Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skortur á nýj-um íbúðumer ein helsta
skýringin á því að
íbúðaverð hefur
hækkað umfram
laun á síðustu
tveimur árum, að
sögn Ingólfs Ben-
der, aðalhagfræðings Samtaka
iðnaðarins. Þetta er athyglis-
vert, ekki síst í ljósi þess hve
mjög laun hafa hækkað á þessu
tímabili, sem sýnir vel hve al-
varleg og skaðleg áhrif skortur-
inn hefur haft.
Þetta kom fram á fundi um
fasteignamarkaðinn en þar fór
annar hagfræðingur, Sölvi
Blöndal, einnig yfir stöðuna og
benti á áhrifin af stefnu borgar-
yfirvalda um þéttingu byggðar,
sem tekin var inn í aðalskipu-
lagið fyrir fimm árum: „Með
þéttingu byggðar hækkaði
byggingarkostnaður. Hann er
að jafnaði 30-50% hærri en ef
byggt er á strjálbýlli svæðum.
Það tekur oftast lengri tíma að
byggja á rótgrónu svæði en
þegar byggð eru ný hverfi, eða
nýtt land brotið undir byggð.
Það gefur augaleið að lengri
byggingartími þýðir hærri fjár-
magnskostnað. Því verður að
mörgu leyti dýrara að byggja.“
Sölvi sagði einnig að verktak-
ar hefðu brugðist við með því að
smíða íbúðir fyrir þá efnameiri
og afleiðinguna af því má sjá
víða í miðborginni
þar sem auglýstar
eru íbúðir með
mjög háu fermetra-
verði, oft á biliu
700.000 til
1.000.000 krónur.
En það er ekki
nóg með að það að
leggja alla áherslu á að þétta
byggð sé skaðleg stefna, tíma-
setningin var líka slæm. Sölvi
segir hana hafa verið setta fram
á versta tíma, þegar eftirspurn
hafi verið mikil vegna fjölgunar
ferðamanna, innkomu fjöl-
mennra árganga ungs fólks og
ládeyðu í nýframkvæmdum.
Þéttingarstefnan hafi því þrýst
upp íbúðaverði.
Þrátt fyrir að ítrekað hafi
verið bent á það á undanförnum
árum hve skaðleg þétting-
arstefna borgaryfirvalda sé
heldur meirihluti borgar-
stjórnar sig við þessa stefnu.
Það sérkennilega er að sá meiri-
hluti sem tók við í vor fylgir
sömu stefnu þrátt fyrir að sum-
ir í samstarfinu séu nýir í borg-
arstjórn og þyrftu ekki að fylgja
áfram mislukkaðri stefnu sam-
starfsflokkanna.
Á þessu hefur engin skýring
fengist, ekki frekar en á því að
þessir nýju aðilar í meirihlut-
anum hafa valið að taka á sig
mistök samstarfsflokkanna í
öðrum vandræðamálum meiri-
hlutans.
Hvers vegna fylgir
nýr meirihluti borg-
arstjórnar sömu
röngu stefnunni
og forverinn?}
Þéttingin þrýstir
upp fasteignaverði
Mikil umbroteru í Evrópu
og úrslit kosninga
síðasta árið endur-
spegla þau. Áhrifin
eru þó fjarri því að
vera öll komin
fram. Þeir sem urðu undir and-
æfa enn kröftuglega.
Það er ekki endilega tær
þráður sem gengur í gegnum öll
úrslit þessara kosninga. Sumt
virðist þó áberandi. Þar á meðal
stórlega veikluð staða sósíal-
demókrata hvort sem horft er
til Ítalíu í suðri, Þýskalands á
norðanverðu meginlandinu eða
norður til Svíþjóðar og Noregs.
Syðst í álfunni hrundi flokk-
ur Renzis úr meirihlutastöðu
niður í áhrifalítinn smáflokk.
Flokkar sem segjast hlusta á
fólkið sitt fengu mjög ríflegan
meirihluta á þingi. Forseti Ítal-
íu úr röðum sósíaldemókrata
reyndi þó furðu lengi að þvæl-
ast fyrir því að gjörbreyttur
meirihluti á þingi fengi að setja
svip sinn á Stjórnarráðið í Róm.
Gerði forsetinn tilraun til að
skapa skilyrði til að kosið yrði á
ný.
Í Þýskalandi gerðist það
sama. Sósíaldemókratar þar
fóru svo illa út úr
kosningum í sept-
ember á síðasta ári
að nýkjörinn for-
maður þeirra
hrökklaðist úr sinni
stöðu og hann og
almennir flokksmenn virtust
sammála um að flokkurinn yrði
að sýna að hann næmi merkin
sem bærust og skildi þau og
mundi því leita nýs upphafs í
stjórnarandstöðu. Nokkuð
langvarandi stjórnarkreppa var
þó höfð sem afsökun fyrir því að
sækja í ráðherrastólana á ný.
