Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 69

Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 69
2018 MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 AF BÓKMENNTUM Árni Matthíasson arnim@mbl.is Tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2018 eru verk sjö kvenna og sex karla. Af Íslands hálfu eru tilnefndar ljóðabókin Ljóð muna rödd eftir Sigurð Pálsson og skáld- sagan Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Einnig eru tilnefndar ljóðabækurnar Ontto harmaa eftir Olli-Pekka Tenn- ilä, Tapeshavet eftir Gunnar D. Hansson og Gudahøvd eftir Jóanes Nielsen, smásagnsöfnin Velsignelser eftir Caroline Albertine Minor og Jeg har ennå ikke sett verden eftir Roskvu Koritzinsky og smáprósa- safnið God morgon eftir Susanne Ringell. Fjallað er um þessar bækur hér, en á morgun verður sagt frá skáldsögunum. Olli-Pekka Tennilä – Ontto harmaa Ontto harmaa, „Holur grár“, er þriðja ljóðabók finnska ljóðskáldsins Olli-Pekka Tennilä, en hann fékk Runeberg- verðlaunin, helstu bókmenntaverð- laun Finna, fyrir aðra ljóðabók sína. Ljóðin í Holur grár líkjast helst knöppum setn- ingabrotum, eins og skáldið sé að hugsa á blaðið, rekja sig áfram eftir hughrifum og hugmyndum, vitnar í heimspeki, náttúruvísindi, málvís- indi, en missir aldrei sjónar á bók- stafnum O. Tennilä snýr líka út úr hugsunum, leikur sér með merking- ar og ekki vantar gamansemina: „Hvað á maður að kalla gatið sem umlykur allt?“ Susanne Ringell – God morgon God morgon segir sögu tveggja para, annars vegar er norrænt par, skáldkona og eiginmaður hennar, sem ferðast suður á bóginn á vet- urna til að skrifa. Hitt parið er franskt, Claire og Pascal, fyrrver- andi sambýlis- maður hennar, sem hefur ekki gefið hana upp á bátinn. Frásögin fer frá einu pari til annars í tíu texta- brotum, sögubrotum. God Morgon er fimmtánda bók Susanne Ringell Jóanes Nielsen – Gudahøvd Gudahøvd er tíunda ljóðabók fær- eyska rithöfundarins Jóanes Niel- sens, en hann hefur einnig gefið út leikrit og skáld- sögur, meðal ann- ars bókina Glans- myndasafnararnir sem kom út á ís- lensku fyrir fimm árum. Í Gudahøvd yrkir Nielsen um hversdagsleikann, hráan og harka- legan. Ljóðmælandinn er miðaldra, þreyttur og stirður og leiður á að þurfa sífellt að vera að vakna á nótt- unni til að pissa. Já, og svo gefa yrk- ingar ekkert af sér: „Ljóð verða til aftan á kvittunum / ekki tala um sál / það gera þeir sem fá laun inn á bankareikning i hverjum mánuði / og sauma út guðsorð á koddaver.“ Caroline Albertine Minor – Velsignelser Velsignelser, Blessanir, er önnur bók dönsku skáldkonunnar Caroline Albertine Minor. Í bókinni eru sjö smásögur sem fjalla um missi, efa og forboðna vitneskju. Í fyrstu sögunni vaknar Helena við sím- hringingu og Neta, eiginkona föður hennar, vill að hún komi að sjúkrabeði hans, þótt Helena hafi ekki séð hann í áratug og þekki í raun ekki lengur. Faðirinn deyr og sorgin verður til þess að líf Helenu tekur nýja og óvænta stefnu. Svo er það og með fleiri sögur í bókinni; sorg, á stundum nánast óbærileg, verður til þess að fólk finnur nýjar leiðir Roskva Koritzinsky – Jeg har ennå ikke sett verden Norski rithöfundurinn Roskva Koritzinsky sendi frá sér fyrstu bók- ina 2013, smásagnasafnið Her inne et sted. Þeirri bók var vel tekið, var tilnefnd til fjölda verðlauna og fékk ein verðlaun sem besta frumraun ársins. Jeg har ennå ikke sett verden er þriðja bók hennar, lítil og nett og lætur ekki mikið yfir sér, sögurnar stuttar en innihaldsríkar. Segja má að sögurnar snúist allar um ást, eða kannski um fólk sem elskar, er elskað eða getur ekki elsk- að, kann það ekki eins og söguper- sóna fyrstu sögunnar til að mynda, en allar eiga þær það sameiginlegt að vera utanveltu á tilfinningasvið- inu, passa ekki inn í samfélagsnorm, allar eru þær ekki eins og fólk er flest og undirstrika um leið að það eru fæstir. Listavel skrifað. Gunnar D. Hansson – Tapeshavet Fyrir átta þúsund árum eða svo mátti ganga þurrum fótum yfir Kattegat og Skagerak. Þetta for- sögulega og sokkna landsvæði kalla menn Tap- eshavet eftir sam- lokunni Tapes de- cussata, sem Linneaus nefndi svo, og ljóðabók Gunnars D. Hanssons hefur nafn sitt af því. Í bókinni blandar hann meðal annars saman ljóðum, bókmenntatilvís- unum, fróðleik úr sjávarlíffræði, jarðfræði, fornleifafræði og sagn- fræði og lýkur henni svo með dagbók sinni. Gunnar D. Hansson fæddist 1945 og sendi frá sér fyrstu ljóðabókina 1979. Hann vakti mikla athygli í Sví- þjóð fyrir ljóðaþríleikinn Olunn (1989), Lunnebok (1991) og Ide- gransöarna (1994), sem fjallaði um lífríki hafsins og náttúruvernd. Fram og aftur í tíma Olli-Pekka Tennilä Susanne Ringell Jóanes Nielsen Caroline Albertine Minor Roskva Koritzinsky Gunnar D. Hansson  Verðlaun Norðurlandaráðs afhent á þriðjudag Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Ég heiti Guðrún (Kúlan) Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Lau 27/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 14:00 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 3/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Insomnia (Kassinn) Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 3/11 kl. 20:00 Frum Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 4/11 kl. 20:00 2.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Lau 27/10 kl. 20:00 16. s Lau 10/11 kl. 20:00 19. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 26/10 kl. 20:00 17. s Lau 27/10 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 27/10 kl. 20:00 Sing-a-long Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Sýningum lýkur í nóvember. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.