Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 245. tölublað 106. árgangur
ELDSNEYTIS-
MARKAÐUR Á
TÍMAMÓTUM
SIGURJÓN OG
SAMFERÐA-
MENN
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
30 ÁRA AFMÆLI SAFNS 64 SÉRBLAÐ 8 SÍÐURVIÐSKIPTAMOGGI
Bergþór Óla-
son, formaður
umhverfis- og
samgöngu-
nefndar Alþing-
is, segir nefndina
hafa óskað eftir
því að fulltrúi
samgöngu- og
sveitarstjórnar-
ráðuneytisins
mæti á fund nefndarinnar í dag og
svari spurningum um málefni Sam-
göngustofu. Nefndin ræddi í fyrra-
dag áfangaskýrslu starfshóps um
starfshætti Samgöngustofu, sem
skilað var í október 2017. Í skýrsl-
unni kom fram alvarleg gagnrýni á
innri starfsemi Samgöngustofu, en
greint var frá því í Morgunblaðinu í
september að ekki hefði farið mikið
fyrir vinnu innan ráðuneytisins
með niðurstöður skýrslunnar. »24
Fulltrúi ráðuneytis
kallaður fyrir nefnd
Bergþór Ólason
Bandarískir landgönguliðar voru í gær við æfingar á öryggis-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli. Er æfingin forsmekkur þess sem
koma skal í Trident Juncture, umfangsmestu heræfingu Atl-
antshafsbandalagsins frá árinu 2015, sem haldin verður á
Norður-Atlantshafi og í Noregi. Landgönguliðarnir voru fluttir
með þyrlum frá bandaríska herskipinu USS Iwo Jima, sem þá
lá úti af Reykjanesi. Stórfylkisforingi segir að afar mikilvægt sé
að æfa flutning á hermönnum við mismunandi aðstæður og
Ísland bjóði upp á frábært tækifæri til æfinga. »16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þungvopnaðir landgönguliðar komu til Keflavíkur með þyrlum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Lýðræðisgáttir Reykjavíkurborgar
á netinu eru í lamasessi. Gjörbreyta
þarf verkefnum sem borgin hefur
hrundið af stað á undanförnum ár-
um til að auka samráð og þátttöku
borgaranna. Þetta er niðurstaða
ráðgjafafyrirtækisins Kolibri sem
borgin fékk til þess að gera úttekt
og veita ráðgjöf varðandi lýðræð-
isgáttir borgarinnar.
Skýrsla Kolibri var kynnt á síð-
asta fundi mannréttinda- og lýð-
ræðisráðs borgarinnar en af-
greiðslu hennar var frestað.
Í skýrslunni eru tekin mörg
dæmi um brotalamir í kerfunum.
Sem dæmi er tekið að hugmynda-
fræðin á bak við Ábendingar/Borg-
arlandið, Þín rödd í ráðum borgar-
innar og Hverfið mitt sé of óljós og
óútskýrð og því sendi notendur
ábendingar og hugmyndir í rangar
gáttir. Eitt verkefni sem heitir
þremur nöfnum (Ábendingar,
Borgarlandið og Láttu vita) sé
keyrt á vefsíðu sem var ekki not-
endavæn árið 2008 og enn síður tíu
árum síðar. Ekkert efni sé til og
engar upplýsingar séu gefnar um
ábendingar eða hugmyndir íbúa
sem hafa verið samþykktar í gegn-
um íbúalýðræðisverkefni og farið í
framkvæmd í þau 10 ár sem sum
verkefnin hafa verið starfrækt.
Engin dæmi sýni fram á virði íbúa-
lýðræðis fyrir íbúa eða Reykjavík-
urborg á vefjunum.
Fram kemur í skýrslunni að til
þessa hafi engin samvinna verið á
milli þeirra starfsmanna Reykja-
víkurborgar sem hafa borið ábyrgð
á hverju verkefni fyrir sig. » 10
Miklar brotalamir í sam-
ráðskerfum borgarinnar
Ný úttekt sýnir lýðræðisgáttirnar á netinu í lamasessi
„Á meðan mér
finnst ég hafa
eitthvað fram að
færa sem rithöf-
undur og fæ hug-
myndir til þess
að vinna úr held
ég áfram,“ segir
Arnaldur Indr-
iðason rithöf-
undur.
Ný bók hans er
sú 22. í röðinni á jafn mörgum árum
og nefnist Stúlkan hjá brúnni. Búist
er við því að Arnaldur rjúfi 500 þús-
und eintaka múrinn í sölu hér á
landi fljótlega eftir að bókin kemur
út í byrjun nóvember. Í viðtali við
Morgunblaðið í dag rifjar Arnaldur
upp að þegar hann hóf ferilinn hafi
ekki verið litið á glæpasögur sem
bókmenntir. Í dag séu þær blómstr-
andi bókmenntagrein »18
Rýfur 500 þúsund
eintaka múrinn
Arnaldur
Indriðason
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF RIEDELGLÖSUM