Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 68
AF LEIKLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Oft er langlífi ákveðinna leiksýninga dásamað, þegar þær hafa verið færð- ar upp nokkur leikár í röð – erlendis þekkist að sýningar gangi jafnvel í einhverja áratugi. En líklega er lang- lífasta leiksýningin sem enn er sett upp og nýtur gríðarlegra vinsælda, uppfærslan á Ramlila í Ramnagar í Uttar Pradesh-ríki í Indlandi. Ram- lila er röð leikrita sem sýnd eru 31 kvöld í röð – hver sýning hefst síð- degis, svo er gert hlé fyrir bænir og kvöldmat, og sýningu síðan haldið áfram fram eftir kvöldi. Leikritin byggjast á hinni epísku og ævintýra- legu frásögn af Rama konungi, eins og hún birtist í helgikvæðinu Ramcharitmanas, vinsælustu útgáf- unni í dag af goðsagnabálkinum Ramayana en Benares-skáldið Tulsi- das (1532-1623) færði hana í letur. Ramlila var fyrst sett upp í Ramnag- ar um 1830, fyrir tilstuðlan þáverandi konungs eða maharaja á svæðinu en Ramnagar er á austurbakka Ganges- fljóts gegnt borginni Varanasi, sem áður hét Benares, og er einn helgasti staður hindúa. Maharajinn réð ríkj- um í borginni og nálægum sveitum þar til völdin voru tekin af konungum landsins við sjálfstæði Indlands árið 1947. En ólíkt flestum öðrum fyrr- verandi konungsfjölskyldum Ind- lands þá eru áhrif núverandi mah- araja í Ramnagar-virki enn umtalsverð. Hann býður líka enn til Ramlila-sýninga 31 kvöld í röð á haustin, þegar nálgast tvö hundruð ára afmæli sýninganna, og tekur þátt nokkur kvöldin sem guðlegur kon- ungur. Enda hefur það verið nokkuð almenn trú á svæðinu síðan snemma á 19. öld að maharajinn í Ramnagar sé á vissan hátt holdgervingur guðs- ins Shíva. Maharajinn á fílsbaki Um þessar mundir vinn ég að verkefnum í Varanasi. Ég hef í mörg ár vitað af Ramlila-sýningunum en hef ekki áður verið í borginni meðan þær eru settar upp. Á dögunum gekk ég síðdegis sem leið lá yfir nýja og reisulega brú yfir Ganges-fljót og skoðaði Ramnagar-virkið en maharajinn býr í hluta þess. Ekki fór á milli mála að mikið stóð til; fjöldi fólks hafði safnast saman í þeim hluta bæjarins sem næstur er virk- inu og þegar ég kom þar út úr sér- kennilegu og rykföllnu safni sá ég hvar hestvagn var kominn inn í for- garðinn og myndarleg lífvarðasveit í kringum hann. Ég flýtti mér út á götu og náði að sjá hvar maharajinn, maður rétt rúmlega fimmtugur, ók út eftir götunni ásamt skrautlega búnu fylgdarliði, dreginn af hvítum og kröftugum klárhestum. „Hann er á leið á Ramlila,“ sagði maður við hlið mér. „Nú fer sýningin að byrja.“ Og fólkið streymdi á eftir höfðingjanum sem býður til leiksins. Ég fór ekki að sjá leikritið þetta kvöld en var mættur nokkrum dög- um seinna við upphaf tuttugasta kvöldsins. Sólin var lágt á lofti og baðaði sýningarsvæðið gullnu ljósi þegar við nálguðumst, en þetta kvöld var það stór almenningsgarður þar sem hverskyns leiktækjum fyrir börn og matarsjoppum sem seldu hefðbundinn indverskan götumat hafði verið komið fyrir í jaðrinum. Fólk streymdi að úr öllum áttum, augsýnilega indverskur almenningur sem var þar að mæta og það var há- tíðarstemning í loftinu. Þúsundir manna höfðu safnast saman í garð- inum miðjum og þar mátti sjá stóran og litríkan dreka í mannþrönginni miðri. Fjær voru þrír fílar og hvít- klæddir menn á þeim öllum; á þeim í miðið, í skrautlegasta burðar- stólnum, sat maharajann sjálfur, á besta stað. Þegar við komum að svæðinu tóku tveir fílar