Morgunblaðið - 18.10.2018, Síða 76

Morgunblaðið - 18.10.2018, Síða 76
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 NÝJAR VÖRUR MARVIC vasi. Ø14 x H30 cm. 3.995 kr. AMITA vasi. Ø16 x H17 cm. 3.995 kr. Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir kemur fram á tónleikum í Bæjar- bíói í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni verður nýtt efni í bland við eldra. Þetta verða einu tónleikarnir með Heru hér á landi á þessu ári. Barði Jóhannsson stýrir upptökum á nýrri plötu sem er væntanleg frá Heru snemma á næsta ári. Hera í Bæjarbíói FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. „Venjulega er ég ekkert stressuð fyrir hlaup og hef bara gaman af þessu, en núna fann ég stress og varð máttlaus í fótunum,“ segir Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sem lét stressið ekki trufla sig heldur varð ólympíumeistari ungmenna í 200 metra hlaupi í fyrrakvöld. Áður hafði hún orðið Evrópumeistari ungmenna í 100 metra hlaupi. »1 Lét stressið ekki koma í veg fyrir gullverðlaun ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Söngkonan Ingrid Örk Kjartans- dóttir kemur fram á tónleikaröðinni Freyjujazzi í Listasafni Íslands í dag kl. 17.15 ásamt tríói Gunnars Hilm- arssonar. Auk Gunnars á gítar skipa tríóið þeir Jóhann Guðmundsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Á efnisskránni er djassmúsík úr ýmsum áttum í sígauna- djass-búningi, m.a. sígild djass- sönglög og popp- ábreiður. Einnig verður frumfluttur íslenskur texti við franska slag- arann Dans mon ile eftir Henri Salvador. Ingrid Örk syngur á Freyjujazzi í dag Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nú í vikunni var í Amtsbókasafn- inu á Akureyri sett upp til sýn- ingar listaverkið 2,34 eftir Guðlaug Arason; hornsúla eða skápur með eftirlíkingum eða smækkaðri mynd af bókum. Alls eru bækurnar nokk- uð á þriðja þúsund, útsíður þeirra eru í upprunalegu útliti en þær svo smækkaðar niður í hlutfallið 1:12 og kápan límd á spýtukubb. Þeim er svo raðað og þær límdar inn í hillur súlunnar og útkoman verður í raun endurspeglun af bókasafni því sem Guðlaugur á sjálfur. Sögufrægur maður Titill verksins vísar til sögu af sögufrægum Íslendingi. Svarfdæl- ingurinn Jóhann Kristinn Péturs- son (1913-1984), stærsti Íslend- ingur sem sögur fara af, var 2,34 metrar á hæð þegar hann mældist hæstur og vó þá 163 kíló. „Jóhann var sveitungi minn og frásagnir af honum lifðu góðu lífi í æsku minni. Þótt hann byggi um langan aldur vestur í Bandaríkjunum var hann samt alltaf nálægur,“ segir Guð- laugur, sem hefur í tímans rás jöfn- um höndum fengist við ritstörf, til að mynda skáldsagnaskrif, og svo myndlist. Nokkur misseri eru síðan Guð- laugur vann verkið 2,34 og vilji hans stóð til þess að því yrði komið fyrir á Dalvík. Var Dalvíkurbyggð boðið verkið til kaups, en meðal kjörinna fulltrúa náðist ekki niður- staða um hvað gera skyldi. Guð- laugur setti verkið því í kjallara- geymslu um hríð. Bauð Amts- bókasafninu á Akureyri verkið svo til varðveislu og tók Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður boðinu fagnandi. „Við settum listaverkið upp á áberandi stað á annarri hæð safns- ins núna á þriðjudaginn og það vekur mikla athygli. Núna áttar fólk sig á því að maður sem er 2,34 á hæð hefur verið risi, rétt eins og Jóhann var jafnan nefndur,“ segir Hólmkell og bætir við að margt fróðlegt sé til skráð um lífshlaup Jóhanns, svo sem bókin Of stór fyrir Ísland. Sú bók sé til á Amts- bókasafninu og oft í útláni. Handleggur hvarf í hramm Guðlaugur Arason hitti Jóhann einu sinni og segir þá heimsókn sér minnisstæða. „Við Bjarmi sonur minn, átta ára, fórum til gamla mannsins, sem þá var kominn á dvalarheimili aldraðra á Dalvík, og heilsuðum upp á hann. Þegar strákurinn tók í framrétta höndina á Jóhanni hvarf allur framhand- leggur hans inn í hramminn á manninum stóra. Ég sé enn fyrir mér undrunarsvipinn á andliti son- ar míns – og heimsóknin til risans lifir ugglaust með honum alla ævi.“ Ljósmynd/Lísbet Grímsdóttir Risar Guðlaugur Arason, rithöfundur og myndlistarmaður, og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður við listaverkið sem er á bókasafninu nyrðra. Bókaskápur í hæð risa  2,34 í Amtsbókasafninu á Akureyri  Jóhann Svarfdæl- ingur og Guðlaugur Arason  Hornsúlan vekur athygli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.