Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Byggðastofnun eignaðist farþega-
skipið Sailor á nauðungaruppboði
sem fram fór hjá sýslumanninum í
Stykkishólmi í fyrradag. Sailor hef-
ur verið notað til hvalaskoðunar frá
Reykjavík undanfarin ár. Skipið er
nú án haffæris og hefur legið við
bryggju í Reykjavík í sumar.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs K.
Ólafssonar sýslumanns var Byggða-
stofnun hæstbjóðandi með boð að
fjárhæð kr. 5.000.000.
Átti 48,8 milljóna kröfu
Byggðastofnun lýsti kröfu að fjár-
hæð kr. 48.888.763 vegna veðs sem
stofnunin átti á 1. veðrétti. Önnur
boð bárust ekki.
Björgvin Sævar Matthíasson,
Akranesi, lýsti kröfu vegna veð-
skuldabréfs á 2. veðrétti að fjárhæð
kr. 56.565.600 og Tollstjóri lýsti
kröfu vegna fjárnáms á 3. veðrétti að
fjárhæð kr. 4.759.479.
Sailor er stálskip, byggt í Skot-
landi 1979, og er 175 brúttótonn.
Farþegafjöldi er 120. Þinglýstur eig-
andi skipsins var AK 2854, en það fé-
lag var tekið til gjaldþrotaskipta í
sumar.
Skipið var keypt til landsins sum-
arið 2014. Skipið hét þá Jurasik
Park og hafði verið í siglingum milli
eyja við Skotland. Hingað komið var
það í fyrstu notað til hvalaskoðunar-
og sjóstangveiðiferða frá Akranesi.
Þegar skipið kom á íslenska skipa-
skrá fékk það nafnið Gullfoss. Upp-
haflegur eigandi þess, Sea Ranger
hf., hafði fengið einkarétt skráðan á
nafninu hjá Samgöngustofu 2014.
Eimskip var ósátt við þessa ákvörð-
un og taldi sig eiga nafnið. Eimskip
kærði til innanríkisráðuneytisins,
sem staðfesti ákvörðun Samgöngu-
stofu.
Það var svo árið 2016 að Eimskip
keypt skipsnafnið Gullfoss af ferða-
þjónustufyrirtækinu Reykjavík Sail-
ors ehf., sem hafði eignast skipið.
Það fékk nýtt nafn, Sailor.
Byggðastofnun eignast skip
Bauð fimm millj-
ónir í farþegaskipið
Sailor á uppboði
Morgunblaðið/sisi
Við bryggju Sailor (blámálaður) hefur ekki verið notaður til hvalaskoðunar í sumar og liggur við Grandabryggju.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Pétur Magnússon, formaður Sam-
taka fyrirtækja í velferðarþjónustu,
segir dagdvalarheimili á Íslandi ekki
vera nægjanlega
mörg til að mæta
fjölgandi hópi
eldri borgara hér
á landi. Tæplega
800 dagdvalar-
pláss eru víða um
landið en þó flest
á höfuðborgar-
svæðinu.
Hann segir það
einnig vera
áhyggjuefni að til
stendur skera niður fé til mála-
flokksins.
„Samkvæmt fjárlagafrumvarpi er
ætlunin að skera enn frekar niður
rekstrarfé dagdvalar, sem er
áhyggjuefni og okkur þykir skrýtið í
ljósi mikilvægi þessarar þjónustu.
Hún er tiltölulega ódýr og getur
seinkað sjúkrahúsinnlögnum og að
fólk flytji inn á hjúkrunarheimili,“
segir Pétur.
Hann segir að aðalmálið í þessu sé
lífsgæði þeirra sem um ræðir en það
að geta búið lengur heima hjá sér
hljóta að vera gríðarleg lífsgæði. En
dagdvöl er hugsuð fyrir eldra fólk
sem býr heima en þarf stuðning,
m.a. félagslegan stuðning. „Þetta
snýst um að fólk geti með þessu úr-
ræði búið lengur heima og fengið
meiri lífsgæði í sínu lífi,“ segir Pétur.
Gísli Jafetsson, framkvæmda-
stjóri Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni, segir dagdvalar-
heimili geta haft mikil áhrif á heilsu
aldraðra. „Meðan fólk er heima,
hvort sem það kýs að vera heima eða
bara kemst ekki að annars staðar, þá
er nauðsynlegt að það komist í dag-
þjálfun eða dagvistun til að viðhalda
líkamlegri og andlegri heilsu. Fá
næringarríkan mat, eflingu styrks
og annað slíkt,“ segir Gísli og bætir
við að aðstoð í akstri á slík heimili
skipti einnig máli.
Gæti losað um Landspítalann
Pétur bendir jafnframt á að um
þessar mundir séu allt að 100 aldr-
aðir fastir á Landspítalnum vegna
þess að ekki sé hægt að fá þjónustu
heim og engin hjúkrunarrými eru
laus. „Það er hægt að minnka þenn-
an hóp með því að vera með mark-
vissa dagdvalarstarfsemi og létta
þannig á Landspítalnum. Lífsgæði
þeirra sem eru heima yrðu líka
miklu meiri en að vera föst á spít-
alanum.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra mælti á þriðjudaginn fyrir
frumvarpi á Alþingi sem hefur það
að markmiði að jafna aðgang þeirra
sem þurfa á dagdvöl að halda, óháð
aldri. Snýr fruvmarpið einnig að for-
gangsröðun umsókna eftir þörfum
viðkomandi einstaklinga.
Spurður um þetta frumvarp segir
Pétur það vera ágætis mál en segir
að það þurfi að hafa aldursmismun
aldraðra í huga.. „Það þarf að taka
tillit til aldurs fólks og áhugamála.
Þeir sem eru yngri eru oft á öðrum
stað í lífinu heldur en þeir sem eru
eldri hvað varðar áhugamál, matar-
smekk og þess háttar. Við myndum
vilja að það yrði reynt að aldurs-
skipta þessu. Það er kannski erfitt í
framkvæmd en æskilegra að þeir
sem eru á svipuðum aldri verði
meira saman.“
Dagdvalarpláss mæta ekki þörfinni
Tæplega 800 dagdvalarpláss á Íslandi Mæta ekki þörfum vaxandi hóps eldri borgara Dagdval-
arheimili geta skipt sköpum fyrir andlega og líkamlega heilsu aldraðra Seinka sjúkrahúsinnlögnum
Morgunblaðið/Eggert
Eldri borgarar Félagslegur stuðningur í dagdvöl getur haft áhrif á andlega
heilsu aldraðra og seinkað innlögnum á sjúkrahús eða hjúkrunarheimili.
Pétur
Magnússon
Fasteignir
Grikk
eða GOTT?
599 kr.stk.
Grasker Halloween
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
F
IM
M
TU
DAGSLEIKU
R
•
M
O
RGUNBLAÐ
SI
N
S
•
FINNDU
HAPPATÖLUNA
Í BLAÐINU
– og þú gætir dottið
í lukkupottinn