Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 16
16 FRÉTTIR
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þær aðgerðir sem við sjáum hér
eru forsmekkur að mun stærri her-
æfingu sem haldin verður í Noregi
og munu þessir landgönguliðar einn-
ig æfa þar,“ segir Stephen M.
Neary, stórfylkisforingi hjá land-
gönguliði Bandaríkjahers, í samtali
við Morgunblaðið, en í gær æfðu um
120 bandarískir landgönguliðar á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Er þetta liður í Trident Juncture,
umfangsmestu æfingu Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, frá árinu 2015.
Munu um 40.000 hermenn og borg-
aralegir sérfræðingar frá yfir 30 að-
ildarríkjum bandalagsins og sam-
starfsríkjum æfa á Norður-
Atlantshafi og í Noregi á næstunni.
Hermennirnir sem hér æfðu á ör-
yggissvæðinu tilheyra 24. sveit land-
gönguliða, sem á ensku nefnist 24th
Marine Expeditionary Unit, og er
heimahöfn þeirra Lejeune-herstöðin
í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.
Fjölmiðlum gafst tækifæri til að
fylgjast með aðgerðum og var safn-
ast saman við lendingarsvæði á
Keflavíkurflugvelli þar sem komu
landgönguliðanna var beðið.
Frá lendingarsvæðinu mátti sjá
glitta í bandaríska herskipið USS
Iwo Jima. Er um að ræða eins konar
þyrluflugmóðurskip og er það sér-
útbúið til að flytja fjölmennt innrás-
arlið að landi með skjótum hætti.
Frá Iwo Jima var flogið með land-
gönguliðana í land með þyrlum af
gerðinni Sikorsky CH-53E Super
Stallion. Tæki þessi eru engin smá-
smíði, 30 metra löng og nokkuð yfir
15 tonn á þyngd. Hver þyrla getur
flutt 55 manna herflokk og útbúnað.
„Það er afar mikilvægt fyrir okk-
ur að geta æft flutning á hermönn-
um frá hafi við mismunandi að-
stæður. Ísland veitir okkur frábært
tækifæri til að æfa við kaldar að-
stæður í miklu roki – það er ekki
mikið um slíkt í Norður-Karólínu,“
segir Neary, en um leið og þyrlurnar
lentu, svo gott sem samtímis, hlupu
landgönguliðarnir út og tóku sér
varnarstöðu við lendingarsvæðið.
Þakklátir stjórnvöldum
Misca T. Geter undirofursti er
næstráðandi yfir 24. landgönguliða-
sveit. „Fyrsta verk landgöngulið-
anna er að setja upp öryggissvæði.
Þegar því er lokið er hægt að flytja
inn meira herlið, ef nauðsyn krefur,“
segir hún og bætir við að Banda-
ríkjaher sé mjög þakklátur stjórn-
völdum hér fyrir að hafa heimilað
æfingar á Íslandi. „Að æfa hér eykur
þekkingu á mismunandi aðstæðum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Risar Tvær þyrlur af gerðinni Sikorsky CH-53E Super Stallion sáu um að flytja landgönguliða til og frá öryggissvæðinu en þangað var flogið með þá frá þyrluflugmóðurskipinu USS Iwo Jima.
Landgönguliðar
á Reykjanesi
Herveldi Tvær vélar af gerðinni Bell Boeing MV-22 Osprey tóku einnig þátt, í fjarska er kanadísk herflutningavél.
Þungvopnaðir Landgönguliðarnir tóku sér varnarstöðu við lendingarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Smart haustfatnaður, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Um er að ræða rekstur og eignir gamalgróins
fyrirtækis sem framleiðir svalalokanir, sólstofur,
glugga og rennihurðir.
Áratuga löng reynsla og mikil verkefni framundan.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Svavarsson:
gunnar@kontakt.is
H
au
ku
r
10
.1
8
FRAMLEIÐSLU-
FYRIRTÆKI
til sölu