrkja stoðþjón- ustu og endurnýja búnað og kennslutæki. Forgangsröðun í verki Fjárlagafrumvarp næsta árs ber þess merki að ríkis- stjórnin forgangsraðar í þágu verk-, iðn- og starfsnáms. Við viljum að nemendur í öllum landshlutum hafi aðgengi að fjölbreyttu starfsnámi, ekki síður en bóknámi, sem upp- fyllir kröfur næsta skólastigs og atvinnulífsins. Í fjárlaga- frumvarpinu er gert ráð fyrir 224 milljóna kr. hækkun til reksturs framhaldsskóla og er lögð sérstök áhersla á að hækka verð reikniflokka starfs- og verknáms. Einnig eru framlög tryggð til að efla kennsluinnviði fyrir verk- og starfs- nám, t.d. bætta verknámsaðstöðu í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og Borgarholtsskóla. Enn fremur er unnið að þróun rafrænna ferilbóka fyrir nemendur í starfsnámi og einföldun í skipulagi námsins. Það er mikilvægt að hver og einn nemandi geti fundið nám við sitt hæfi. Slíkt eykur ekki aðeins ánægju nemenda heldur dregur einnig úr líkum á brotthvarfi. Umfangsmikil verkefni sem við vinnum að á framhaldsskólastiginu eru með- al annars að sporna gegn brotthvarfi, stuðla að bættri líðan nemenda og styðja betur við nem- endur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Á réttri leið Á undanförnum mánuðum höfum við séð jákvæð teikn á lofti í menntamálum. Nemendum sem innritast á ákveðnar verk- eða starfsnámsbrautir framhaldsskóla fjölgaði umtalsvert í haust, eða hlutfallslega um 33% á milli ára. Við viljum halda áfram á þessari vegferð og sækja fram fyrir allt menntakerfið okkar. Það mun skila sér í ánægðari nemendum og samkeppnishæfara hag- kerfi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Efling iðnnáms á Íslandi Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lagt er til að sameinaprestaköll á sjö stöðum álandinu á næsta ári sam-kvæmt tillögum sem yfir- stjórn kirkjunnar hefur sent til umsagnar sóknarnefnda og fleiri. Málið verður tekið til umfjöllunar á kirkjuþingi í nóvember næstkom- andi en framvindan ræðst talsvert af því hver sjónarmið og undir- tektir í héraði verða. Raunar eru tillögurnar nú hluti af stærra máli; hugmyndum biskupafundar um breytta skipan prestakalla á land- inu öllu. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að svonefnd einmennings- brauð leggist flest af í fyllingu tím- ans. Meginreglan verður sú að í hverju kalli verði þrír þjónandi prestar; þar með talinn sóknar- prestur, sem hefur eins konar verkstjórn og leiðtogahlutverk með höndum auk annarra starfa. Prest- ur er hins vegar sá sem sinnir al- mennri þjónustu. Sérhæfing meiri og starfsálag jafnara Að sameina prestaköll fylgja ýmsir kostir, segir í greinargerð biskupafundar. Slíkt feli meðal annars í sér að fólk á hverjum stað fái aðgang að fleiri prestum, sem svo geti sérhæft sig í störfum. Hverju prestakalli geta svo tilheyrt nokkrar sóknir og skipan þeirra verður óbreytt samkvæmt þeirri stefnumótun sem fyrir liggur. Þá er nefnt að þjónustubyrði og álag í starfi presta verði jafnari með þessu fyrirkomulagi. Tillögurnar sem fyrirhugað er að leggja fram á kirkjuþingi eru eftirfarandi: Eyrarbakka-, Hvera- gerðis-, Selfoss- og Þorlákshafnar- prestaköll sameinist í Árborgar- og Ölfusprestakall með fimm prestum; Bústaða- og Grensásprestaköll í Reykjavík sameinist í eitt Foss- vogsprestakall með þremur prest- um; Borgar-, Hvanneyrar-, Reyk- holts- og Stafholtsprestaköll í Borgarfirði sameinist í eitt Borgar- fjarðarprestakall. Þar yrðu prest- arnir fjórir; Reykhóla- og Hólma- víkurprestakall verði Breiða- fjarðar- og Strandaprestakall með tveimur prestum. Akureyrar- og Laugalandsprestakall í Eyja- fjarðarsveit sameinist í Eyja- fjarðarprestakall. Þar yrðu þrír prestar. Skinnastaðarprestakall í Öxarfirði og Langa-nesprestakall með sitjandi presti á Þórshöfn sameinist í eitt prestakall með tveimur þjónandi prestum. Þá er lagt til að Djúpavogs-, Eski- fjarðar-, Heydala-, Kolfreyjustaðar- og Norðfjarðarprestakall í Fjarða- byggð sameinist í eitt Austfjarða- prestakall með fimm prestum. Sameining á Suðurnesjum Á framangreindum stöðum liggur landið stundum þannig að sitjandi prestar verða sjötugir á næsta ári ellegar að fimm ára skip- unartíma er að ljúka, og verða því að láta af störfum, og slíkt skapar svigrúm til breytinga. Annars stað- ar, þar sem lengra kann að vera í starfslok presta, kæmi sameining prestakalla til framkvæmda síðar. Þar má nefna Hruna- og Skálholts- prestaköll í uppsveitum Árnes- sýslu, í framtíðinni yrðu þau sam- einuð og þá munu tveir prestar sinna fjórtán sóknum. Á Suður- nesjum yrðu svo fjögur prestaköll sameinuð í eitt; Grindavík, Njarð- vík, Keflavík og Útskálar í Garði. Einnig eru hugmyndir um að sam- eina þrjú prestaköll í Hafnarfirði í eitt. „Með stækkun prestakalla hyggst þjóðkirkjan ná enn frekar því meginmarkmiði sínu að efla boðun fagnaðarerindisins í orði og verki,“ segir í greinargerð biskupa- fundar. Er þar minnt á þá megin- reglu að 5.000 manns séu á bak við hvert embætti prests sem þiggur laun sín frá ríkinu, en breytt skip- an prestakalla tæki mið af því. Víðtæk sameining prestakalla í skoðun Morgunblaðið/Ómar Akureyrarkirkja Til greina kemur að sameina Akureyrar- og Lauga- landsprestakall, en það síðarnefnda spannar sveitirnar sunnan Akureyrar. „Ég er hlynnt sam- einingu prestakalla að því gefnu að slíkt bæti þjónustu við sókna- börn og sé kristnihaldi til fram- dráttar,“ segir sr. Ninna Sif Svavars- dóttir, formaður Prestafélags Íslands. Hún segir tillögurnar um sameiningu prestakalla ekki hafa verið ræddar form- lega á vettvangi félagsins en almennt eigi þær þó að geta bætt starfsskilyrði presta. Sjálf er sr. Ninna Sif prestur í Sel- fossprestakalli en býr í Hvera- gerði, á svæði þar sem hug- myndir eru um að sameina fjögur prestaköll í eitt. „Fólk sem býr á þessu svæði er vant því að sækja þjónustu milli staða; skóla, verslanir og ann- að. Varðandi sameiningu prestakalla er þá að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að áfram verði boðið upp á helgihald og safnaðarstarf í öllum sóknum á svæðinu,“ segir formaður PÍ. Bætir starfs- skilyrðin FORMAÐUR PÍ JÁKVÆÐ Ninna Sif Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.