Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 58

Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Elsku amma. Þú varst vön að kalla mig: „Lambið mitt“, „hænan mín“, „úllan mín“. Orð sem voru í mínum huga full af ást og kærleika. Ég er þakklát fyrir að hafa verið skírð í höfuðið á þér, Jó- hanna Guðrún, og þó þú hafir aðallega notað Guðrúnar-nafn- ið, Gunna, og ég Jóhanna, þá vorum við alltaf nöfnur. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og hafðir endalausa þol- inmæði. Þegar ég var yngri átti ég oft erfitt með að sofna og þú last fyrir mig bók eftir bók og söngst lag eftir lag, langt fram á kvöld. Ég var mikið hjá ykk- ur afa sem krakki, oftast á golf- vellinum að pútta, stundum kaddý en oftast gafst ég upp eftir nokkrar brautir og fór inn í skála og beið eftir að þú klár- aðir hringinn. Við fórum ótal ferðir í Ikea saman að kaupa litla bangsa og fá okkur kjöt- bollur, í Blómavali að skoða Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir ✝ Jóhanna Guð-rún Gunnars- dóttir fæddist 26. ágúst 1949. Hún andaðist 6. október 2018. Útför Guðrúnar fór fram 15. októ- ber 2018. páfagaukana eða blómin og við fór- um marga bíltúra að heimsækja vini og ættingja út um allan bæ. Þitt ævistarf var kórsöngur og var ég svo heppin að erfa þann áhuga frá þér. Líklega var kvöldsöngurinn í barnæsku áhrifa- valdur þess að tónlist varð stór hluti af mínu lífi. Þú varst sú sem ég hlakkaði mest til að bjóða á tónleika og ég mun sakna þess að geta ekki boðið þér á fleiri og spjallað um eftir á. Síðustu dagarnir þínir á spít- alanum voru erfiðir og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera mikið til staðar fyrir þig á svo erfiðri stundu. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og þarna fékk ég tækifæri til að vera til staðar fyrir þig. Á spít- alanum varstu líka kölluð Jó- hanna, sem mér þótti vænt um. Takk, amma, fyrir að hafa verið alltaf til staðar fyrir mig. Takk fyrir að koma til mín í kaffi á sunnudögum í vetur. Takk fyrir síðustu heimsóknina sem ég mun alltaf minnast. Takk fyrir að kalla mig að lok- um „bless elskan mín“. Sálmalagið sem ég samdi er tileinkað þér. Í hvert sinn þeg- ar tónarnir hljóma munum við minnast þín. Guð sem skapar líf og ljós, lætur vakna hverja rós. Hann er Guð sem gefur þér góðan dag og einnig mér. Myrkrið hrekur hann á braut, hjálpar vel í sorg og þraut. Hvert sem leiðin liggur þín lýsir hann þér heim til sín. Láttu, Drottinn, lýsa enn ljósið þitt, svo allir menn hér á jörðu, hvar sem er, heiðri þig og fylgi þér. (Kristján Valur Ingólfsson) Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir. Í minningunni var ævintýri líkast að fara heim til Gunnu frænku og Kidda á Nesbala. Gunna dró alltaf fram skemmti- leg leikföng fyrir mig og lagði á borð dýrindis veitingar. Þar var líka köttur sem vildi annars lítið af mér vita, en kötturinn náði svo hárri elli að þegar ég var orðin unglingur og Gunna minntist á kisa hélt ég að hún hlyti að vera komin með nýjan kött. En svo var ekki, Gunna virtist varla trúa því sjálf hversu aldraður hann var orð- inn. Eitt skipti þegar við mamma kíktum í kaffi til Gunnu benti hún á loftið fyrir ofan borðstofuborðið, á borðinu hafði gosið úr kókflösku af þeim krafti að það náði til lofts. Það eitt og sér var sérstakt en þarna var einnig óvenju hátt til lofts, ég sá strax fyrir mér að þetta hlyti að hafa verið þvílíkt sjónarspil, líkt og atriði úr bíó- mynd. Flaskan á miðju borðinu og kraftmikill svartur