Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 48
taki og undirbjó sig á
svipaðan hátt og
Harry frændi henn-
ar gerði fyrir sitt
brúðkaup. Hún
fór til Gabrielu
Peacock sem er
þekktur næring-
arfræðingur í
Bretlandi. Hún
gerði prógramm
fyrir prinsess-
una til þess
Marta María Jónasdóttir
mm@mbl.is
Í vor gekk Harry prins að eiga
unnustu sína Meghan Markle og á
síðasta föstudag gekk Eugenie
prinsessa að eiga kærasta sinn,
Jack Brooksbank, í Windsor-
kastala. Eugenie er dóttir Andrésar
prins, sem er bróðir Karls, krón-
prins Bretlands. Móðir Eugenie er
Sara Ferguson. Þau voru mikið í
fréttum þegar þau voru saman og
ekki minnkaði áhugi almennings á
hjónunum þegar þau ákváðu að
skilja árið 1996.
Nú virðast þau Sara Ferguson
og Andrés prins hins vegar vera
búin að grafa stríðsöxina og svo
kærleiksrík voru þau hvort við ann-
að í brúðkaupi dóttur sinnar að það
komst í fréttir. Breska pressan
spurði hvort þau væru
ennþá ástfangin hvort
af öðru. Við ætlum ekki
að svara því hér en ein-
hver sagði að lengi lifði
í gömlum glæðum.
Eugenie prins-
essa hefur ver-
ið í sviðsljós-
inu frá
fæðingu
og hefur
pressan
fylgst með
hverju fót-
spori
hennar.
Fyrir
brúð-
kaupið
tók
hún sig
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
GALLA
buxna
DAGAR
af öllum
gallabuxum
30%
afsláttur
18-22 október
að halda blóðsykrinum jöfnum en
auk þess mætti hún á klukkutíma
æfingu daglega.
Á brúðkaupsdaginn klæddist
Eugenie prinsessa brúðarkjól úr
smiðju Peter Pi-lotto og Christoph-
er De Vos. Kjóllinn var einstaklega
vel sniðinn og klæðilegur en það
sem vakti athygli var að hann var
opinn í bakið þannig að stórt ör
prinsessunnar sást. Prinsessan vildi
hafa kjólinn opinn í bakið til að
sýna ör sem hún fékk eftir skurð-
aðgerð sem hún undirgekkst þegar
hún var tólf ára vegna mikillar
hryggskekkju. Kjóllinn sem er fíla-
beinshvítur er klassískur í sniðinu
en það vakti athygli að prinsessan
var ekki með slör heldur einungis
kórónu sem skreytt var eðalstein-
um. Kórónuna fékk hún lánaða hjá
ömmu sinni, Elísabetu Englands-
drottningu.
Um kvöldið klæddist prinsessan
öðrum kjól, ljósbleikum frá Zac Po-
sen, sem er bandarískur hönnuður.
Ástin sigrar
alltaf allt
Ástin er í forgrunni hjá bresku konungsfjölskyld-
unni og virðast meðlimir hennar keppast við að
binda sig með formlegum hætti. Eugenie prinsessa
gifti sig í síðustu viku og er önnur í röðinni á þessu
ári sem gengur í heilagt hjónaband.
AFP
Glæsileg
Eugenie
prinsessa og
Jack Brooks-
bank kysst-
ust eftir at-
höfnina.
Leidd inn gólfið
Eugenie prinsessa af
York ásamt föður
sínum, Andrési prins
hertoga af York.