Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 50

Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 23.–27. október TÚNFISK FESTIVAL AKAMI nigiri – 2 bitar 1.290 kr. TORO nigiri– 2 bitar 1.590 kr. AKAMI sashimi – 4 bitar 1.390 kr. TORO sashimi – 4 bitar 1.690 kr. O-TORO sashimi – 4 bitar 1.990 kr. TEKKA maki – 6 bitar 2.490 kr. Túnfisk TARTARE 2.290 kr. Túnfisk CARPACCIO 2.690 kr. SNÖGGSTEIKTUR túnfiskur 2.990 kr. dur túnfisks mega alls ekki a þetta framhjá sér fara. pantanir í síma 568 6600 og á sushisocial.is HI SOCIAL • Þingholtsstræti 5 MATSEÐILL 5 túnfiskréttir og eftirréttur 8.990 kr. SMAKKSEÐILL Níu spennandi réttir úr bláuggatúnfiski. Fiskurinn er fluttur heill til landsins og með honum kemur skurðarmeistarinn Nobuyuki Tajiri sem sér um að hluta fiskinn niður eftir öllum kúnstarinnar reglum. Unnen lát Borða SUS Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Fyrirtækið er sem sagt skírt í höf- uðið á mér,“ segir Arna María Hálf- dánardóttir, sölu- og markaðsstjóri Örnu, „en það er saga á bak við það,“ bætir hún við. Arna var hug- mynd föður hennar, Hálfdáns Ósk- arssonar mjólkurfræðings, sem fannst vanta ferskar laktósafríar mjólkurvörur á markað hérlendis. „Hugmyndin kviknaði við eldhús- borðið heima á Ísafirði,“ segir Arna, en um sannkallað fjölskyldu- fyrirtæki er að ræða. „Pabbi er mjólkurfræðingur og þetta var hans hugmynd en markmiðið hjá pabba var að fólk með mjólkuróþol hefði fjölbreyttari kosti. Við höfum öll komið að fyrirtækinu með einum eða öðrum hætti. Fyrsta árið voru þetta pabbi og Óskar bróðir minn sem lögðu allt í þetta. Við hin systk- inin vorum yngri en gerðum alltaf eins mikið og við gátum. Í dag er ég svo sölu- og markaðsstjóri, Hildur systir mín og kærastinn hennar, hann Aron Brink, sjá um vörukynn- ingar í verslunum og Haukur Jör- undur, bróðir minn, er svo í hinu og þessu hjá okkur meðfram skól- anum. Það hafa allir komið að því nema mamma að ég held. Hún hef- ur verið á fullu í sínu. Sem er kannski eins gott því fyrstu árin var unnið nánast allan sólarhringinn.“ Eyddi hluta jólanna einn vegna ófærðar „Við búum á Ísafirði en húsnæðið sem við höfðum hug á hér var ekki í boði þannig að við enduðum á að finna hið fullkomna húsnæði í gömlu rækjuvinnslunni í Bolungar- vík. Það hentaði okkur vel enda stutt á milli. Pabbi eyddi þó fyrstu jólunum að hluta einn í Bolungarvík þar sem Hnífsdalsvegur var ófær. Það var allt lagt í sölurnar og ekki í boði að missa úr daga vegna ófærð- ar.“ Nafnið vekur einnig athygli – ekki síst þar sem það er Arna sem stýrir Örnu. „Sko,“ segir Arna hlæj- andi, „það er saga á bak við þetta þó að ég grínist alltaf með að vera uppáhaldsbarnið og fólk haldi staðfastlega að ég sé með mjólkur- óþol,“ segir hún hlæjandi. „Pabbi var búinn að vera í rekstri áður og gerði meðal annars út bát. Fyrir- tækið hét Arna ehf., sem var ein- mitt í höfuðið á mér en samt meira til gamans gert og kannski aðallega af því að ég var svo ákveðin í að þetta væri besta nafnið. Síðan þeg- ar hönnun vörumerkisins hófst og farið var að skoða hvað fyrirtækið ætti að heita fannst pabba nafnið Arna passa vel inn í merkið sem bú- ið var að hanna og það varð úr að mjólkurvinnslan var nefnd í höfuðið á mér. Ég er samt ekki með mjólk- uróþol líkt og allir halda,“ bætir hún við brosandi. Finna mikla velvild í garð fyrirtækisins Arna hefur haldið velli í gegnum árin og gott betur. Vöruframboðið er sífellt að aukast og úrval árstíða- bundinna vara. Fyrirtækið á sér mjög trausta viðskiptavini og ef fylgst er með því á samfélags- miðlum má sjá skemmtileg sam- skipti þar á milli. Spurningum er svarað og allt er þetta á mjög svo mannlegum nótum. „Við reynum að vera eins virk og við getum og ég Hugmyndin kviknaði við eldhúsborðið Árið 2013 var mjólkur- gerðin Arna formlega stofnuð á Ísafirði. Síðan þá hefur fyrirtækið rutt sér til rúms á íslenskum markaði með laktósa- fríum mjólkurafurðum sem hafa gjörbreytt lífi margra. Færri vita sög- una á bak við fyrirtækið og hvaðan nafnið er komið. Fjölskyldufyrirtæki Arna María Hálfdánar- dóttir, sölu- og mark- aðsstjóri Örnu. Morgunblaðið/Kristinn Mynd frá árdögum Örnu Hér má sjá þá feðga Hálfdán Óskarsson og Óskar Hálfdánarson í mjólkurvinnslunni. Myndin er tekin árið 2013.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.