gos- strókur beint úr stútnum. Lík- legast var þessi sena ekki svona en þannig kom það mér fyrir sjónir eftir að hlusta á frásögn frænku. Mér fannst þetta passa fullkomlega, þarna var ævintýralegt að vera og uppákoma eins og þessi undir- strikaði það í mínum barnslega huga. Fyrstu kynni mín af sorginni voru þegar amma Unnur dó. Mér fannst sorgin og söknuður- inn yfirþyrmandi. Gunna var eina stelpan í sínum systkina- hópi og eftir að amma dó fór ég að leita eftir öllu því í fari Gunnu sem minnti mig á ömmu; röddin, góðlegu augun, hláturinn, hvernig hún sýndi væntumþykju og hlýju í orðum og verki. Minningin um ömmu dofnaði með árunum en enn hélt ég fast í hvað það sem ég taldi vera líkt með þeim mæðg- um, þótt mig hafi mögulega misminnt um margt. En eitt er víst að eins og amma var Gunna mér alltaf góð, hún heilsaði mér ætíð svo glaðlega og sýndi mér og því sem ég var að gera mikinn áhuga. Ég valdi afmælisdag Gunnu frænku sem skírnardag fyrir dóttur mína. Sú tenging er mér nú enn dýr- mætari. Hvíl í Guðs friði. Rut Rúnarsdóttir. ✝ Fríða GestrúnGústafsdóttir fæddist í Reykja- vík 25. júní 1935. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 7. október 2018. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Ásgeirsdóttir, f. 14.10. 1905, d. 25.5. 1982, hús- freyja í Reykjavík, og Gústaf Adolf Gestsson, f. 8.6. 1905, d. 15.4. 1993, verkamaður og múrari í Reykjavík. Systir Fríðu var Ásgerður Þóra, f. 30.7. 1930, d. 3.9. 1996, hús- freyja, síðast í Reykjavík. Fríða giftist 26.12. 1960 Svani Rögnvaldssyni sjómanni, f. 14.12. 1929, fórst með Suður- landinu 25.12. 1985. Börn Fríðu Gestrúnar og Svans eru: 1) Sjöfn, f. 25.5. 1959, maður hennar er Örn Vigfús Óskars- son, f. 7.3. 1958. Börn Sjafnar og Arnar eru Fríða Björk, f. 10.10. 1979, gift Gunnari Geir Gunnarssyni og eru börn þeirra Kristinn Örn, f. 26.9. 2004, og María Dís, f. 9.10. 2008. Arnar Geir, f. 19.4. 1982, börn hans og Evu Bjarkar Jónsdóttur eru Birta Sjöfn, f. 10.8. 2010, og Óskar Öl- ver, f. 23.4. 2012, og Svandís Dögg, f. 28.5. 1995, en sambýlismaður hennar er Agnar Freyr Þorkelsson. 2) Gústaf Bjarni, f. 8.9. 1962. Sonur hans og Kristínar Lindquist Bjarna- dóttur er Svanur Bjarni, f. 16.8. 1984, dóttir Gústafs og Borghildar B. Hauksdóttur er Lenóra Dan, f. 18.4. 2001, og sonur Gústafs og Evu Rósar Valgarðsdóttur er Valgarður Rúnar, f. 5.6. 2005. 3) Rúnar Guðjón, f. 23.4. 1969, sambýlis- kona hans er Kristín Heiða Ey- þórsdóttir, f. 29.7. 1991. Dætur Rúnars og Jóhönnu Herdísar Wium eru Kristrún Rut, f. 26.3. 1996, og Hjördís Þóra, f. 26.3. 1996. 4) Jóhanna, f. 5.4. 1972, sambýlismaður hennar er Ágúst Fylkisson, f. 11.2. 1968. Börn þeirra eru Íris Inga, f. 25.4. 1996, og Svanur Fannar, f. 5.2. 2006. Útför Fríðu Gestrúnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 18. október 2018, klukkan 13. Það er alltaf erfitt þegar komið er að kveðjustund og erf- ið tilhugsun að báðir foreldrar okkar séu fallnir frá. Mamma var stór hluti af lífi okkar systk- inanna, hún var hvort tveggja í senn umhyggjusöm móðir og vinkona okkar. Hún var alltaf tilbúin til að hlusta og styðja okkur á allan hátt. Hún var ekki bara umhyggjusöm móðir held- ur líka amma og langamma og mikil fjölskyldumanneskja. Mamma var alltaf kletturinn í lífi okkar systkina, ekki síst eftir að pabbi lést á jóladag árið 1986 þegar Suðurlandið fórst. Missir mömmu og okkar allra var mikill. Hún tókst á við áfallið af æðruleysi og dugnaði þrátt fyrir að það hafi verið