Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 43

Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 43
43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Flókið gatnakerfi Það getur verið þrautin þyngri að finna út úr öllum þeim örvum sem eru á umferðarskiltum við Lækjargötu og ekki að undra að ferðamenn reki upp stór augu. Eggert Hinn 6. október sl. gaf heimsráð Samein- uðu þjóðanna (IPCC) út nýja skýrslu um hvað þurfi til svo að unnt verði að stöðva meðalhlýnun loftslags jarðar við 1,5°C, sem er það markmið sem gert er ráð fyrir í Par- ísarsamkomulaginu frá 2015. Til að þetta tak- ist þarf nú þegar að grípa til róttækra og víðtækra að- gerða, m.a. í orkuframleiðslu, land- notkun, húsnæði, samgöngum og iðnaði. Úrslitum ræður hvað gerist í þessum efnum á næstu 10 árum, því að meðalhitinn hækkar um 0,2°C á áratug. Gert er ráð fyrir að hlýnun á norðurskautssvæðinu verði tvisvar til þrisvar sinnum meiri en annars staðar og ekki er talið útilokað að ís á Grænlandi og Suðurskautslandinu taki að bráðna þegar við þessi mörk. Slíkt gæti þýtt hækkun sjávarborðs um marga metra í stað innan við 1 m að meðaltali. Við slíkar aðstæður færi sjór að flæða inn í helstu hafn- arborgir heimsins. Rétt er að hafa í huga að þegar innkomin loforð ríkja á grundvelli Parísarsamkomulags- ins duga skammt, þ.e. aðeins til að heimsbyggðin nái að stöðva sig af á bilinu 2,6 til 4,0 gráða hlýnun sem væri skelfileg niðurstaða. – For- sendur ofangreindrar óskastöðu um 1,5° hlýnun eru m.a. þær, að 70-85% raf- orkunotkunar heimsins komi um miðja öldina frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þá verði jafnframt brennsla kola alveg úr sögunni og losun CO2 frá iðnaði hefði minnkað um allt að 90% miðað við los- unina árið 2010. Koma stjórnmála- menn boðskapnum áfram? Ofangreindar niðurstöður IPCC bárust að hluta til út til fjölmiðla á meðan skýrslan var í vinnslu og köll- uðu fram fyrirsagnir um skelfilegar horfur. Stóra spurningin sem nú blasir við er hvort stjórnmálamenn og aðrir fulltrúar almennings taki boðskapinn alvarlega og hefji nú þegar sókn í umhverfismálum að settu marki. Sem kunnugt er höfðu þegar fyrir mannsaldri komið fram niðurstöður loftslagsmælinga sem sýndu ótvírætt hvert stefndi. Sá sem þetta skrifar rakti það í ritinu Vistk- reppa eða náttúruvernd sem út kom 1974 (s. 29-30). Þeim fækkar að vísu óðum sem loka augunum fyrir nefndum horfum og staðreyndum, eða neita að taka þær alvarlega, en skiljanlegt er að þeim sem raunsæir eru þyki brekkan framundan vera brött. Því skiptir öllu máli að ekki verði frekari dráttur á að grípa til aðgerða, þar eð hik og undanbrögð þyngja aðeins róðurinn fyrir alda og óborna. Nærtækt dæmi um óraunsæi er niðurstaða þýskra stjórnvalda gagnvart losun frá dísil- bifreiðum sem jafnframt hefur leitt af sér lækkaðar kröfur af hálfu Evr- ópusambandsins til framleiðenda þeirra. Núverandi forseti Banda- ríkjanna er síðan sá svartipétur sem mestum áhyggjum veldur, þar eð hann hafnaði fyrirfram Parísarsam- komulaginu og rær öllum árum gegn því. Eru „öfgar“ í veðurfari forboði þess sem koma skal? Þeir sem fylgjast með heims- fréttum hafa eflaust tekið eftir tíð- um frásögnum af fellibyljum, skóg- areldum, þurrkum eða