Morgunblaðið - 25.10.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
VR óskar eftir orlof
VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða
orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is
fyrir 20. nóvember 2018.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa
að fylgja:
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
• Lýsing á eign og því sem henni fylgir
• Ástand íbúðar og staðsetning
• Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
• Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Öllum tilboðum verður svarað.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Íslenskt samfélag breytisthratt og íþróttafélögin þurfaað svara þeim aðstæðum,“segir Valdimar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings (UMSK).
„Nýjar íþróttagreinar ryðja sér til
rúms og þátttaka í hefðbundnum
greinum gefur eftir. Æ fleiri leggja
stund til dæmis á hjólreiðar, hlaup
og gönguferðir á fjöll sem er mjög
jákvæð þróun, enda þurfa allir að
hreyfa sig. Í þessu felst síðan
áskorun til íþróttafélaganna um að
mæta þessu fólki með skipulögðu
starfi, fræðslu eða öðru því sem
vera kann.“
Stór og öflug íþróttafélög
UMSK hlaut Hvatningar-
verðlaun Ungmennafélags Íslands
sem haldinn var á Ísafirði um síð-
ustu helgi. Nýjungar og nýsköpun
í starfi var frumlag verðlaunanna,
en bryddað hefur verið upp á ýmsu
áhugaverðu í starfi sambandsins á
síðustu misserum. Þar má nefna að
UMSK hefur meðal annars gefið
aðildarfélögum sínum pannavelli,
sem eru litlir sexhyrndir fótbolta-
vellir. Einnig kynnt biathlon til
sögunnar sem nýja íþróttagrein.
Er það einskonar afbrigði af skíða-
skotfimi nema hvað á Íslandi er
hlaupið í stað þess að ganga á
skíðum. Fara keppendur þá
ákveðnar leiðir milli skotsvæða.
Gildir þá að hitta sem flest skot-
mörk á þar til gerðum skotsvæðum
og fá sem fæsta refsihringi. Þá
gildir að vera sem fljótastur í
göngu- eða hlaupahluta keppn-
innar. Innan UMSK eru alls um
fimmtíu aðildarfélög, en starfs-
svæði sambandsins er Kjós, Mos-
fellsbær, Kópavogur, Garðabær og
Seltjarnarnes. Í þessum byggðum
eru mörg af stærstu og öflugustu
íþróttafélögum landsins; svo sem
Afturelding í Mosfellsbæ, Grótta,
Breiðablik, HK, Gerpla og Stjarn-
an.
„Í dag er tæplega þriðjungur
þjóðarinnar – 29% – þátttakendur í
starfi á vegum íþróttafélaga. Auð-
vitað er þátttakan mest og best í
yngstu aldurshópunum og þar nær
hún stundum að vera 80-90%.
Áskorunin sem íþróttafélögin
standa andspænis er hins vegar sú
að halda krökkunum sem lengst í
starfinu, enda er slíkt þeim mikil-
vægt og þá bæði hreyfingin og hin
félagslega þátttaka. Auðvitað
freistar marga mest að vera í tölv-
unni og símanum, tækjum sem við
getum ef til vill notað til að nálgast
krakkana og fá með í leikinn,“ seg-
ir Valdimar.
Kynning í Manchester
Í dag, fimmtudag, halda ýmsir
úr forystusveit UMSK til Man-
chester í Bretlandi til að kynna sér
íþrótta- og tómstundastarf þar í
borg. Svo vill til að sambandið
fékk nýlega styrk úr Erasmus-
áætlun Evrópusambandsins og
ætla að heimsækja þar samtökin
Streetgames.
„Þar ætlum við að sjá hvað
þeir eru að gera varðandi það að
virkja fólk og efla hreyfingu meðal
ungmenna. Ferðin er upphafið að
verkefni sem hefur þau markmið
að draga úr brottfalli, auka virkni
og þátttöku í starfi og auka fram-
boð á skemmtilegum verkefnum
fyrir alla aldurshópa,“ segir Valdi-
mar að síðustu.
Íþróttastarf mæti breyttu samfélagi
Ungmennafélagsandinn
lifir! Nýjar greinar eru
komnar inn og öflugt
starf er stundað á vett-
vangi UMSK. Mark-
miðið er að auka virkni
og draga úr brottfalli úr
íþróttastarfi. UMFÍ styð-
ur við þróunina.
Ljósm/Aðsend
Sprettur Kátir krakkar úr starfi Ungmennasambands Kjalarnesþings við rásmark á frjálsíþróttavellinum.
Ljósmynd/Aðsend
Þrumuskot Biathlon er afbrigði af skíðaskotfimi nema hvað á Íslandi er
hlaupið í stað þess að ganga á skíðum og á skotsvæðum er byssunni miðað.
Ljósmynd/UMFÍ
Hvatningarverðlaun Valdimar Gunnarsson framkvæmdastjóri UMFÍ, til
vinstri, og Haukur Valtýsson sem er formaður Ungmennafélags Íslands.
Kvennakórinn Vox Feminae heldur
næstkomandi laugardag, 27. október,
tónleika í Háteigskirkju sem hefjast
klukkan 17 og þar verða á efnis-
skránni verk eftir íslensk samtíma-
tónskáld. Tónleikar með slíkum verk-
um eru sjaldgæfir og enn merkilegra
er að á efnisskrá eru þrjú verk eftir
28 ára konu, Svanfríði Hlín Gunnars-
dóttur. Önnur verk á tónleikunum
sem kórinn flytur eru eftir Þorkel
heitinn Sigurbjörnsson og Mist dótt-
ur hans, Báru Grímsdóttur, Áskel
Másson og Tryggva M. Baldursson
svo nokkur séu nefnd.
Það var árið 1993 sem Margrét J.
Pálmadóttir stofnaði Vox feminae, en
frá upphafi hefur trúarleg tónlist
ásamt íslenskum þjóðlögum og söng-
lögum einkennt lagaval kórsins og
dagskrána á öllum tónleikum hans.
Margrét stjórnar tónleikunum nú á
laugardaginn svo og jólatónleikunum
8. desember en lætur í kjölfarið af
störfum eftir langt og farsælt starf.
Hægt er að nálgast miða fyrir tón-
leikana á laugardaginn hjá kór-
félögum en einnig verða miðar seldir
við inngang á tónleikadegi. Miðaverð
er 2.000 krónur.
Vox Feminae með tónleika á laugardaginn
Munu syngja fjölbreytt verk
íslenskra samtímatónskálda
Morgunblaðið/Eggert
Söngur Vox Feminae á æfingu í Háteigskirkju, hvar tónleikarnir verða.