Morgunblaðið - 18.10.2018, Síða 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
á samkeppnishæfu verði!
Kletthálsi 2, 110 Reykjavík s.562-1717 bilalif.is
Við seljum líka nýja bíla
Range Rover Evoque
Ný sending af mjög vel útbúnum
Ljósmyndir Mats hafa á sér
sérstakan blæ og má kannski
best lýsa þeim þannig að hann
taki mjög heiðarlegar myndir
af fólki og landslagi. Sjálfur
segir Mats vilja að myndir sín-
ar þjóni því hlutverki að vera
góð heimild: „Ég hef stundum
verið gagnrýndur fyrir það að
taka aðeins landslags- og
bæjamyndir í blíðskaparveðri,
þegar varla sést ský á himni.
Það er rétt að hægt er að ná
ákveðinni stemningu fram með
myndatöku í rökkri eða í
vonskuveðri, en þá er myndin
ekki jafngóð heimild um mynd-
efnið. Birtan þarf að vera góð
til að myndefnið sé skýrt og,
skuggarnir skapi rétta dýpt og
skerpu, og helst vil ég ekki að
ský hylji fjallstindana svo að
við sjáum fjöllin í heild sinni.“
Landið sýnir sín-
ar bestu hliðar
MYNDAR Í GÓÐU VEÐRI
bónda sem átti nokkur svín í girð-
ingu þar rétt hjá hvort hann gæti
ekki haft svínin í fjósi og lánað henni
stíuna fyrir mig svo ég færi ekki á
flakk.“
Skömmu fyrir jólin 1962 kynntist
Mats konu sinni Árndísi Ellerts-
dóttur heitinni, þegar hún var í
hjúkrunarnámi í Osló. Þau trúlof-
uðust vorið 1963 og létu pússa sig
saman 1964 í torfkirkjunni í Árbæj-
arsafni en bjuggu saman í Noregi
fram til vorsins 1966 þegar þau
fluttu til Íslands. Er bróðurpartur
nýju bókarinnar helgaður Íslandi og
lýsir Mats því fyrir blaðamanni
hvernig á því stóð að hann kolféll
fyrir landi og þjóð:
Hann segir að vissulega megi
finna fallegt landslag í Noregi en
meiri einsleitni á meðan á Íslandi sé
náttúran bæði fjölbreytt og hrikaleg.
Það var ekki bara landslagið sem
heillaði heldur líka fólkið sem Mats
kynntist á ferðum sínum um Ísland:
„Bókina tók ég saman ekki bara fyr-
ir mig sjálfan og mína nánustu, held-
ur líka í þakklætisskyni fyrir alla þá
sem ég hef kynnst jafnt í sveitum og
þéttbýli, og hafa bæði hvatt mig til
dáða og tekið mér opnum örmum.“
Ljósmyndir/Mats Wibe Lund
Fjölbreytni Myndir Mats af Íslandi spanna meira en hálfa öld. Þær sýna hvað samfélagið hefur breyst og skrásetja fegurð náttúrunnar. Mats reynir af ásetningi að mynda þegar veðrið er gott.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Draumur Mats var unglingur þegar hann heimsótti Ísland í fyrsta skipti. Fjölbreytileiki náttúrunnar heillaði hann.
Norðmaðurinn sem féll fyrir Íslandi
Út er komin bók með myndum og minningum Mats Wibe Lund ljósmyndara
Í meira en hálfa öld hefur hann ljósmyndað íslenska náttúru og mannlíf og um
leið skrásett heillandi sögu lands og byggða í gegnum einstakar myndir sínar
Birta Hverfjall séð til suðurs.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það var ævintýraþráin sem varð til
þess að sautján ára norskur piltur
afréð að ferðast til Íslands snemma
á 6. áratugnum. „Ég las um það í
Aftenposten að smár hópur norskra
stúdenta væri á leið til Íslands að
grafa eftir fornminjum í Skálholti.
Varð úr að ég skrifaði Kristjáni Eld-
járn þjóðminjaverði sem svaraði um
hæl og sagði að ég væri velkominn
að slást í hópinn, á eigin kostnað og
eigin ábyrgð. Hann myndi sjá mér
fyrir fæði og uppihaldi en gæti engu
lofað á þeirri stundu um greiðslu.
Eftir allanga vinnulotu fékk ég í
hendurnar myndarlegt launaumslag
og gat notað peninginn til að skoða
Norður- og Austurland. Eftir það
varð mér alveg ljóst hvar ég ætti
heima,“ segir ævintýramaðurinn
sem í dag er orðinn rösklega átt-
ræður og heitir Mats Wibe Lund.
Mats þekkja lesendur sennilega
best fyrir framúrskarandi myndir af
íslenskri náttúru og byggðum hring-
inn í kringum landið. Hann hefur
komið víða við, skrifaði m.a. fréttir
um Ísland fyrir skandinavíska fjöl-
miðla, rak ljósmyndavöruverslun og
ljósmyndastúdíó, og lærði meira að
segja að vinna úr loftmynda-
njósnagögnum þegar hann gegndi
herþjónustu. „Ég var sendur ásamt
sjö öðrum úr norska hernum í
franskan herskóla í gömlu hest-
húsum Lúðvíks konungs í Versölum.
Sem betur fer var búið að þrífa hest-
húsin rækilega,“ segir Mats glett-
inn.
Flúði loftárásir sem barn
Í þessum mánuði gefur Skrudda
út fyrstu bók Mats: Frjáls eins og
fuglinn. Hann segir bókina ekki
beinlínis ævisögu, og lýsir henni
frekar sem samansafni mynda og
minninga. Í bókinni er að finna 164
myndir sem spanna áhugavert lífs-
hlaup og segja um leið sögu íslensks
samfélags frá sjónarhorni aðkomu-
manns sem var alltaf með mynda-
vélina á lofti.
Norræna húsið heldur sýningu á
ljósmyndum Mats í tilefni af útkomu
bókarinnar og stendur hún yfir til 4.
nóvember.
Sagan byrjar á stríðsárunum í
Noregi og eru fyrstu minningar
Mats af því hvernig hann flúði Osló
með skelkuðum foreldrum sínum og
nýfæddri systur og leitaði með þeim
skjóls í veiðihúsi í sveitinni.
„Skammt þar frá var vatn, og ára-
bátur í fjörunni. Móðir mín skynjaði
það strax að mig langaði helst að
halda af stað á bátnum út í heim.
Varð það til þess að hún spurði