henni þung- bært að sjá á eftir pabba á svona sviplegan hátt. Það sem hjálpaði mömmu í þessum erfiðu aðstæðum var að hún var sterk- ur persónuleiki, félagslynd og lét fátt stöðva sig í fyrirætlunum sínum. Hún hafði mjög gaman af að spila og var reyndar í sauma- klúbbi þar sem eingöngu var spilað en ekki saumað, þessi fé- lagsskapur var henni mikils virði enda oft glatt á hjalla. En hún undi sér líka vel ein við lest- ur og gat auk þess setið stund- unum saman við að púsla enda munum við systkinin ekki eftir æskuheimilinu öðruvísi en að þar væri púsluspil á borðinu. Áhugamál mömmu voru fjöl- mörg; hún hafði gaman af því að fara með okkur í veiðiferðir og útilegur, svo ekki sé talað um sumarbústaðaferðir, sem voru ófáar. Henni fannst líka gaman að ferðast um heiminn og hún lét veikindi sín ekki koma í veg fyrir það. Í fyrra lagði hún land undir fót og brá sér til Kan- aríeyja með vinkonu sinni. Sú ferð veitti henni mikla gleði og hún hafði í hyggju að fara fljót- lega aftur á suðrænar slóðir og njóta sólarinnar en því miður verða ferðirnar þangað ekki fleiri og nú nýtur hún vonandi sólarinnar í Sumarlandinu. Að leiðarlokum þökkum við þér, elsku mamma, fyrir allt sem þú varst okkur. Við búum að minningunni um mömmu sem var kærleiksrík, traust, ástrík, góður vinur og umhyggjusöm. Elsku mamma, við trúum því og vonum að þið pabbi séuð sameinuð á ný. Sjöfn, Gústaf, Rúnar og Jóhanna. Elsku besta amma Fríða. Það er erfitt að hugsa til þess að maður fái ekki að sjá þig aftur, það var svo gott að tala við þig og heimsækja. Þú varst svo hlý og vildir allt fyrir alla gera. Hafðir alltaf tíma fyrir spjall og áhuga á því sem var að gerast í lífi mínu. Það er stórt tómarúm sem þú skilur eftir í mínu hjarta, tómarúm sem á aldrei eftir að hverfa. Ég er ein af þeim heppnu sem fengu að alast upp í næsta nágrenni við þig og gat farið í heimsókn hvenær sem ég vildi. Fékk að gista þeg- ar ég vildi og mátti koma í heim- sókn hvenær sem var, alltaf var tekið á móti mér með faðminn opinn. Það var alltaf gott að koma á Ferjubakkann, spjalla við þig og horfa saman á þætti. Ég veit að þú saknaðir þess mikið síðustu mánuðina að geta ekki horft lengur á sjónvarp og lesið. Núna hittir þú afa og þið getið verið saman að nýju eftir langan aðskilnað. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Hvíldu í friði elsku amma mín. Guð veri með þér og varð- veiti þig. Þín Fríða Björk. Í dag kveðjum við Fríðu frænku eins og hún var kölluð á okkar heimili. Hrafn maðurinn minn kynnti mig fyrir Fríðu frænku sinni sem honum þótti mjög vænt um, en síðan eru liðin rúm fjörutíu ár. Fríða var ung og glæsileg fjögurra barna móð- ir. Börnin hennar voru henni allt og ekki skorti ást og kærleika til þeirra frekar en reyndar allra annarra sem hún tengdist. Þau Svanur voru yndisleg hjón sem vildu allt fyrir alla gera. Ljúfar eru minningarnar frá þeim dögum þegar við heimsótt- um Gústa afa og Jóhönnu ömmu og komum svo við hjá Fríðu og Svani. Þar var ávallt glatt á hjalla og maður ávallt velkom- inn. Fríða átti fallegt heimili og var snillingur í að reiða fram dýrindis veislur. Mikið áfall var þegar Svanur eiginmaður Fríðu fórst í hörmulegu sjóslysi með flutningaskipinu Suðurlandinu á jóladag 1986. Þarna myndaðist skarð sem enginn gat fyllt og skildi eftir stórt ör, en með jafn- aðargeði sínu og ljúfmennsku tókst Fríðu að lifa með þessari sorg og varð hún stólpinn sem hélt fjölskyldunni saman. Fríða fór ekki í manngreinar- álit og aldrei