Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
595 1000 . heimsferdir.is
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
a
m
pr
en
illu
r.
He
i
sf
rð
i
á
il
r
é
il
i
í
.
t
s
Porto
f
i
16. NÓVEMBER Í 3 NÆTUR
Frá kr.
69.995
EINSTÖK HELGARFERÐ
Óttarr Möller, fyrrverandi forstjóri
Eimskipafélags Íslands, fagnaði 100
ára afmæli sínu í gær. Óttarr er
heilsuhraustur og tók á móti eftir-
lifandi systkinum sínum, börnum og
barnabörnum í tilefni dagsins.
Óttarr fæddist 24. október árið
1918 í Stykkishólmi. Hann lauk námi
frá Verzlunarskóla Íslands árið
1936, stundaði verslunarnám í Bret-
landi í eitt ár og nám í „shipping“ við
New York University 1942-1946.
Hann hóf störf hjá Eimskipafélag-
inu 1938 og tók við starfi forstjóra
félagsins 1962. Óttarr gegndi starf-
inu til 1979.
Óttarr kvæntist árið 1948 Arn-
þrúði Kristinsdóttur Möller. Hún
fæddist árið 1923 en lést 2009. Þau
eignuðust fjórar dætur og barna-
börnin eru orðin 24.
Eftir að Óttarr lét af störfum hjá
Eimskipafélaginu gerðist hann fjár-
bóndi á Rangárvöllum og stundaði
hestamennsku auk þess að sinna
fjölskyldu sinni. Hann var auk þess
virkur í starfi Frímúrarareglunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hundrað ára afmæli Óttarr Möller með dætrum sínum í afmælisveislunni í gær. Frá vinstri eru Emilía Björg Möll-
er, Kristín Elísabet Möller, Óttarr, Erla Möller og Auður Margrét Möller. Allir glöddust saman á afmælisdaginn.
Óttarr Möller 100 ára
Heilsuhraustur og bauð fjölskyldu sinni til veislu í gær
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kísilver PCC á Bakka við Húsavík
keypti um 2.000 tonn af kvarsi frá
Stakksvík sem nú á kísilver United
Silicon í Helguvík. Hráefnið var
flutt með Eems River til Húsavíkur.
Ljósmyndin var tekin þegar flutn-
ingaskipið sigldi út Skjálfanda að
losun lokinni og mætti Náttfara sem
var á heimstími úr hvalaskoðun.
Jökull Gunnarsson, forstjóri
PCCBakki Silicon, segir að fyrir-
tækið hafi vantað kvars í framleiðsl-
una vegna þess að seinkun hafi orð-
ið á skipi sem flytur hráefni frá
Egyptalandi.
Stakksvík hefur verið að hreinsa
til á lóð kísilversins í Helguvík.
Fram kom nýlega á vef Víkurfrétta
að allt trjákurl og kol hafi verið flutt
til járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga.
Nokkrir samverkandi þættir
PCC hefur á undanförnum vikum
verið að gangsetja seinni ljósboga-
ofn kísilversins, Boga, en það hefur
gengið brösuglega. Þurft hefur að
reyna aftur og aftur. Jökull segir að
ekki sé nákvæmlega vitað hvað er
að en helst talið að nokkrir sam-
verkandi þættir orsaki það að ekki
hefur verið hægt að koma ofninum í
framleiðslu. Nú hafa öll rafskaut
sem voru upprunalega í ofninum
verið fjarlægð og í honum eru því
aðeins rafskaut af annarri fram-
leiðslulotu.
Jökull sagði í gær að til stæði að
prófa gangsetningu síðar um dag-
inn. Hann sagðist vera bjartsýnn á
að þetta færi að ganga.
Rekstur á fyrri ofninum, Birtu,
hefur gengið vel og þar er fram-
leiddur hágæðakísill sem seldur er
til viðskiptavina erlendis.
PCC keypti 2.000 tonn
af kvarsi úr Helguvík
Bras hefur verið með gangsetningu seinni ljósbogaofnsins
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Stefnumót Hvalaskoðunarbáturinn sýnist ekki stór þegar hann mætir stórflutningaskipinu á Skjálfandaflóa.
Landsréttur
sýknaði í gær alla
þrjá sakborn-
ingana í Aurum-
málinu svokall-
aða, þá Lárus
Welding, fyrrver-
andi forstjóra
Glitnis, Magnús
Arnar Arngríms-
son, fyrrverandi
framkvæmda-
stjóra fyrirtækjasviðs bankans, og
Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var
aðaleigandi bankans í gegnum eign-
arhaldsfélagið FL Group. Allur sak-
arkostnaður verður greiddur úr rík-
issjóði en hann nemur samanlagt
tæpum 60 milljónum króna.
Landsréttur sneri þar með dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur frá nóv-
ember 2016 hvað varðar Lárus, sem
var þar dæmdur í eins árs fangelsi,
og Magnús, sem hlaut tveggja ára
fangelsisdóm. Héraðsdómur sýknaði
hins vegar Jón Ásgeir en ákæruvald-
ið áfrýjaði þeirri niðurstöðu.
Ákæran í málinu snerist um sex
milljarða króna lán Glitnis til einka-
hlutafélagsins FS38, sem var eigna-
laust félag með takmarkaða ábyrgð,
til kaupa á bréfum eignarhalds-
félagsins Fons í skartgripafélaginu
Aurum Holding. Lárus og Magnús
voru ákærðir fyrir umboðssvik með
því að hafa í störfum sínum fyrir
Glitni misnotað aðstöðu sína og
stefnt fé bankans í verulega hættu
með því að fara út fyrir heimildir sín-
ar til lánveitinga. Landsréttur komst
að þeirri niðurstöðu að við ákvörðun
um lánveitinguna hafi þeir Lárus og
Magnús mátt styðjast við mat á virði
veða sem sett voru fyrir lánveiting-
unni. Fyrir vikið hafi ekki verið sýnt
fram á að þeim hefði hlotið að vera
ljóst, eða látið sér í léttu rúmi liggja,
að þeir væru að misnota aðstöðu sína
þannig að jafn miklar líkur eða meiri
lík-ur væru á því að fjártjón hlytist
af.
Jón Ásgeir var ákærður fyrir hlut-
deild í brotum Lárusar og Magnúsar
en til vara hylmingu en annars pen-
ingaþvætti.„Þetta er í þriðja skipti
sem fjölskipaður dómur hefur sýkn-
að Jón í þessu máli. Ég vona að það
sé nú endir þessa alls,“ segir Gestur
Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, um sýknudóminn. „Ég
er sannfærður um réttmæti þess
sem var forsendan í dómnum um að
stjórnendum bankans hafi ekkert
gengið annað til í sínum störfum
heldur en að tryggja hagsmuni
bankans,“ segir Gestur.
Allir sýknaðir
í Aurum-málinu
Héraðsdómi snúið við í Landsrétti
Lárus
Welding
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Magnús Arnar
Arngrímsson