Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 „Við ættum að taka oftar upp hansk- ann hvert fyrir annað,“ skrifaði Gerð- ur Kristný rithöfundur við listræna ljósmynd eftir Guðrúnu Auðuns- dóttur af nokkrum kvenhönskum. Fallega mælt eins og skáldsins er von og vísa. Ljósmyndin er ein af nokkr- um listaverkum sem Borgarbóka- safnið fékk hana til að velja sér á Artótekinu og skrifa um þau stuttan texta. Listaverkin ásamt textum Gerðar Kristn- ýjar marka upp- haf nýrrar sýn- ingaraðar Borgarbókasafns- ins, SamSuðu, sem ætlað er að vera stefnumót skapandi ein- staklinga. Sýn- ingin verður opn- uð kl. 17 í dag í safninu í Kringlunni. Þar geta gestir og gangandi því komist á snoðir um listasmekk Gerðar Kristnýjar og hughrifin sem verkin vöktu með henni við fyrstu sýn. Artótek Borgarbókasafnsins, sem er samstarfsverkefni Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og safnsins, tók til starfa 2004. Mark- miðið er að kynna notendum bóka- safnsins og öðrum íslenska sam- tímalist og gefa þeim kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt. Veik fyrir prinsessum „Ég valdi bara myndir sem glöddu mig og vöktu hjá mér tilhlökkun og forvitni, til dæmis mynd eftir Maríu Kjartansdóttur af tveimur mann- eskjum í snjó, en við hana skrifaði ég: „Hvílík gleði að hafa fæðst í landi þar sem snjóar!“,“ segir Gerður Kristný og viðurkennir að hún sé alltaf svolít- ið veik fyrir prinsessum. Enda valdi hún tvö prinsessumálverk; annað eft- ir Jón Þór Gíslason og hitt eftir Magdalenu Margréti Kjartans- dóttur. „Þetta eru áhrif frá prinsessunni á Bessastöðum. Mér finnst prinsessur hljóta að vera kraftmiklar og skemmtilegar,“ útskýrir rithöfund- urinn og vísar í framhaldið af Ballinu á Bessastöðum, sem hún samdi fyrir áratug. „Ég myndi lesa skáldsögu um þessa litglöðu stúlku með óræða svip- inn,“ skrifaði Gerður Kristný við ann- að prinsessumálverkið sem hún heill- aðist af. Hún valdi átta verk með þeim fyrirvara að ekki væri hægt að hengja öll upp í takmörkuðu sýning- arrýminu. Miklu máli skipti að lista- verkin nytu sín sem best. Þótt fjöldi myndverka stæði henni til boða kveðst hún hafa verið eldsnögg að fara í gegnum alla listaverkarekkana í Artótekinu og velja. Af hálfu bóka- safnsins voru engar kvaðir; verkin máttu vera eftir einn og sama lista- manninn eða blanda/samsuða af verkum eftir ýmsa. Smekkur fyrir myndlist „Ég fór eftir fyrstu tilfinningu þeg- ar ég valdi verkin. Ég fór oft á mál- verkasýningar með pabba mínum þegar ég var stelpa. Mér fannst það mjög gaman og ætlaði alltaf að verða myndlistarkona.“ Spurð hvort hún ætli kannski að halda smátölu við opnunina síðdegis segir hún þvert nei, ellegar myndu allir sofna ofan í súpudiskana sína eins og gerist í fyrrnefndum Bessa- staðabálki. Þess ber raunar að geta að boðið verður upp á léttar veit- ingar, en ekki þó súpu. „Starfsfólk Borgarbókasafnsins er fagfólk í ræðuhöldum og mun ábyggilega segja eitthvað skemmtilegt og gott,“ segir Gerður Kristný. vjon@mbl.is „Valdi myndir sem glöddu mig“  Gerður Kristný á stefnumóti í SamSuðu Prinsessa Eftir Jón Þór Gíslason. Gerður Kristný Listamaðurinn Birgir Snæjörn Birgisson spjallar við gesti um verk sitt „Von“ í Listasafni Árnesinga (LÁ) á sunnudag kl. 15. „Von“ samanstendur af 64 máluðum portrettum af þeim alþingismönnum sem kosnir voru á þing vorið 2013, kallast á við verk Halldórs Einarssonar af alþingismönnum lýðveldisársins 1944 sem hann skar í tré. Þessi tvö verk og mörg fleiri má sjá á sýningunni Halldór Einarsson í ljósi samtímans sem nú stendur í LÁ. Auk þess að bjóða upp á samtal við Birgi mun Inga Jóns- dóttir safnstjóri ganga um sýninguna, segja frá og svara spurningum gesta. Vetrarfrísdaga skólanna 18.