til á móti okkur, manngerðir leikmunir. Þegar ég ætl- Sýnt í 31 kvöld árlega í nær 200 aði að taka af þeim mynd stökk þar til aldraður vörður gyrtur sverði og klæddur búningi sem gæti hafa verið saumaður fyrir fyrstu uppfærsluna 1830, greip fast um meðalkaflann, gekk í veg fyrir okkur og hreytti illi- lega út úr sér að myndatökur væru með öllu bannaðar samkvæmt skip- un maharajans. Við því var ekkert að segja og við flýttum okkur nær mannþrönginni þar sem leikarar höfðu raðað sér í kringum drekann og kór var byrjaður að kyrja á hindí og tók stór hluti mannfjöldans fal- lega undir. Margir voru með lúin ein- tök af Ramcharitmanas, fylgdust með framsögn leikaranna og tóku undir þegar mátti – einhverjir voru komnir með textann í smáforrit í síma sínum og lásu af honum. Tugir þúsunda gesta Félagi minn er frá Varanasi og reynir að ná einhverjum kvöldum sýninganna ár hvert; hann segir þær mikilvægan þátt í menningarlífi borgarinnar og fallega tengingu við fortíðina. Þá sé leikurinn jafnframt helgihátíð en persónurnar í Ramlila eru flestar í fjölskrúðugu guðagall- eríi hindúismans. Leikið er án mögn- unar radda, sem gerir það enn mik- ilvægara en ella fyrir gesti að geta fylgst með textanum á bók – fyrir utan að flestir þekkja hann og atburðarásina utan að. Nokkrar fjöl- skyldur vinna við það allt árið að gera leikmuni fyrir sýninguna, og hefur sú vinna gengið í arf, kynslóð eftir kynslóð. Þær skapa skrímsli og allrahanda skepnur, sem sumar eru brenndar, öðrum drekkt, og enn aðr- ar fara svo illa að það þarf alltaf að gera þær að nýju; grind úr bambus og hálmi, klædd máluðum pappír. Leikið er á mismunandi stöðum í Ramnagar, allt eftir því hvar atriðin gerast, og hafa verið reistar íburðar- miklar leikmyndir á þeim flestum og tákna raunverulega staði á Indlandi og jafnframt í goðafræðinni. Sum kvöldin færa áhorfendur sig á milli staðanna, í fylgd með leikurunum þegar persónurnar eða guðirnir sem þeir túlka fara milli heima. Æfingar fyrir flutninginn standa mánuðum saman en valið á leikurunum fer fram eftir langri hefð – maharajinn tekur átt í áheyrnar- prufum suma dagana. Ákveðnar per- sónur eins og apaguðinn Hanuman hafa þó verið fráteknar fyrir vissar fjölskyldur lengi, allt frá miðri næst- síðustu öld. Sum kvöldin mæta þúsundir gesta, önnur tugir þúsunda en loka- kvöldið mæta allt að hundrað þúsund gestir. Og sagt er að í einhver skipti hafi mannfjöldinn náð milljón. Þá nær sýningin líka hápunkti í lagi. Leikurinn gengur í erfðir Í Ramlila er rakin viðburðarík saga Rams en þar fyrir utan er per- sónugalleríið æði mannmargt og erf- itt fyrir þá sem ekki eru fæddir inn í þennan menningarpott að átta sig á öllum vendingum þar á bæ. Við- burðaríkir þættir fjalla til að mynda um brúðkaup Rams og Sítu, útlegð Morgunblaðið/Einar Falur Lokahvellur Ramlila leiksýningunni lauk seinna kvöldið sem greinarhöfundur var viðstaddur með sannkölluðum hvelli; með rauðu blysi sem lýsti upp mannfjöldann sem fagnaði ógurlega, enda hafði bróðir Rams þá sigrað ófreskju eina mikla i bardaga. Unnið er að því árið um kring að undirbúa leikmuni. Sögulegt Þúsundir sýningargesta fylgjast í teikningu eftir James Prinsep frá árinu 1834 með skrímslum, óvinum guðsins Rams, fuðra upp í einum há- punktinum á Ramlila sem byggir á helgikvæðinu Ramcharitmanas. Ramnagar-virki er í baksýn. Sýningin hefur lítið sem ekkert breyst síðan þá. 68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.