Morgunblaðið - 18.10.2018, Síða 10
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Gjörbreyta þarf verkefnum sem
Reykjavíkurborg hefur hrundið af
stað á undanförnum árum til að
auka samráð og þátttöku borgar-
anna. Þetta er niðurstaða ráðgjafa-
fyrirtækisins Kolibri sem borgin
fékk til þess að gera úttekt og veita
ráðgjöf varðandi lýðræðisgáttir
borgarinnar. Skýrsla Kolibri var
kynnt á síðasta fundi mannréttinda-
og lýðræðisráðs borgarinnar en af-
greiðslu hennar var frestað.
„Heilt yfir litið heldur Reykjavík-
urborg úti metnaðarfullum verk-
efnum til að auka samráð við borg-
arana,“ segir í niðurstöðum Kolibri.
Á sama tíma einkennist verkefnin
af því að hafa byrjað á góðum stað
en síðar ekki fengið þá athygli og
þær viðbætur eða þróun sem þyrfti.
Snertifletir á úreltu viðmóti
Í sumum tilfellum séu snertifletir
við borgarana í mjög úreltu viðmóti
og taka ekki mið af þeim tækni- og
samfélagsbreytingum sem hafa átt
sér stað síðustu 10 ár. Í öðrum
dæmum séu kerfi, sem eru hönnuð
með eitt markmið í huga, nýtt í eitt-
hvað annað seinna meir. Tilgangur
verkefna sé ekki skýr í huga borg-
arans og ferli og samskiptum við
borgarann í kringum innsendar
hugmyndir eða ábendingar ábóta-
vant. Helstu niðurstöður greining-
arinnar flokkar Kolibri svo: 1. Lítið
samræmi eða samtenging milli
verkefna. 2. Óskýr hlutverk og
markmið verkefna. 3. Óaðgengilegt
viðmót 4. Ógagnsæi í ferli og fram-
kvæmd. 5. Ekki sýnt fram á virði
verkefnanna fyrir Reykjavíkurborg
og notendur.
Í skýrslunni eru tekin mörg
dæmi um brotalamir í kerfunum.
Sem dæmi er tekið að hugmynda-
fræðin á bakvið Ábendingar/
Borgarlandið, Þín rödd í ráðum
borgarinnar og Hverfið mitt sé of
óljós og óútskýrð og því sendi not-
endur ábendingar og hugmyndir í
rangar gáttir. Eitt verkefni sem
heitir þremur nöfnum (Ábendingar,
Borgarlandið og Láttu vita) sé
keyrt á vefsíðu sem var ekki not-
endavæn árið 2008 og enn síður tíu
árum síðar. Ekkert efni sé til og
engar upplýsingar séu gefnar um
ábendingar eða hugmyndir íbúa
sem hafa verið samþykktar í gegn-
um íbúalýðræðisverkefni og farið í
framkvæmd í þau 10 ár sem sum
verkefnin hafa verið starfrækt.
Engin dæmi sýni fram á virði íbúa-
lýðræðis fyrir íbúa eða Reykjavík-
urborg á vefjunum.
Kolibri leggur til að verkefnin
verði sameinuð á einum stað undir
þremur flokkum: ábendingar, hug-
myndir fyrir borgin að framkvæma,
og samstarfsverkefni borgar og
borgaranna. Reykjavíkurborg sjái
um ritstýringu á efni sem kemur
inn í gegnum verkefnin og komi
þeim á rétta staði.
Fram kemur í skýrslunni að til
þessa hafi engin samvinna verið á
milli þeirra starfsmanna Reykjavík-
urborgar sem hafa borið ábyrgð á
hverju verkefni fyrir sig.
Morgunblaðið/Eggert
Borgarstjórn í vikunni Meirihlutinn kveðst leggja áherslu á að notandinn sé í forgangi í allri nálgun á þjónustu.
Lýðsræðisgáttir
eru í lamasessi
Reykjavíkurborg sameini öll verkefnin á einum stað
Rafvædd, bætt og einfölduð
þjónusta er markmið nýrrar
þjónustustefnu sem borgar-
stjórn samþykkti að innleiða á
fundi sínum í fyrradag. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu
frá Reykjavíkurborg.