Kjósendur nýttu fyrsta tæki-
færi sem þeir fengu í kosn-
ingum í Bæjaralandi. Kratar
töpuðu helmingi fylgis síns og
fóru úr sæti 2. stærsta flokks
niður í það fimmta. Það jók
niðurlæginguna að AfD, hinn
„óstjórntæki“, varð stærri
flokkur en kratar.
Í Svíþjóð gengur krötum
ekki betur að horfast í augu við
sína útkomu. Löfven formaður
leiddi flokk sinn til verstu úr-
slita í heila öld. Hann telur þó
að djúpt í skelfilegum skila-
boðum kjósenda leynist krafa
um að Löfven skuli áfram vera
forsætisráðherra Svíþjóðar.
Kjósendur taka
því illa þegar
úrskurðir þeirra eru
að engu hafðir}
Berja höfði við stein
H
efur formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis ekki um nóg
annað að hugsa en að gagnrýna
borgarstjórnina í Reykjavík?
Þetta voru viðbrögðin sem
ég fékk frá innanbúðarmanni í Samfylking-
unni þegar ég fyrir nokkrum dögum nýtti
þennan vettvang til að skrifa um braggamálið
í Reykjavík sem töluvert hefur verið fjallað
um í fjölmiðlum að undanförnu. Nú er það
reyndar svo að undirrituð er fyrst og fremst
þingmaður Reykvíkinga og hefur því eðlilega
nokkurn áhuga á því hvernig málum er háttað
í Reykjavík. Þegar rekstur borgarinnar er
jafn slæmur og raun ber vitni er ástæða til að
vera enn frekar vakandi fyrir hönd Reykvík-
inga. Þá er gaman að segja frá því að ég hef
nú skrifað á þessum vettvangi í eitt ár og efn-
istökin hafa verið jafn fjölbreytt og pistlarnir
eru margir.
Þó að mikið hafi verið rætt um braggamálið hefur mál-
ið ekki verið tæmt og allt bendir til þess að enn eigi eftir
að velta við einhverjum steinum. Það sem hins vegar
vekur athygli eru viðbrögð vinstriflokkanna í Reykjavík.
Sumir bregðast við eins með fyrrnefndum hætti, að þetta
komi þingmönnum ekkert við og þeir eigi bara að hugsa
um annað. Helst mætti skynja að borgarbúum kæmi
þetta heldur ekki við, að þeir ættu bara ekkert að vera að
skipta sér af þessu eða hafa skoðun á málinu.
Viðbrögð Pírata eru einnig áhugaverð. Píratar hafa
fram til þess ekki þurft neinar rannsóknir eða stað-
reyndir til að fella stóra dóma um menn og málefni, saka
aðra um spillingu og ætla öðrum allt hið
versta. Þegar braggamálið kom fyrst til tals
voru fyrstu viðbrögð Pírata að saka borg-
arfulltrúa um „pólitískt upphlaup“ og á liðn-
um vikum hefur borgarfulltrúi Pírata beitt
sér gegn því að óháður aðili rannsaki málið.
Þegar Píratar fóru í vettvangsferð í bragg-
ann var fjölmiðlum skipað að bíða fyrir utan.
Hið margumtalaða gegnsæi var gert að
gluggagægi. Sömu viðbrögð einkenna aðra
sem hafa fram til þess kallað eftir afsögnum
kjörinna fulltrúa við minnsta tilefni. Allir
álitsgjafarnir og sérfræðingarnir um vandaða
stjórnsýslu eru sjálfsagt enn í sumarfríi.
Nú er það reyndar ekki svo að það ríki ein-
hver Þórðargleði yfir þessu máli því þeir sem
tapa á málinu eru að lokum skattgreiðendur í
Reykjavík. Hér er einfaldlega komið upp mál,
mögulega eitt af mörgum, sem opinberar það
hversu illa borginni er stýrt af vinstrimönnum. Það er
engin yfirsýn, engin ábyrgð og ekkert skipulag. Það sem
er þó verra er að það er ekkert sem bendir til þess að það
sé að fara að breytast. Eins og við var að búast hefur
Viðreisn stigið enn eitt skrefið til vinstri með að falla á
sverðið fyrir samstarfsmenn sína í borginni. Frasinn um
almannahagsmuni umfram sérhagsmuni hljómar vel,
þangað til á hólminn er komið og taka þarf á málum. Þá
vega sérhagsmunir vinstri meirihlutans þyngra en al-
mannahagsmunir borgarbúa.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Sérfræðingar í sumarfríi?
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari
Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Laxeldisfyrirtækin hafa sóttum bráðabirgðaleyfi tilviðkomandi ráðuneyta tilað stunda áfram laxeldi í
Patreksfirði og Tálknafirði, þrátt
fyrir ógildingu úrskurðarnefndar á
leyfunum. Jafnframt vinna þau að
úrbótum á umhverfismati og undir-
búa það að bera úrskurði úrskurðar-
nefndarinnar undir dómstóla.