flóðum víða um veröldina, sem fullyrt er að séu stærri og öflugri en fyrr á tíð. Oft fer mest fyrir endalausri tuggu um mannslát sem mælikvarða á slíka at- burði, en nú staðfesta opinber gögn úr mörgum áttum að viðburðum sem þessum fari fjölgandi sem og ofsi þeirra og styrkur. Nýliðið er óvenjulega heitt og þurrt sumar í Mið-Evrópu þannig að ekkert í manna minnum stenst þar sam- anburð. Vorið sem árstíð með úr- komu og hitasveiflum kom ekki, heldur tók sumarhiti með 30°C eða þaðan af meira við af vetri. Nú um miðjan október slær hitamælirinn enn upp í 30 gráður og skrælnaðir akrar og skorpnað lauf blasa við hvarvetna allt norður til Svíþjóðar, atburðir sem menn áður höfðu tengt við jaðarsvæði Sahara-eyðimerkur- innar. – Kona að nafni, Friederike Otto, 36 ára og þýskrar ættar, er starfandi prófessor í Oxford, og í senn með doktorsgráðu í eðlisfræði og heimspeki. Hún stendur að sögn vikublaðsins Die Zeit (4. október nr. 41, s. 37) framarlega í tengslarann- sóknum (Zuordnungsforschung). Í samhengi loftslagsmálanna varðar það tengslin milli einstakra veður- fyrirbæra og langtímabreytinga. Takist að sýna fram á samhengi á milli óvenjulegra atburða í veðurfari og slíkra breytinga gæti það aukið skilning almennings á hvert stefnir. Sem eðlisfræðingur leggur dr. Otto eftir sem áður áherslu á að frum- orsökin, þ.e. CO2-losunin, þurfi sem fyrst að nálgast núllið. Nú hefur hún verið ráðin til að ritstýra næstu skýrslu heimsloftslagsráðsins IPCC. Augljós ummerki loftslags- breytinga hérlendis Ekki þarf langt að leita til að sannfæra Íslendinga um hvað er að gerast í loftslagsmálum. Óvíða blasir hækkun meðalhita jafn ótvírætt við og í jöklum landsins, með öra bráðn- un, styttingu skriðjökla og tilfærslu vatnsfalla sem frá þeim renna. Hækkað sjávarborð nagar af sjávar- ströndum, einkum á vestanverðu landinu. Jafnframt eykst súrnun sjávar á okkar slóðum hraðar en víð- ast hvar annars staðar með tilheyr- andi óvissu um viðgang og dreifingu fiskistofna. Mun meiri hlýnun á norðurslóðum umfram meðaltal á heimsvísu kann í fljótu bragði að þykja jákvæð, en óvíst er hvernig hún dreifist eftir árstíðum. Þannig er hækkun meðalhita almennt talin líklegri á vetrum en sumrum. Lífríki landsins er tegundafærra og því óstöðugra en í suðlægari löndum. Mikil óvissa er líka um áhrif hlýn- unar á hafstrauma á norðurslóðum, þar á meðal á Golfstrauminn. Hvað sem þessu líður ber Íslendingum að taka fullan þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum af mannavöld- um og til þess höfum við betri for- sendur er margar aðrar þjóðir sunn- ar á hnettinum. Ráðstefnan Arctic Circle sem hér er nú haldin í fimmta sinn er gott alþjóðlegt innlegg af Ís- lands hálfu og sem ríki með for- mennsku í Norðurskautsráðinu (Arctic Counsil) næstu tvö árin höf- um við í senn tækifæri og skyldur til að leggja lið baráttunni fyrir velferð mannkyns og umhverfis á norður- slóðum. Eftir Hjörleif Guttormsson » Spurningin er hvort stjórnmálamenn og aðrir taki boðskapinn al- varlega og hefji nú þeg- ar sókn í umhverfis- málum að settu marki. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Hefur loftslagsógnin náð eyrum stjórnmálamanna og almennings?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.