„Tillaga meirihluta borgar-
stjórnar leggur sérstaka
áherslu á að notandinn sé í for-
gangi í allri nálgun á þjónustu
hjá borginni. Til þess að ná
fram því markmiði verður unn-
ið með rafrænar lausnir, fækk-
un skrefa og einföldun ferla í
allri þjónustu borgarinnar,“
segir þar.
Rafrænar lausnir sem ein-
falda umsóknarferli í skipulags-
og byggingarmálum, skóla- og
frístundamálum, velferðar-
málum og öðrum þáttum sem
koma beint við íbúa og at-
vinnulíf séu meðal þess sem til
standi að innleiða.
Næsta skref sé að stofna
stýrihóp skipaðan formanni
borgarráðs og formanni mann-
réttinda- og lýðræðisráðs, auk
formanna fagráða, til að styðja
við verkefnið og móta nánar
forgangsröðun verkefna.
Notandinn
í forgangi
BORGARSTJÓRN
Heildarmagn loðnu í leiðangri Haf-
rannsóknastofnunar í september
mældist 337 þúsund tonn og þar af
var metin stærð veiðistofns vertíðar-
innar 2018/2019 um 238 þúsund tonn.
Fram hefur komið að í samræmi við
aflareglu gefur þessi niðurstaða ekki
tilefni til þess að mæla með upphafs-
kvóta, en stærð stofnsins verður
mæld að nýju í janúar. Þá mældust
einungis tæplega 11 milljarðar eða
99 þúsund tonn af ungloðnu í leið-
angrinum en samkvæmt aflareglu
þarf yfir 50 milljarða til að mælt
verði með upphafsaflamarki fisk-
veiðiársins 2019/2020.
Bergmálsmælingar á stærð loðnu-
stofnsins fóru fram á rannsóknaskip-
unum Árna Friðrikssyni og Bjarna
Sæmundsyni auk uppsjávarskipsins
EROS 6.-27. september. Rannsókna-
svæðið náði frá landgrunninu við
A-Grænland frá um 75°00’N og suð-
vestur með landgrunnskanti Græn-
lands allt suður fyrir Hvarf, en auk
þess til Grænlandssunds, Íslandshafs
og hafsvæðisins vestan Jan Mayen
auk norðurmiða.
Samkvæmt frétt Hafrannsókna-
stofnunar fannst loðna víða á rann-
sóknasvæðinu. Ungloðna, sem mynd-
ar hrygningar- og veiðistofninn á
vertíðinni 2019/2020, var vestast og
sunnantil á svæðinu en eldri loðna
var mest áberandi út af Vestfjörðum
og norður með landgrunni Græn-
lands. Útbreiðsla loðnunnar var
mjög vestlæg, líkt og verið hefur
undanfarin ár. Þó var hærra hlutfall
hennar út af Vestfjörðum en verið
hefur síðastliðin ár en jafnframt
fannst kynþroska loðna nær Græn-
landi en áður hefur sést í sambæri-
legum leiðöngrum.
Gildandi aflaregla byggist á því að
skilja eftir 150 þúsund tonn til
hrygningar í mars 2019 með 95% lík-
um. Tekur aflareglan tillit til óvissu-
mats útreikninganna, vaxtar og nátt-
úrulegrar dánartölu loðnu, auk
afráns þorsks, ýsu og ufsa á loðnu.
aij@mbl.is
Lítið mældist bæði af
eldri og yngri loðnu
Loðna Mikil óvissa er með veiðar.
Notaðu
N1 punktana
Alltaf til staðar
...til að kaupa eldsneyti, gómsætan bita
og kaffibolla eða til að lækka verðið
á nýju dekkjunum enn meira.
Þú færð afslátt
og punkta
með N1 kortinu
N1 punktarnir eru inneign sem safnast hratt upp þegar
þú verslar á N1 og gildir einn punktur sem ein króna í öllum
viðskiptum við N1 um allt land. Ef þú ert ekki ennþá með
N1 kort þá sækirðu einfaldlega um eitt í hvelli á N1.is.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
5
6
5
4