Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 30

Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar og lyklabox. MIKIÐ ÚRVAL Ný vefvers lun brynja.i s Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Árleg íbúakosning um framkvæmdir í Reykjavík, Hverfið mitt, er nú haf- in. Borgarbúum gefst kostur á að kjósa á milli verkefna í sínu hverfi sem valin voru úr tillögum íbúa. Alls eru 450 milljónir króna til skiptanna og hefur þeim verið skipt milli hverfa borgarinnar eftir íbúafjölda. Þannig hafa íbúar í Vesturbæ úr 55 milljónum að spila, þeir sem búa í Hlíðunum fá 40 milljónir en íbúar Grafarvogs fá 60 milljónir svo dæmi séu tekin. Íbúar á Kjalarnesi fá hins vegar aðeins 14 milljónir króna. Hleðsluskápar fyrir snjalltæki Þau verkefni sem hægt er að velja á milli eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Mikið er um tillögur að upp- setningu á ruslatunnum, lagfæring- um á göngustígum, uppsetningu á hraðahindrunum og ýmiss konar af- þreyingu fyrir börn. Inni á milli eru þó sérstaklega áhugaverðar og jafn- vel nýstárlegar tillögur. Þannig er lagt til að settir verði upp hleðsluskápar fyrir snjalltæki í Breiðholti og íbúar í Grafarholti og Úlfársárdal geta kosið um að gerður verði strandblakvöllur í Leirdal. Þá geta íbúar í miðborg Reykjavíkur kosið um að fá „I Love Reykjavík“ skilti niðri í bæ. „Sambærilegt skilti er í öðrum stórborgum og er vinsælt hjá ferðamönnum, sem hrífast auð- veldlega af borginni, að taka mynd af sér af sér með skiltið í bak- grunni,“ segir í kynningu á þessari hugmynd. Miðborgarbúar geta einnig kosið um að sett verði upp snjalltæki við stóra strætóstoppi- stöð sem gefi þeim strætómiða sem tekur ákveðinn fjölda hnébeygja fyrir framan tækið. „Snjalltækið nemur hreyfingar fólks og mark- miðið er að hvetja fólk til líkams- ræktar,“ segir í tillögunni. Risastór snjallsprellikarl Íbúar í Hlíðunum geta kosið að gerð verði tjörn á Klambratúni. Í Breiðholti er svo að finna kannski frumlegustu tillöguna en hún á að verða að veruleika á grænu svæði í Bökkunum. Hún er svohljóðandi: „Verkefnið felur í sér að setja upp stærsta og jafnvel eina snjallsprel- likarl heims. Honum verði komið fyrir á hentugu grænu svæði en hann verður færanlegur svo hægt er að setja hann upp annars staðar. Settur verði upp 10-12 metra hár staur og sprellikarlinn festur tryggi- lega efst á hann. Í stað þess að fólk togi í spotta til að láta karlinn sprella verður hann forritaður þann- ig að fólk getur sent sms eða hringt í sérstakt símanúmer sprellikarlsins sem veifar þá höndum og fótum í einskærri gleði við mikla ánægju viðstaddra. Ágóðinn af símhringing- um myndi renna til góðgerðarmála.“ Kosningin fer fram á vefsíðunni kosning2018.reykjavik.is. Tjörn á Klambratúni og sprellikarl í Breiðholti  Áhugaverðar tillögur í íbúakosningunni Hverfið mitt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Klambratún Nýtt torg var reist nýlega á Klambratúni. Nú gæti verið gerð tjörn á túninu hljóti tillaga þess efnis brautargengi í íbúakosningu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Láglendisleiðin sem Vegagerðin hef- ur lengi unnið að, svokölluð Teigs- skógarleið (ÞH), kemur betur út en leiðin sem norsku sérfræðingarnir lögðu til, í öllum þeim þáttum sem Vegagerðin kannaði í frumathugun sinni. Á það sérstaklega við um kostn- að og framkvæmdatíma en einnig um styttingu vegalengda. Þær vísbend- ingar sem birtar eru um umferðarör- yggi og áhrif á umhverfið benda einn- ig til þess að norska leiðin sé verri en Teigsskógarleiðin. Þótt Vegagerðin noti sömu aðferðir við sína útfærslu á norsku leiðinni (A3) og hún notar við hönnun og und- irbúning annarra framkvæmda verð- ur að hafa ýmsa fyrirvara um þann samanburð sem Vegagerðin gerir og birtur er hér að ofan. Þannig hefur hvorki verið gert formlegt umferðar- öryggismat fyrir leið A3 né umhverf- ismat. Í áliti Skipulagsstofnunar á um- hverfisáhrifum mismunandi leiða sem Vegagerðin kannaði kom fram að Þ- H-leiðin væri í þeim flokki leiða sem væru líklegar til að hafa í för með sér verulega neikvæð umhverfisáhrif sem erfitt væri að draga úr með mót- vægisaðgerðum. Mælt var með jarð- gangaleiðinni, D2. Skipulagsstofnun taldi að allar leið- irnar sem þá voru til skoðunar hefðu jákvæð áhrif á nærsamfélagið og þau samfélög á sunnanverðum Vestfjörð- um og víðar sem njóta munu góðs góðs af bættum samgöngum. Þess má geta að norska leiðin hefur þann sér- staka kost að tengja Reykhóla betur við þjóðvegakerfið. Vestfjarðavegur – samanburður leiða Heimild: Vegagerðin Þ-H, Teigs- skógarleið D2, jarð- gangaleið A3, Norska leiðin Munur á Þ-H og A3 Umferðaröryggi Best Verst Óhagstæðari en Þ-H A3 lengri og brattari Kostnaður (milljónir kr.) 7.300 13.300 11.200 3.900 Vegalengdir (km) 24,2 26,2 28,9 4,7 Efnisþörf úr námum (þús m2) 170 13 970 800 Vegur innan verndarsvæða (km) 20,8 10,3 27 6,2 Kolefnisspor vegna framkvæmda (tonn CO2) 54.777 42.939 64.460 9.683 Útblástur frá umferð (tonn CO2/ári) 381 414 460 79 Mögulegt útboð framkvæmda maí 2019 haust 2020 maí 2021 – vor 2022 2-3 ár Möguleg verklok haust 2022 haust 2024 haust 2024 –haust 2025 2-3 ár Teigsskógarleiðin alltaf með betra skor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.