Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 36

Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 1897. Móðir hans deyr 19. maí 1899 og er honum þá komið í fóstur til móður- systur sinnar í Hnífsdal og eiginmanns hennar. Þar er hann til 1905, að þau flytjast inn á Ísafjörð. Gústi elst upp vestra, frelsast árið 1910 og gerist sjó- maður og er víða um land á bátum og skipum. Hinn 15. september 1923 fer hann siglandi til útlanda í fyrsta sinn, veikist illa og er komið undir læknis- hendur á Ítalíu og í Skotlandi. Við þessa reynslu eflist trú hans mjög. Eft- ir tveggja mánaða sjúkrahúslegu fer hann á norskt flutningaskip og siglir m.a. til Argentínu og víðar um heim og er eftir það á ýmsum fleyjum, litlum og stærri, ytra. Hann er í stýrimannaskóla í Noregi, líklega veturinn 1924-1925. Hann verð- ur fyrir opinberun, e.t.v. árið 1926, er þá á skútu í útlöndum, og fer eftir það upp til Íslands. Hann er á biblíuskóla í Fjellhaug í Noregi vorið 1929 og flytur upp úr því til Siglufjarðar og býr þar að mestu til æviloka. Sumarið 1949 kaupir hann litla trillu, gefur henni nafnið Sigurvin og fer í út- gerð með almættinu og notar andvirði veiðinnar til að styrkja fátæk börn um allan heim til náms, og styðja jafnframt við kristniboð á veraldarvísu. Sjálfur bjó hann við þröngan kost. Hann var mikið hraustmenni og þótti góður sjómaður, og notaði iðu- lega segl ef hægt var. Á sunnudögum og líka á öðrum dög- um, þegar hann ekki komst í róður, prédikaði hann á torginu í miðbænum, bara til að halda sér við, að eigin sögn. Um 1950 er þegar farið að kalla hann Gústa guðsmann vegna þessa alls. Svona líða árin. Handskrifaðar ritningargreinar á litla miða, sem hann deildi út á meðal vegfarenda og annarra, og núna eru gulls ígildi í augum margra, tengjast þessu og margt fleira, ekki síst velvilji hans í garð barna og ungmenna og barátta hans við kommúnismann. Lengsta viðtal frá upphafi Árið 1977 er vélin í bátnum ónýt og farið líka. Upp úr því er Sigurvin tek- inn á land og gefinn til varðveislu. Gústi dvelur síðustu æviárin á öldr- unardeild sjúkrahúss bæjarins. Hann lést á Siglufirði 12. mars 1985. Um 1990 tóku menn upp þann sið að leggja blóm á leiði hans, um viku á undan Síldarævintýri og Pæjumóti, til að biðja kristniboðann um gott veður, enda orðinn helgur maður í augum margra Siglfirðinga. Í byrjun 21. aldar var þetta enn við lýði. Báturinn var lagfærður í byrjun 10. áratugar 20. aldar og hefur frá árinu 2004 verið geymdur í einni bygginga Síldarminjasafns Íslands, Bátahúsinu. Þar er jafnframt að finna tréskúlptúr af Gústa í fullri stærð, eftir siglfirsku listakonuna Aðalheiði S. Eysteins- dóttur; hann var gefinn safninu árið 2004. Aukinheldur er þar að finna kvartil, sem hefur það að markmiði að safna peningum handa fátækum börn- um í útlöndum. Láta margir fé af hendi rakna á göngu sinni um húsa- kynnin. Í lok hvers árs er kúturinn svo tæmdur og féð lagt inn á reikning ABC barnahjálpar. Morgunblaðið kom við sögu í lífi Gústa því eftir að viðtalsgrein Árna Johnsen við hann 11. september 1977 birtist má segja að Gústi hafi orðið landsþekktur. Mun þetta hafa verið lengsta viðtalsgrein sem birst hafði í Morgunblaðinu til þess tíma, upp á fjórar blaðsíður. Árið 1965 hafði líka birst ítarlegt viðtal í jólablaði Alþýðu- blaðsins, sem markaði upphafið að segja má. Ólafur Ragnarsson, síðar bókaútgefandi, tók það. Lag Gylfa Ægissonar, sumarið 1985, gerði svo útslagið. Ævisaga Gústa er væntanleg á næsta ári. Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Afhjúpun Listamaðurinn, Ragnhildur Stefánsdóttir, ásamt Vigfúsi Þór Árnasyni, Hermanni Jónassyni og Kristjáni L. Möller en þeir eru í stjórn Sigurvins, áhugamannafélags um minningu Gústa guðsmanns. Fjölmenni var þegar styttan af Gústa var afhjúpuð á Ráðhústorgi á Siglufirði um síðustu helgi. Gústi guðsmaður í brons  Fæddist í Dýrafirði árið 1897 en bjó á Siglufirði frá 1929-1985  Var í útgerð með almættinu  Af mörgum talinn helgur maður  Ævisagan væntanleg SVIÐSLJÓS Sigurður Ægisson sae@sae.is Stytta af Gústa guðsmanni, hinum landsþekkta fiskimanni og kristni- boða, var afhjúpuð á Ráðhústorgi á Siglufirði laugardaginn 13. október síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Það var Sigurvin, áhugamannafélag um minningu Gústa guðsmanns, sem fyrir þessu stóð og var Ragnhildur Stefánsdóttir listamaður og mynd- höggvari í Reykjavík fengin til verks- ins og hefur leyst það afar vel af hendi. Styttan var steypt í brons í Þýska- landi. Aðalgefendur eru Birkir Baldvins- son athafnamaður og Siglfirðingur, Páll Samúelsson athafnamaður og Siglfirðingur, Guðmundur Krist- jánsson í Brimi, útgerðarmaður, og sjómenn og Siglfirðingar heima og að heiman, auk þess sem sveitarfélagið Fjallabyggð lagði til undirstöðu og bekki. Fór um allan heiminn Gústi, sem hét fullu nafni Guð- mundur Ágúst Gíslason, fæddist í Hvammi í Dýrafirði 29. ágúst árið Árshækkun vísitölu leiguverðs hefur ekki verið minni síðan í júní 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði, þar sem segir að vísitala leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu hafi lækkað um 0,7% frá því í ágúst samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands. Í tilkynningunni kemur fram að árshækkun leiguverðs mælist nú 6,1%, en hækkunin hefur ekki verið svo lítil síðan í júní 2016 þegar hún mældist 5,4%. Hefur meðalhækkun vísitölu leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu verið um 8,6% á ári frá því að mælingar hófust í janúar 2011. Frá þeim tíma hefur vísitalan hins vegar hækkað um 89,6%. Segir ennfremur í tilkynningunni að þrátt fyrir að árshækkun vísitölu leiguverðs hafi verið með lægra móti í septembermánuði þá mælist árs- hækkun vísitölunnar sjöunda mán- uðinn í röð hærri en árshækkun vísi- tölu íbúðaverðs sem mælist nú 3,9%. Árshækkun ekki minni frá 2016 Hópur þingmanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að ríkisstjórninni verði falið að skipa starfshóp til þess að kanna með heildrænum hætti stöðu barna á Ís- landi tíu árum eftir hrun. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þing- maður VG, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en meðflutningsmenn eru úr öllum þingflokkum á Alþingi. Í greinargerð segir m.a. að í upp- hafi hrunsins hafi mikið verið rætt um möguleg langtímaáhrif þess á börn. Því sé full ástæða til að skoða stöðu barna á þessu tíu ára tímabili, 2008-2018, og meta áhrif hrunsins á stöðu þeirra og líðan, svo sem út frá félagslegum, sálrænum og efnahags- legum áhrifum, sem og hvar þjón- usta við börn var skorin niður og hvort úrbætur hafi átt sér stað á þessu sviði. Til séu ýmsar rannsókn- ir og greiningar sem gerðar hafi ver- ið á stöðu og líðan barna á undan- förnum árum, sem þó virðist aldrei hafa verið lagt heildstætt mat á með þeim hætti sem nú sé lagt til. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að starfshópurinn hafi í vinnu sinni samráð við umboðsmann barna, Barnaverndarstofu, UNICEF á Ís- landi, Velferðarvaktina, Samband ís- lenskra sveitarfélaga og önnur fé- lagasamtök og stofnanir sem málefnið snerti. Starfshópurinn skili skýrslu til ríkisstjórnarinnar innan sex mánaða frá skipun hópsins. Vilja skoða stöðu barna á Íslandi áratug eftir hrun  Tillaga um starfshóp sem skili skýrslu eftir hálft ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Alþingi Lagt er til að staða barna áratug eftir hrunið verði könnuð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.