Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Flókið gatnakerfi Það getur verið þrautin þyngri að finna út úr öllum þeim örvum sem eru á umferðarskiltum við Lækjargötu og ekki að undra að ferðamenn reki upp stór augu.
Eggert
Hinn 6. október sl.
gaf heimsráð Samein-
uðu þjóðanna (IPCC)
út nýja skýrslu um
hvað þurfi til svo að
unnt verði að stöðva
meðalhlýnun loftslags
jarðar við 1,5°C, sem
er það markmið sem
gert er ráð fyrir í Par-
ísarsamkomulaginu frá
2015. Til að þetta tak-
ist þarf nú þegar að
grípa til róttækra og víðtækra að-
gerða, m.a. í orkuframleiðslu, land-
notkun, húsnæði, samgöngum og
iðnaði. Úrslitum ræður hvað gerist í
þessum efnum á næstu 10 árum, því
að meðalhitinn hækkar um 0,2°C á
áratug. Gert er ráð fyrir að hlýnun á
norðurskautssvæðinu verði tvisvar
til þrisvar sinnum meiri en annars
staðar og ekki er talið útilokað að ís
á Grænlandi og Suðurskautslandinu
taki að bráðna þegar við þessi mörk.
Slíkt gæti þýtt hækkun sjávarborðs
um marga metra í stað innan við 1 m
að meðaltali. Við slíkar aðstæður
færi sjór að flæða inn í helstu hafn-
arborgir heimsins. Rétt er að hafa í
huga að þegar innkomin loforð ríkja
á grundvelli Parísarsamkomulags-
ins duga skammt, þ.e. aðeins til að
heimsbyggðin nái að stöðva sig af á
bilinu 2,6 til 4,0 gráða hlýnun sem
væri skelfileg niðurstaða. – For-
sendur ofangreindrar óskastöðu um
1,5° hlýnun eru m.a.
þær, að 70-85% raf-
orkunotkunar heimsins
komi um miðja öldina
frá endurnýjanlegum
orkugjöfum. Þá verði
jafnframt brennsla
kola alveg úr sögunni
og losun CO2 frá iðnaði
hefði minnkað um allt
að 90% miðað við los-
unina árið 2010.
Koma stjórnmála-
menn boðskapnum
áfram?
Ofangreindar niðurstöður IPCC
bárust að hluta til út til fjölmiðla á
meðan skýrslan var í vinnslu og köll-
uðu fram fyrirsagnir um skelfilegar
horfur. Stóra spurningin sem nú
blasir við er hvort stjórnmálamenn
og aðrir fulltrúar almennings taki
boðskapinn alvarlega og hefji nú
þegar sókn í umhverfismálum að
settu marki. Sem kunnugt er höfðu
þegar fyrir mannsaldri komið fram
niðurstöður loftslagsmælinga sem
sýndu ótvírætt hvert stefndi. Sá sem
þetta skrifar rakti það í ritinu Vistk-
reppa eða náttúruvernd sem út kom
1974 (s. 29-30). Þeim fækkar að vísu
óðum sem loka augunum fyrir
nefndum horfum og staðreyndum,
eða neita að taka þær alvarlega, en
skiljanlegt er að þeim sem raunsæir
eru þyki brekkan framundan vera
brött. Því skiptir öllu máli að ekki
verði frekari dráttur á að grípa til
aðgerða, þar eð hik og undanbrögð
þyngja aðeins róðurinn fyrir alda og
óborna. Nærtækt dæmi um
óraunsæi er niðurstaða þýskra
stjórnvalda gagnvart losun frá dísil-
bifreiðum sem jafnframt hefur leitt
af sér lækkaðar kröfur af hálfu Evr-
ópusambandsins til framleiðenda
þeirra. Núverandi forseti Banda-
ríkjanna er síðan sá svartipétur sem
mestum áhyggjum veldur, þar eð
hann hafnaði fyrirfram Parísarsam-
komulaginu og rær öllum árum
gegn því.
Eru „öfgar“ í veðurfari forboði
þess sem koma skal?