-21. október býður LÁ börnum og fjölskyldum þeirra að heimsækja safnið og taka þátt í ýmsu sem þar er á dagskrá. Á morgun fagnar safnið 55 ára starfsafmæli og verður af því tilefni boðið upp á kaffi og konfekt. Spjall, leiðsögn og afmæli safnsins Birgir Snæjörn Birgisson Myndlistarmaðurinn Ólafur Elíasson fjallar í erindi í Hönn- unarsafni Íslands í dag kl. 16 um samstarf sitt við Einar Þor- stein Ásgeirsson (1942-2015) arkitekt og stærðfræðing en þeir störfuðu náið saman í um tólf ár, meðal annars að gler- hjúpnum utan um tónlistar- húsið Hörpu. „Undanfarna mánuði hefur Hönnunarsafn Ís- lands staðið fyrir opinni skrán- ingu á innvolsi vinnustofu Ein- ars Þorsteins sem hann afhenti safninu stuttu fyrir andlát sitt,“ segir í tilkynningu. Aðgangs- eyrir er 1.000 kr. Félagar Ólafur Elíasson og Einar Þorsteinn Ásgeirsson á myndinni Cities On The Move 4 sem tekin var fyrir Louisiana 1999. Ólafur ræðir samstarf sitt við Einar Utøya 22. júlí Morgunblaðið bbbbn Metacritic 75/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 18.00 Bráðum verður bylting! Árið 1970, í kjölfar mikilla efnahagsþrenginga, var póli- tískt andóf fyrirferðarmikil í íslensku samfélagi. Morgunblaðið bbbmn Bíó Paradís 18.00 Sorry to Bother You Þegar Cassius Green upp- götvar leynda hæfileika sína til að hljóma einsog hvítur sölumaður í síma, virðist allt ætla að ganga honum í hag- inn. Metacritic 81/100 IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 20.00 Mandy Metacritic 81/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 22.00 Kler (Clergy) IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 17.30 Konungur - National Theatre Live Bíó Paradís 20.00 Undir halastjörnu 16 Myndin byggir að miklu leyti á líkfundarmálinu í Nes- kaupstað. Morgunblaðið bbbmn Smárabíó 22.00 Háskólabíó 18.30, 21.40 Borgarbíó Akureyri 21.30 Johnny English Strikes Again Leyniþjónustumaðurinn Jo- hnny English þarf að bjarga heiminum rétt eina ferðina. Metacritic 35/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 17.45, 20.00 Sambíóin Álfabakka 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Keflavík 19.30 Smárabíó 15.00, 16.50, 19.50, 22.20 Háskólabíó 17.40, 19.40 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30 Venom12 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 19.50, 22.15 Sambíóin Álfabakka 17.10, 17.30, 19.30, 20.00, 21.50, 22.25 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.00 Smárabíó 16.10, 17.10, 18.50, 19.40, 21.30, 22.10 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.50 A Star Is Born 12 Metacritic 87/100 IMDb 8,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.10 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 21.00, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 21.30 The Nun 16 Metacritic 46/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 The House with a Clock in Its Walls Metacritic 57/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.40 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 18.50 Sambíóin Akureyri 17.15 Peppermint 16 Metacritic 29/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 22.15 Grami göldrótti Trausti er ungur drengur sem er óvart sendur yfir til annars heims þar sem hann verður að eiga við illgjarnan galdrakarl, Grami að nafni. Laugarásbíó 17.45 Smárabíó 15.00, 17.20 Smáfótur Snjómaðurinn Migo segir sögur af kynnum sínum af áður óþekktri goðsagna- kenndri dýrategund, mann- inum Percy. Metacritic 58/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 16.45 Sambíóin Akureyri 17.20 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 19.50 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Morgunblaðið bbbbb Metacritic 81/100 IMDb 7,7/10 Háskólabíó 18.10 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,7/10 Smárabíó 16.50, 22.10 Háskólabíó 20.50, 21.00 Bíó Paradís 22.00 Borgarbíó Akureyri 17.00 Lof mér að falla 14 First Man 12 Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferðinni til tungls- ins, með sérstakri áherslu á geimfarann Neil Armstrong. Metacritic 84/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.10, 22.00 Sambíóin Kringlunni 17.00, 20.00 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.10 Night School 12 Hópur vandræðagemlinga er neyddur til að fara í kvöldskóla í þeirri von að þeir nái prófum og klári menntaskóla. Metacritic 43/100 IMDb 5,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.