Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
á 1960
rslur í boð
00,- stk.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
/solohusgogn
i
E-60 Stólar
Klassísk hönnun fr
Ýmsir litir og útfæ
Verð frá 28.1 Retro borð m/stálkanti
Fáanlegt í mörgum stærðum
Verð frá 109.200,- E-60 Bekkur
Til í fleiri litum og
lengdum
Verð frá 71.200
Í vikunni pantaði hann í beinni út-
sendingu á K100 vél sem skrælir
epli. Konan hans benti þó í þætt-
inum á þá staðreynd að hann borð-
aði ekki epli, sem eiginmanninum
finnst algert aukaatriði. „Maður
veit aldrei hvenær gestir koma í
heimsókn og þar að auki er ég allt-
af að hugsa um þig, ástin mín,“
sagði hann við Maríu konu sína í
þættinum við mikinn hlátur ann-
arra þáttarstjórnenda, en ásamt
Jóni Axel stýra þættinum þau Ás-
geir Páll og Kristín Sif.
Jón Axel segist aðspurður hafa
sankað að sér alls kyns dótaríi í
gegnum tíðina. Þar má nefna rúss-
neskan hersíma sem er bæði högg-
og vatnsheldur, barmnælu sem er í
raun tölvuskjár og birtir myndir að
eigin vali úr tölvunni, gamaldags
kassettutæki með USB-tengi sem
gerir þér kleift að koma efni af
gömlu kassettunum yfir á tölvuna
og margt fleira. Þó að Jón Axel noti
græjurnar ekki allar dags daglega
er hann stoltur af safninu sínu.
„Það getur alltaf verið gott að eiga
kassann með græjunum. Maður
veit aldrei hvenær þetta gæti komið
í góðar þarfir.“
Þegar Jón Axel er spurður hvað
sé á óskalistanum á næstunni segir
hann: „Ég er búinn að biðja Maríu
að gefa mér vararafstöð í jólagjöf.
Það stendur reyndar eitthvað að-
eins í henni en ég ætla sannarlega
ekki að missa vonina. Svo get ég
sagt frá því að ég sá auglýsingu á
bílalyftum og hugsaði mér gott til
glóðarinnar. Ég meina, það er eitt-
hvað ótrúlega notalegt við tilhugs-
unina um að eiga slíkt tæki.“ Krist-
ín Sif er ekki hrifin af
söfnunaráráttu vinnufélagans og
hlustendur K100 heyra hana oft
fussa og sveia yfir tækjunum sem
hann fjárfestir í. „Konurnar í kring-
um mig eiga einkennilega erfitt
með að skilja hvað ég fæ út úr
þessu, en karlmennirnir skilja mig
flestir fullkomlega. Ásgeir Páll fjár-
festi um daginn í lítilli græju sem
hjálpar þér að komast í sokkana án
þess að beygja þig. Ég verð reynd-
ar að viðurkenna að mér fannst sú
græja ekkert sérstaklega töff, en
ég lét samt alveg vera að tuða í
honum yfir því.“ Græjurnar gera
einfaldlega lífið skemmtilegra og
það er fátt sem toppar tilfinninguna
sem myndast þegar maður er að
bíða eftir skemmtilegri græju frá
útlöndum,“ segir Jón Axel um leið
og hann sest niður við tölvuna til að
panta bananaskerann sem sneiðir
bananann niður í margar jafnstórar
sneiðar.
Þeir sem vilja fylgjast með
áframhaldinu á söfnunaráráttu Jóns
Axels ættu að hlusta á Ísland vakn-
ar alla virka morgna frá 6-9.
Ótrúlegt magn af græjum
Úr dagbók Ísland vaknar á K100: Jón Axel Ólafsson dagskrárgerðarmaður hef-
ur unun af sniðugum tækninýjungum og pantar reglulega eitthvað skemmti-
legt af netinu.
Skytturnar þrjár
Morgunteymið í Ís-
land vaknar á K100.
Halloween eða hrekkjavaka hefur
sótt í sig veðrið á Íslandi síðustu ár
og er óhætt að segja að þessi banda-
ríska hefð sé komin til að vera hér á
landi.
Það er Greta Salóme sem stendur
fyrir tónleikasýningunni en sýningin
er framleidd af fyrirtæki hennar,
Forte. „Við ætlum að bjóða upp á lög
eins og Zombie, Highway to Hell,
Thunderstruck og fleira sem hægt
er að tengja við hrekkjavökuna,“
segir Greta sem hefur fengið einvala
lið listamanna til liðs við sig. „Í ár
koma fram Birgitta Haukdal,
Magni, Stebbi Jak., Dagur Sigurðs-
son og Ólafur Egils. Þar fyrir utan
eru hljómsveit, bakraddir og Karla-
kór Fóstbræðra auk Leikfélagsins
Hugleiks,“ segir Greta og bætir við
að öllu verði tjaldað til svo sýningin
verði sem glæsilegust. Hrekkja-
vökudagurinn er á miðvikudaginn í
næstu viku, 31. október, en sýning-
arnar verða núna um helgina. „Við
verðum með tvær sýningar í Há-
skólabíói núna um helgina, 26. og 27.
október, auk þess sem við ætlum að
prófa að fara með sýninguna norður
til Akureyrar í ár og þar ætlum við
að sýna í Hofi 3. október,“ segir
Greta full tilhlökkunar en það var
mikið fjör á sýningunum í fyrra.
„Stemningin í fyrra var ólýsanleg og
stóðu gestir upp eftir hlé og öskruðu
og sungu með,“ segir Greta bros-
andi.
Halloween Horror Show er í sam-
starfi við K100 sem hefur séð til þess
að veglegir vinningar verði í boði
fyrir bestu búninga tónleikagesta.
„Við hvetjum því alla til að klæða sig
upp í tilefni dagsins og freista þess
að fá veglega vinninga í boði K100,“
segir Greta en ekkert verður til
sparað að gera gervi þeirra sem
koma fram á sýningunni sem hrylli-
legust. „Þetta verður megapartí því
á undan tónleikunum ætlum við að
slá upp sérstöku fyrirpartíi í anddyri
Háskólabíós og Hofs þar sem séð
verður til þess að allir tónleikagestir
séu hitaðir upp fyrir sýninguna.
Fyrirpartíið hefst kl. 19:30 og stend-
ur í um hálftíma,“ bætir Greta við.
Hryllingur
í Háskólabíói
Halloween Horror Show var haldið í fyrsta sinn í
fyrra í Háskólabíói fyrir þremur stútfullum sölum.
Tónleikasýningin sló heldur betur í gegn og var í
raun fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Hryllilegur Einn þeirra listamanna
sem koma fram í ár er Stebbi Jak.
Hér er hann í hlutverki sínu í fyrra.
Horn og hali
Greta Salóme
í hlutverki
sínu á Hallo-
ween Horror
Show í fyrra.