heyrði ég hana setja út á nokkra manneskju, þvert á móti sá hún jákvæðu hliðina hjá öllum. Einhvern tíma heyrði ég sagt að besti vinurinn sem maður ætti væri sá sem þekkti galla manns en væri samt vinur manns. Þannig var Fríða frænka. Börnin mín eiga ljúfar minningar um þessa góðu konu sem hugsaði sig ekki tvisvar um þegar vantaði pössun fyrir þau þegar þau voru lítil og flutti meira að segja inn til þeirra svo óþægindin yrðu sem minnst fyr- ir þau. Þetta var ómetanlegt fyr- ir okkur öll og sýndi hvílíka manngæsku hún hafði til að bera. Elsku Fríða, að leiðarlok- um langar mig að þakka þér fyr- ir allt og hve vel þú reyndist mér og minni fjölskyldu. Bless- uð sé minning þín, hvíl í friði. Þórunn Ragnarsdóttir. Fríða Gestrún Gústafsdóttir Elsku afi minn, ég kveð þig nú í hinsta sinn, þú varst mér alltaf góður og ég fann að þú hafðir trú á mér, sem ég kunni vel að meta. Þegar virki- lega reyndi á í mínu lífi varstu til staðar fyrir mig og þá minningu mun ég geyma um ókomna tíð. Ég man að mér fannst alltaf gaman að koma til ykkar ömmu á Grænuvellina sem barn og húsinu gæti ég lýst í smáatriðum, svo tíð- ir gestir vorum við systkinin hjá ykkur. Það er sterkt í minning- unni hvað mér fannst spennandi þegar þú komst með hestana í garðinn og sérstaklega ef ég fékk að fara á bak. Á seinni árum varstu duglegur Sigmar Karl Óskarsson ✝ Sigmar KarlÓskarsson fæddist 1. júlí 1932. Hann lést 5. októ- ber 2018. Útför Sigmars Karls fór fram 12. október 2018. að bjóða mér í mat og þá bauðstu und- antekningarlaust upp á eitthvað gam- alt og gott eins og saltkjöt eða hrossa- bjúgu. Mér fannst maturinn alltaf góð- ur en þó svo að þú hafir stundum kvartað yfir gæðun- um á kjötinu fórum við alltaf sáttir frá borði. Þegar Hallgerður fæddist komst þú með ömmu til Reykja- víkur á fæðingardeildina sam- dægurs, bæði komin vel á níræð- isaldur en samt sem áður spennt að sjá nýjasta langafa- og lang- ömmubarnið. Það yljar mér enn um hjartarætur að hugsa um það. Nú ertu farinn á betri stað, afi minn og ég sakna þín. Ég vil kveðja þig á sama hátt og þú kvaddir mig þegar við töl- uðumst síðast við: Guð geymi þig, afi minn, um alla tíð. Andri M. Kristjánsson. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns, föður, afa og langafa, RÍKAHARÐAR ÁRNASONAR símsmiðameistara. Sérstaklega þakkir til dagdeildar Eir, Grafarvogi, fyrir að hafa reynst honum einstaklega vel. Hrefna Jónsdóttir synir og fjölskyldur þeirra Ástkær dóttir mín, systir, mágkona og frænka, DÖGG TRYGGVADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 10. október. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 22. október klukkan 13. Birna Jónsdóttir Sólborg Tryggvadóttir Kristinn Rafnsson Jón Tryggvason og ástvinir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, EDDU INGIBJARGAR MARGEIRSDÓTTUR, Lerkihlíð 5, Reykjavík. Hjartans þakkir sendum við elskulega starfsfólkinu á Sólvangi í Hafnarfirði. Einnig þökkum við félögum í Karlakórnum Fóstbræðrum fyrir fallegan söng við útförina. Sveinn Pálsson Helga Hjördís Sveinsdóttir Elenora Björk Sveinsdóttir Erlendur Friðriksson Hallveig Elfa Hahl Martin Hahl Höskuldur Freyr Sveinsson Páll Margeir Sveinsson Sigurdís Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, ÞÓRA ÞÓRARINSDÓTTIR, fv. kaupmaður, Laugavegi 76, síðast til heimilis Bogahlíð 2, lést föstudaginn 12. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. október klukkan 13. Dæturnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.