Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 69
ár
Rams, því þegar Síta og Lakhsmana
koma til hans í útlegðina, ferðalög
þeirra um Indland, hvernig þau
byggja upp apaher, og um baráttuna
milli góðs og ills þar sem Ram verður
réttskipaður konungur að nýju.
Kvöldin sem ég var viðstaddur
var verið að dæma Ram í útlegð. Það
var áhugavert að fylgjast með ung-
um leikurunum flytja texta sem svar-
að var af kór og almenningi, eins-
konar leikstjóri fór á milli persón-
anna og gaf með bendingum til
kynna hver ætti næst að taka orðið
og senunni og fyrri hlutanum lauk –
og þá var komið myrkur og sviðið
lýst upp með kyndlum – með því að
eldur var borinn að drekanum og
fuðraði hann upp á skömmum tíma.
Þurftu leikarar og gestir sem næst
voru að stökkva undan neistaflóðinu.
Þá fóru leikararnir þvert yfir veg
sem gengur gegnum garðinn og upp
á lágt svið sem þar hafði verið reist,
áhorfendur færðu sig í humátt á eftir
og settust hringinn í kringum sviðið.
Maharajinn lét sér nægja að snúa fíl
sínum í hálfhring; hann var áfram í
besta sætinu.
Við náum ekki að fylgjast með
allri sýningunni þetta kvöld og vor-
um greinilega ekki einir um það, fólk
var sífellt að koma og fara, sumir
brunuðu jafnvel á mótorhjólum
framhjá svo ekki heyrðist bofs í leik-
urunum á meðan. Við stöldruðum við
hjá götusala við garðinn og gæddum
okkur á dýrðar skyndiréttum, félagi
minn sagði kokkinn af þriðju kynslóð
skyndibitamallara þar á staðnum.
Þar er ekki bara leikmyndagerð og
leikur sem gengur í erfðir í Ramnag-
ar.
Nú þegar þessi orð eru skrifuð í
Varanasi er sól tekin að lækka á lofti
yfir Indlandi og leiðin liggur á eftir
aftur að sjá Ramlila. Nú mun heldur
betur vera að draga til tíðinda og fé-
laginn, sem er búinn að fletta upp í
bókinni sinni með kvæðabálkinum og
hinni sem er um uppsetninguna í
Ramnagar, segir að í kvöld ljúki sýn-
ingunni með glæsilegu ljósaspili, eldi
og sprengingum. Og við ætlum ekki
að missa af þessari heillandi og
gamalgrónu alþýðuskemmtun, ekki
frekar en þær þúsundir annarra
gesta sem mæta einnig til Ramnag-
ar, að sjá eftirlætis sögurnar sínar
leiknar einu sinni enn.
Leikmunir Bannað er að mynda
sýningar, enda var ljósmyndatækn-
in ekki kynnt til sögu fyrr en 1839.
Sögur Gestir fylgjast með einni af
mörgum vélvæddum senum sem
miðla sagnabálkinum Ramayana.
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Kanadíski píanistinn Jan Lisiecki
leikur píanókonsert Schumanns á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Hörpu í kvöld kl. 19.30.
„Lisiecki vakti heimsathygli þegar
hann lék píanókonsert Chopins á
Chopin-hátíðinni í Varsjá 2008, 12
ára gamall, og sama ár lék hann í
fyrsta sinn í Carnegie Hall. Tveimur
árum síðar var hann kominn með
samning hjá Deutsche Grammo-
phon,“ segir í tilkynningu. Hljóm-
sveitarstjóri er hinn franski
Bertrand de Billy sem stýrði nýverið
rómaðri uppfærslu á Toscu við
Metropolitan-óperuna í New York.Morgunblaðið/Eggert
Lisiecki spil-
ar Schumann
Rómantík Jan Lisiecki leikur Schumann og Sinfóní-
an leikur verk eftir Olivier Messiaen og Josef Suk.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Mergjað
skáldverk“
Óðinn Jónsson / Rás 1
„Bókin er dramatísk,
spennandi og fyndin, full
af áhugaverðum persónum,
safaríkum hetjusögum og
tilvísunum í nútímann sem
hitta beint í mark.“
Sigríður Hagalín
Bráðskemmtileg og
snilldarlega skrifuð
saga um það þegar
nútíminn kom til
Íslands
KEMUR Í VERSLANIR Í DAG