Stjórnarfrumvarp um heimild
til sjávarútvegsráðherra að gefa út
rekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja
til bráðabirgða, þegar brýna nauð-
syn ber til, var samþykkt á Alþingi
þriðjudaginn 9. október. Frum-
varpið snerist um að veita ráðherra
sambærilega heimild varðandi
rekstrarleyfi og umhverfisráðherra
hefur til að veita tímabundna und-
anþágu frá kröfu um starfsleyfi.
Arnarlax (móðurfélag Fjarða-
lax) og Arctic Fish (móðurfélag Arc-
tic Sea Farm) sóttu um undanþágu-
leyfi til beggja ráðuneytanna strax
daginn eftir að frumvarpið var sam-
þykkt. Sigurður Pétursson, fram-
kvæmdastjóri hjá Arctic Fish, segir
að ekki hafi þótt ástæða til að sækja
fyrr um undanþágu til umhverfis-
ráðherra því bæði leyfin séu nauð-
synleg til þess að hægt sé að halda
starfseminni áfram. Fyrirtækin
hefðu ekki verið betur sett með ann-
að leyfið ef hitt vantaði. Vonast Sig-
urður til að leyfin fáist sem fyrst.
Safna nýjum gögnum
Samhliða var hafin vinna við að
bæta úr þeim ágöllum sem úrskurð-
arnefndin grundvallaði niðurstöðu
sína á, það er að segja að skort hafi á
mat á fleiri valkostum en þeim sem
fyrirtækin hugðust framkvæma.
„Við tökum úrskurð úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála
alvarlega og vinnum að því að gera
betri grein fyrir öðrum valkostum,“
segir Sigurður.
Hann segir að verkið sé án for-
dæma og sé því unnið í samráði við
þær þrjár stofnanir sem gagnrýndar
voru í umræddum úrskurði, það er
að segja Matvælastofnun, Umhverf-
isstofnun og Skipulagsstofnun. Seg-
ir Sigurður að ekki þurfi að ráðast í
miklar rannsóknir. Vinnan felist
frekar í því sem fyrirtækin eru alltaf
að gera, að fylgjast með framþróun
og tækniþekkingu í fiskeldi. Nú sé
verið að safna gögnum og setja upp-
lýsingarnar fram á þann hátt að
skýrt sé af hverju fyrirtækin telji
ekki aðrar leiðir raunhæfar, á þessu
stigi málsins.
Nýjar aðferðir lofa góðu
Umræddir valkostir eru meðal
annars eldi á landi, eldi á ófrjóum
laxi og eldi í lokuðum sjókvíum, auk
annars umfangs og staðsetninga en
gerð var grein fyrir í umhverfismat-
inu. Sigurður segir að nýjar rann-
sóknir um aðferðir til að gera fisk
ófrjóan lofi góðu. Sá umhverfisstað-
all sem Arctic Fish vinnur eftir
heimilar ekki þrýstimeðferð á
hrognastigi til að gera laxinn þrílitna
því það felur í sér erfðabreytingu.
Nú er verið að prófa notkun bólu-
setninga og fleiri aðferðir. „Um leið
og nýjar aðferðir komast í notkun
munu fyrirtækin sjá sér akk í því að
nýta þær, eins og aðrar aðferðir sem
taldar eru bestar hverju sinni. Það
þarf engar úrskurðarnefndir eða
dómsvald til að ýta mönnum út í
það,“ segir Sigurður.
Eldi í lokuðum sjókvíum og
landeldi er hins vegar ekki talið
raunhæft á þeim svæðum sem fyrir-
tækin starfa á. Þá er mikil stærðar-
hagkvæmni í laxeldi og því má búast
við að mat á minna umfangi komi
ekki vel út.
Beðið svara ráðu-
neyta um ný leyfi
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Patreksfjörður Brunnskip á vegum Arnarlax setur seiði út í kvíar fyrirtæk-
isins í Patreksfirði. Fyrirtækið hafði þar eldi áður en leyfin voru stækkuð.
Starfsmenn Skipulagsstofn-
unar hafa verið að ræða við lax-
eldisfyrirtækin, Umhverfis-
stofnun og Matvælastofnun
sem veita starfs- og rekstrar-
leyfi. Niðurstaðan varð sú, segir
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir,
forstjóri Skipulagsstofnunar, að
það ætti að vera fullnægjandi
við þær aðstæður sem nú eru
uppi að taka saman greinargerð
um það hvernig framkvæmda-
áformin hafi þróast og hvaða
kostir og útfærslur voru skoð-
aðir og afskrifaðir. Gerð verði
grein fyrir þeim kostum sem
nefndir eru í ógildingarúrskurð-
inum. Greinargerðinni verði
skilað til leyfisveitenda og jafn-
framt leitað álits Skipulags-
stofnunar. Ásdís Hlökk tekur
fram að það sé í höndum fyrir-
tækjanna að meta hvort þau
telji þörf á að ganga lengra og
taka umhverfismatið upp að
einhverju leyti og leggja þá
fram nýja matsskýrslu eða við-
bætur þannig að Skipulags-
stofnun geti gefið út nýtt álit.
Greinargerð
eða nýtt mat
SKIPULAGSSTOFNUN