Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Það er ekki bara umferðin íReykjavík sem er í lamasessi,
hið sama á við um
lýðræðisgáttir
borgarinnar.
Reykjavíkurborg
hefur á netinu
haldið úti vefjum
til samskipta borg-
aranna við borg-
ina, en í nýlegri
úttekt kemur fram
að þar virkar fátt
sem skyldi.
Í úttektinni segir að lítið sam-ræmi eða samtenging sé á
milli verkefna, að hlutverk og
markmið verkefna séu óskýr, að
viðmót sé óaðgengilegt, að
ógagnsæi sé í ferli og fram-
kvæmd og að ekki sé sýnt fram á
virði verkefnanna fyrir Reykja-
víkurborg og notendur.
Verra verður það varla, enDóra Björt Guðjónsdóttir,
borgarfulltrúi Pírata, er þessu al-
veg ósammála og vísar því „al-
gerlega á bug að samráðsverk-
efni borgarinnar séu í lamasessi“.
Hún telur að staða þessara sam-
ráðsverkefna sé aðeins „tækifæri
til betrumbóta“.
Og það er auðvitað ekki hægtað neita því, þegar allt er í
lamasessi eru vissulega tækifæri
til að gera betur. Ástandið getur
að minnsta kosti tæpast versnað.
Hið sama má segja um fram-kvæmdir borgarinnar, eins
og braggann sem fór margfalt
fram úr áætlunum. Þar er gríðar-
legt tækifæri til betrumbóta og
alls ekki útilokað að borgin geti
gert betur í næstu verkefnum.
Klúðrið verður í öllu falli ekkimikið stærra.
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
Tækifærin í
lamasessinum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Rjúpnaveiðitíminn hefst á morgun og má veiða í
tólf daga í haust eða föstudag, laugardag og
sunnudag, um þessa síðustu helgi í október og svo
fyrstu þrjár helgarnar í nóvember.
Rjúpnaskyttur sem ætla til fjalla um næstu
helgi þurfa að fylgjast vel með veðurspám, að
sögn Þorsteins V. Jónssonar, veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands. Veðurútlit er gott á vestan-
og sunnanverðu landinu á föstudag og megnið af
laugardeginum. Á föstudag getur orðið svolítið
hvasst af norðan eða norðvestan og éljagangur á
Austurlandi og Austfjörðum.
Á laugardagskvöld fer að þykkna upp og hvessa
á vestanverðu landinu þegar úrkomusvæði kemur
með hvassviðri og snjókomu til fjalla.
Veðrið færist svo austur yfir landið á sunnudeg-
inum og má búast við talsverðri úrkomu á öllu
Suðurlandi á sunnudag. Veðrið verður einna skást
á Norður- og Austurlandi á laugardag og sunnu-
dag og minnst úrkoma þar. Þar getur hvesst á
sunnudeginum. Þar bætir þó í vind og verður
ákveðin sunnanátt og getur orðið slydda eða snjó-
koma inn til fjalla. gudni@mbl.is
Rjúpnaveiðar hefjast á morgun
Ástæða er til að fylgj-
ast vel með veðurspám
Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson
Rjúpnaveiðar Veðurútlitið er ágætt fyrir byrjun
veiðitímabilsins en svo breytist veðrið.
Foreldrar þurfa að vera vakandi fyr-
ir einkennum sem fylgja grasneyslu
barna þeirra, að sögn Sigríðar Ástu
Eyþórsdóttur, iðjuþjálfa í Haga-
skóla. Erfiðara
getur verið fyrir
foreldra að átta
sig á einkennum
grasneyslu en ef
börnin hafa verið
að drekka áfengi.
„Foreldrar
þurfa að vera
vakandi fyrir
breyttri hegðun
krakkanna. Eru
þau orðin áhuga-
laus, hafa þau skipt um félagsskap,
eru þau að sækja í vinahópa í öðrum
hverfum, koma heim svöng og þreytt
eða er mæting í skóla orðin slök? Svo
fylgir þessu áberandi lykt. Svona at-
riði gera verið vísbending um að eitt-
hvað sé í gangi,“ sagði Sigríður.
Hún sagði að sé sterkur grunur
um grasneyslu sé mælt með því að
gera þvagprufu. Hægt er að kaupa
próf í apótekum sem mælir ummerki
um gras í þvagi í allt að þrjár vikur
eftir neyslu. Einnig er hægt að láta
framkvæma próf á heilsugæslu-
stöðvum.
„Það eru teikn á lofti í samfélaginu
um að grasreykingar séu að aukast á
meðal ungs fólks. Við þurfum að vera
mjög vel vakandi fyrir þessu, sér-
staklega á meðal ungra krakka. Það
eru dæmi um þetta alveg niður í 8.
bekk,“ sagði Sigríður. Í Hagaskóla
hefur verið rætt við nemendur og
boðið upp á fræðslu fyrir foreldra
um hættur sem fylgja grasreyking-
um. Sigríður sagði að nemendur hafi
rætt við hana um grasreykingar og
að einhverjir séu að prófa þær.
„Þau tala um hvað aðgengi að
grasi sé auðvelt. Það er til dæmis
hægt að útvega það í gegnum hina
ýmsu samfélagsmiðla,“ sagði Sigríð-
ur. Hún sagði að viðhorf ungling-
anna gagnvart grasreykingum væri
jákvæðara en æskilegt væri.
„Viss hópur lítur svo á að gras-
reykingar séu ekki jafn skaðlegar og
að fá sér í glas. Grasið sé lífrænt og
úr jurtaríkinu. Þau hafa líka fyrir-
myndir úr sjónvarpsþáttum og öðru
þar sem þetta er gert mjög eðlilegt.
Það er hættuleg þróun,“ sagði Sig-
ríður. Hún benti á að rannsóknir
sýni að unglingadrykkja sé ekki að
aukast. Hins vegar séu vísbendingar
um að grasneysla færist í aukana hjá
yngri krökkum. gudni@mbl.is
Foreldrar þurfa að
þekkja einkennin
Grasreykingar virðast færast í vöxt
Sigríður Ásta
Eyþórsdóttir