Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grund-
arfirði býður nú upp á nám í fiskeldis-
fræðum á framhaldsskólastigi. Byrj-
að var í haust en skólameistarinn
segir að fáir nemendur séu byrjaðir
enda sé eftir að fá verknámshlutann
samþykktan. Vonast hún til að
kennsla hefjist fyrir alvöru eftir ára-
mót.
Fjölbrautaskólinn er með fram-
haldsdeild á Patreksfirði og það var
að áeggjan Vesturbyggðar og Arnar-
lax, stærsta laxeldisfyrirtækis lands-
ins, að farið var að huga að fiskeldis-
braut. Samstarf er einnig við Verk-
menntaskóla Austurlands í Nes-
kaupstað um þróun námsins en þar
er annað framtíðarfiskeldissvæði.
Þessir tveir skólar starfa saman að
fjarkennslu ásamt fleiri minni fram-
haldsskólum.
Nám á fiskeldisbraut er tveggja
ára nám, 120 eininga, með náms-
lokum á öðru hæfnisþrepi. Megin-
markmið námsins er, samkvæmt
upplýsingum Sólrúnar Guðjóns-
dóttur aðstoðarskólameistara, að
undirbúa nemendur undir sérhæfð
störf á sviði fiskeldis og er lögð
áhersla á að þjálfa nákvæmni í vinnu-
brögðum, áreiðanleika og hæfni til að
vinna sjálfstætt undir stjórn yfir-
manns. Að loknu námi á nemandi að
geta skipulagt og forgangsraðað
störfum sínum, veitt jafningjum ráð-
gjöf og leiðbeiningar í samvinnu við
yfirmann. Hrafnhildur Hallvarðs-
dóttir skólameistari segir að skólinn
muni útskrifa sérhæfða fiskeldis-
starfsmenn sem geti hafið störf við
eldið eða haldið áfram námi til stúd-
entsprófs og farið í háskólanám í fisk-
eldi við Háskólann á Hólum.
Bíða staðfestingar á verknámi
Námsbrautin er í staðfestingarferli
hjá Menntamálastofnun og segir
Hrafnhildur að leyfi sé komið fyrir
bóklega hlutanum. Verknámið sé í
vinnslu hjá starfsgreinaráði.
Einn nemandi hóf nám í haust og
sjö til viðbótar sem lokið hafa bóklega
hlutanum sóttu um verknámið en það
verður væntanlega hafið um áramót.
Þá verður einnig bætt við nemendum.
Hrafnhildur segir að það taki tíma
að byggja upp nýja námsbraut og
kynna hana. Hún nefnir að ekki hafi
verið mikil spurn eftir starfsnámi en
vonandi sé það að breytast. Þá hafi
óvissan sem vofði yfir fiskeldisfyrir-
tækjunum á sunnanverðum Vest-
fjörðum fyrr í vetur ekki hjálpað.
Nemendur hafi haldið að sér hönd-
um.
„Ég fer reglulega á suðurhluta
Vestfjarða vegna starfsemi okkar
þar. Það hefur orðið gífurleg breyting
á þessum byggðum á stuttum tíma
vegna fiskeldisins. Þetta er flott vinna
og gott fyrir fólk að eiga möguleika á
ágætlega launuðum störfum í heima-
byggð,“ segir hún.
Búa nemendur undir
sérhæfð störf við fiskeldi
Vesturbyggð og Arnarlax aðstoða við að byggja upp nám á fiskeldisbraut
Ljósmynd/Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Grundarfjörður Fjölbrautaskóli Snæfellinga er í forgrunni og bæjarfjallið, Kirkjufell, vakir yfir bænum.
Kolbrún Bald-
ursdóttir, borg-
arfulltrúi Flokks
fólksins, hefur
lagt fram tillögu
þess efnis í skóla-
og frístundaráði
að skák verði
kennd í grunn-
skólum landsins.
Er lagt til að
borgin beiti sér
af krafti fyrir því að menntamála-
ráðuneytið samþykki tillöguna og
framkvæmi.
Í greinargerð með tillögunni seg-
ir að skák sé því miður ekki komin í
námskrá grunnskólanna í Reykja-
vík þótt tvær nefndir á vegum
menntamálaráðuneytisins hafi
mælt eindregið með því. Rann-
sóknir hafi sýnt að samhengi sé á
milli námsárangurs og skákkunn-
áttu. Kennarar og skólastjórnendur
séu margir hlynntir skákkennslu
og víða í Reykjavíkurskólunum sé
unnið gott starf. Skák þurfi að kom-
ast inn í námskrá, helst eina
kennslustund í viku.
Skák verði kennd
í grunnskólunum
Kolbrún
Baldursdóttir
Fjölbrautaskólinn er einnig að huga að fisktækninámi í
samvinnu við fiskvinnslufyrirtæki á Snæfellsnesi.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari segir að nú sé
að rísa glæsileg fiskverkun í Grundarfirði. Verið er að
stækka fiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar og á hún
að verða ein fullkomnasta fiskvinnsla í Evrópu. Verið er
að byggja nýtt hús sem verður 2.430 fermetrar á fyrstu
hæð og 275 fermetrar á annarri hæð en auk þess verður
núverandi fiskvinnsluhúsi breytt.
Hrafnhildur vonast til að samstarf takist við fyrir-
tækið um uppbyggingu fisktæknináms við skólann. „Það væri draumur-
inn ef hægt væri að koma þessu á næsta haust. Við þurfum að mennta
fólk í þessum greinum, fara að hugsa öðruvísi. Fólk hefur verið með staðl-
aðar hugmyndir um vinnu í fiski. Setur það í samband við erfiða vinnu og
vonda lykt. Það er allt að breytast,“ segir Hrafnhildur.
Hugað að kennslu í fisktækni
VILJA SVARA ÞÖRFUM ATVINNULÍFSINS
Hrafnhildur
Hallvarðsdóttir
Félags- og jafn-
réttismálaráð-
herra, Ásmundur
Einar Daðason,
hefur skipað
samstarfshóp
gegn félags-
legum undi-
boðum á vinnu-
markaði.
Formaður hóps-
ins verður Jón
Sigurðsson, fv. ráðherra og seðla-
bankastjóri. Með hópnum mun einn-
ig starfa Oddur Ástráðsson lögmað-
ur, skipaður af ráðherra án til-
nefningar.
Aðrir nefndarmenn eru skipaðir
samkvæmt tilnefningum ráðuneyta,
eftirlitsstofnana, lögreglu og skatta-
yfirvalda, samtaka atvinnulífsins,
sveitarfélaga og stéttarfélaga.
Samstarfshópnum er ætlað að
skila ráðherra skýrslu með niður-
stöðum sínum og tillögum í byrjun
febrúar á næsta ári.
Leiðir hóp gegn
félagslegum
undirboðum
Jón
Sigurðsson