Þeir sem fylgjast með heims-
fréttum hafa eflaust tekið eftir tíð-
um frásögnum af fellibyljum, skóg-
areldum, þurrkum eða flóðum víða
um veröldina, sem fullyrt er að séu
stærri og öflugri en fyrr á tíð. Oft
fer mest fyrir endalausri tuggu um
mannslát sem mælikvarða á slíka at-
burði, en nú staðfesta opinber gögn
úr mörgum áttum að viðburðum
sem þessum fari fjölgandi sem og
ofsi þeirra og styrkur. Nýliðið er
óvenjulega heitt og þurrt sumar í
Mið-Evrópu þannig að ekkert í
manna minnum stenst þar sam-
anburð. Vorið sem árstíð með úr-
komu og hitasveiflum kom ekki,
heldur tók sumarhiti með 30°C eða
þaðan af meira við af vetri. Nú um
miðjan október slær hitamælirinn
enn upp í 30 gráður og skrælnaðir
akrar og skorpnað lauf blasa við
hvarvetna allt norður til Svíþjóðar,
atburðir sem menn áður höfðu tengt
við jaðarsvæði Sahara-eyðimerkur-
innar. – Kona að nafni, Friederike
Otto, 36 ára og þýskrar ættar, er
starfandi prófessor í Oxford, og í
senn með doktorsgráðu í eðlisfræði
og heimspeki. Hún stendur að sögn
vikublaðsins Die Zeit (4. október nr.
41, s. 37) framarlega í tengslarann-
sóknum (Zuordnungsforschung). Í
samhengi loftslagsmálanna varðar
það tengslin milli einstakra veður-
fyrirbæra og langtímabreytinga.
Takist að sýna fram á samhengi á
milli óvenjulegra atburða í veðurfari
og slíkra breytinga gæti það aukið
skilning almennings á hvert stefnir.
Sem eðlisfræðingur leggur dr. Otto
eftir sem áður áherslu á að frum-
orsökin, þ.e. CO2-losunin, þurfi sem
fyrst að nálgast núllið. Nú hefur hún
verið ráðin til að ritstýra næstu
skýrslu heimsloftslagsráðsins
IPCC.
Augljós ummerki loftslags-
breytinga hérlendis
Ekki þarf langt að leita til að
sannfæra Íslendinga um hvað er að
gerast í loftslagsmálum. Óvíða blasir
hækkun meðalhita jafn ótvírætt við
og í jöklum landsins, með öra bráðn-
un, styttingu skriðjökla og tilfærslu
vatnsfalla sem frá þeim renna.
Hækkað sjávarborð nagar af sjávar-
ströndum, einkum á vestanverðu
landinu. Jafnframt eykst súrnun
sjávar á okkar slóðum hraðar en víð-
ast hvar annars staðar með tilheyr-
andi óvissu um viðgang og dreifingu
fiskistofna. Mun meiri hlýnun á
norðurslóðum umfram meðaltal á
heimsvísu kann í fljótu bragði að
þykja jákvæð, en óvíst er hvernig
hún dreifist eftir árstíðum. Þannig
er hækkun meðalhita almennt talin
líklegri á vetrum en sumrum. Lífríki
landsins er tegundafærra og því
óstöðugra en í suðlægari löndum.
Mikil óvissa er líka um áhrif hlýn-
unar á hafstrauma á norðurslóðum,
þar á meðal á Golfstrauminn. Hvað
sem þessu líður ber Íslendingum að
taka fullan þátt í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum af mannavöld-
um og til þess höfum við betri for-
sendur er margar aðrar þjóðir sunn-
ar á hnettinum. Ráðstefnan Arctic
Circle sem hér er nú haldin í fimmta
sinn er gott alþjóðlegt innlegg af Ís-
lands hálfu og sem ríki með for-
mennsku í Norðurskautsráðinu
(Arctic Counsil) næstu tvö árin höf-
um við í senn tækifæri og skyldur til
að leggja lið baráttunni fyrir velferð
mannkyns og umhverfis á norður-
slóðum.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Spurningin er hvort
stjórnmálamenn og
aðrir taki boðskapinn al-
varlega og hefji nú þeg-
ar sókn í umhverfis-
málum að settu marki.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Hefur loftslagsógnin náð eyrum
stjórnmálamanna og almennings?