Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
100x70x85
Einnig 120 - 140
100x70x85
Einnig 120 - 140 - 160
60x70x95
Einnig 70 - 80 - 100 - 120
Ítölsk stál vinnuborð með
eða án án handlaugar
Ryðfrytt burstað stál l Hilla að
neðanlStillanlegir fæturl
Auðvelt að setja samanl Frístan-
dandi vinnuborð
5
1
6
8
#
Draghálsi 4
110 Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
Ryðfrí stál vinnuborð-
og fráleggsborð
fyrir atvinnueldhús
Óli Björn Kárason fjallaði ummálfrelsi og hatursorðræðu
í grein hér í blaðinu í gær. Þar
kom hann inn á nýlegt mál há-
skólakennara og benti líka á um-
mæli annarra há-
skólakennara sem
hefðu ekki kallað á
viðbrögð háskóla-
yfirvalda.
Til dæmis þetta:„Í ágúst 2009
ræddi prófessor í
stjórnmálafræðum við blaða-
mann og kallaði hóp sjálfstæðis-
manna skrímsladeild. Í þeirri
deild voru þeir sem töldu rangt
að íslenskir skattgreiðendur
yrðu látnir axla skuldir Lands-
bankans vegna Icesave-reikninga
í Bretlandi og Hollandi. Í huga
fræðimannsins var rétt að skil-
greina andstæðinga Icesave-
samninganna sem einhvers kon-
ar óvætti eða skrímsli. Viðkom-
andi hefur ekki legið undir
ásökunum um hatursorðræðu.
Sitjandi formaður eins stjórn-arandstöðuflokksins hefur
kallað fyrrverandi flokksbræður
og -systur svartstakka – líkt
þeim við fasista og ofbeldismenn.
Fyrr á þessu ári gekk hagfræ-
ðiprófessor enn lengra og líkti
sjálfstæðismönnum við nasista!
Yfirmenn Háskóla Íslands líta
ekki á samlíkingu við morðóða
hunda sem hatursorðræðu.“
Svo virðist sem haturs-orðræðan eigi ekki við þeg-
ar vinstrimenn tjá sig um hægri-
menn.
Þetta er meðal þess sem bend-ir til að sumir yfirlýstir
áhugamenn um málfrelsi telji að
það megi aðeins nota til að tjá
tilteknar skoðanir en aðrar alls
ekki.
Óli Björn
Kárason
Málfrelsið og
hatursorðræðan
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Einungis tveir aðilar hafa fengið
skattskrá allra Íslendinga yfir 18 ára
afhenta frá ríkisskattstjóra og koma
þannig til greina sem aðilarnar á bak
við vefsíðuna tekjur.is þar sem sjá
má upplýsingar
um tekjur og
skattaupplýsing-
ar allra Íslend-
inga gegn áskrift-
argjaldi.
„Samkvæmt þeim
upplýsingum sem
ég hef frá starfs-
mönnum ríkis-
skattstjóra þá
hafa bara tveir
aðilar fengið
þetta á pappír,“ sagði Snorri Olsen
ríkisskattstjóri í samtali við mbl.is.
Í frétt Morgunblaðsins í gær sagði
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmað-
ur tekna.is, að umbjóðandi sinn hefði
fengið gögnin afhent frá ríkisskatt-
stjóra, komið þeim á rafrænt form og
síðan skilað þeim aftur.
Spurður um hvaða tveir aðilar
þetta væru sagði Snorri að ekki væri
hægt að gefa það upp. „Nei, við
myndum ekki gera það. Almennt er-
um við ekki að gefa upp hverjir eru
með erindi hjá ríkisskattstjóra.“
Þá er einnig möguleiki á að gögnin
hafi farið frá þessum aðilum til ein-
hvers annars. „Ég býst við því að Vil-
hjálmur sé að segja satt og þá hafi
annar hvor af þessum aðilum fengið
þetta hjá okkur á pappír og komið
þessu áfram til þessa aðila eða stend-
ur sjálfur á bak við þetta,“ sagði
Snorri.
Hann sagði að í gegnum tíðina
hefði embættið alltaf hafnað að af-
henda skattskrá Íslendinga í öðru
formi en á pappír. „Við höfum afhent
þetta á pappír til aðila sem hafa lýst
því yfir að þeir ætli að gefa þetta út.
Við höfum talið að það sé heimilt
samkvæmt lögunum.“
Hann benti á að margt hefði
breyst frá því að lögin voru sett og
nú væri komið annað birtingarform.
„Þegar þessi lög voru sett gáfu menn
út hljómplötur á vínyl og bækur á
pappír, en nú er komið allt annað
birtingarform.“
Þegar blaðamaður spurði hvort
hann gæti fengið eintak af skattskrá
allra Íslendinga svaraði Snorri að
samkvæmt eldri framkvæmd væri
það líklegt. „Nú er málið komið á
annað plan og þú yrðir væntanlega
spurður mun nánar út í það hvað þú
ætlaðir að gera við skrána.“
Tveir hafa feng-
ið skattskrána
Gögnin gætu hafa borist þriðja aðila
Snorri
Olsen
„Nei, ég skálaði ekki við hana, ég hitti
hana ekki einu sinni,“ segir Halldóra
Mogensen, þingmaður Pírata, um
ummæli Ásmundar Friðrikssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem
féllu undir liðnum störf þingsins við
upphaf þingfundar í gær. Þar sagði
Ásmundur að Píratar hefðu ekki ver-
ið samkvæmir sjálfum sér gagnvart
Piu Kjærsgaard, forseta danska
þingsins, þar sem þeir hefðu ekki
veigrað sér við að „skála við Piu
Kjærsgaard og sitja undir ræðum
hennar“ á sérstakri fullveldishátíð
sem haldin var í Kaupmannahöfn í
síðustu viku, þrátt fyrir að Píratar
hefðu sniðgengið fullveldishátíðina í
sumar vegna nærveru hennar.
Halldóra var fulltrúi Pírata í sendi-
nefnd Alþingis sem var viðstödd há-
tíðina. Hún segist hafa tekið þátt, þar
sem verið var að fagna íslenskri list í
tilefni fullveldisafmælisins. „Þetta var
sýning í dönsku óperunni með ís-
lenskri list,“ segir
Halldóra og nefn-
ir meðal annars að
danska sinfónían
hafi þar spilað lög
eftir íslenska tón-
smiði.
Aðspurð hvort
hún hafi setið
undir ræðu Piu
Kjærsgaard segir
Halldóra að
Kjærsgaard hafi flutt ræðu, en að
hún hafi ekki getað fylgst með efni
hennar þar sem ræðan var á dönsku.
Hún bætir við að forsætisráðherra
Dana og forseti Íslands hafi líka flutt
ræður á samkomunni.
Halldóra telur að hér sé ekki um
misræmi að ræða. „Ég tel ekki hægt
að bera þessi mál saman. Það er eitt
að bjóða erlendum fyrirmanni að
ávarpa Alþingi í fyrsta sinn og það sé
Pia og að fara á fagnað þar sem verið
er að heiðra íslenska list á 100 ára af-
mæli fullveldisins, þar sem Pia er
einn ræðumanna. Þetta eru tveir ólík-
ir hlutir,“ segir Halldóra. sgs@mbl.is
Segist ekki hafa skálað við Kjærsgaard
Þingmaður Pírata hlýddi á Piu flytja ræðu
Halldóra
Mogensen