Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, hefur sagt starfi sínu lausu en hann hefur gegnt því undanfarin 18 ár. Á nýju ári mun Guðjón hefja störf við uppbyggingu á nýjum miðbæ á Selfossi. Starf upplýs- ingafulltrúa Ice- landair verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum og eflaust verða margir sem sækja um þetta spennandi starf. „Þessi breyt- ing hefur staðið til nú í nokkurn tíma. Ég er ekki alveg farinn, mun verða hér eitthvað áfram og nýrri manneskju til halds og trausts fram eftir vetri áður en leiðir skilja milli mín og Icelandair,“ segir Guðjón í samtali við Morgunblaðið. „Ég er Selfyssingur að uppruna og hef undanfarin misseri verið þátttakandi í þróun hugmynda um nýjan miðbæ þar ásamt fleirum og það verkefni er nú komið á fullt eftir að íbúar samþykktu það í kosningu sem haldin var í sumar. Þetta er stórt og geysilega spennandi verk- efni og ég ætla nú í það af fullum krafti. Mér rennur eiginlega blóðið til skyldunnar eftir það traust sem Selfyssingar sýndu okkur í kosning- unum. Við höfum beðið eftir leyfi frá bæjarfélaginu til að geta hafið fram- kvæmdir, og vonandi getum við byrjað að grafa á næstu dögum.“ Sigtún þróunarfélag er með áform um að byggja upp í miðbæ Selfoss um 35 hús í klassískum ís- lenskum stíl, þétt saman með versl- unum, íbúðum, skrifstofum, veit- ingahúsum, sýningum, hóteli og gististöðum og fleiru. „Við Leó Árnason, sem er Selfyssingur eins og ég, höfum þróað þessa hugmynd saman, en með aðstoð fjölmargra annarra,“ segir Guðjón. Íbúðakosn- ing um nýtt skipulag fór fram 18. ágúst s.l. og voru 58,5% hlynnt nýju aðalskipulagi og 39,1% andvíg. Selfoss verði enn betri bær „Það er framundan mikið upp- byggingarstarf með heimamönnum og íslensku og erlendu fagfólki sem snýr að t.d. arkítekúr og sögu, ásamt stefnumótunar-, markaðs- og menningarstarfi. Við ætlum að reyna að gera þetta eins vel og við getum og gera Selfoss á næstu árum að enn betri bæ en í dag fyrir heimamenn og í leiðinni að spenn- andi áfangastað fyrir íslenska og er- lenda gesti. Að þessu stendur frá- bær hópur sem ég hlakka til að vinna með,“ segir Guðjón. Guðjón er í hópi þeirra sem hvað lengst hafa verið í starfi upplýsinga- fulltrúa hérlendis og eflaust sá sem þjóðin hefur oftast heyrt í fréttum. Guðjón var búinn að vinna í yfir 20 ár á fjölmiðlum, í auglýsingageir- anum og almannatengslum, m.a. á Vísi, Helgarpóstinum, Morgun- blaðinu og Stöð 2, áður en hann hóf störf hjá Flugleiðum, eins og fyrir- tækið hét þá, í september árið 2000. Hann telur óvírætt að fjölmiðla- reynslan hafi komið sér vel í starfi upplýsingafulltrúa, skilningur á eðli og þörfum fjölmiðla og fjölmiðla- fólks sé nauðsynlegur fyrir þetta starf. „Í þau 18 ár sem ég hef verið hjá Icelandair hefur félagið verið í frétt- um meira og minna á hverjum ein- asta degi. Það er bara eðlilegt vegna umfangs og eðlis starfseminnar og hversu djúpar rætur það á í sam- félaginu. Það eru smáfréttir og stór- fréttir, en þetta er orðin löng vakt.“ Hann kveðst hafa unnið náið með öllum forstjórum Icelandair, áður Flugleiða, allan þennan tíma og samstarfið hafi gengið vel. Miklir umbrotatímar „Starfið er fjölbreytt og skemmti- legt og aðeins hluti þess snýr út á við, þ.e. að vera talsmaður félagsins gagnvart fjölmiðlum. Hluti þess snýr að þátttöku í almennri stjórnun félagsins sem mér hefur þótt heillandi, enda starfar fyrirtækið í alþjóðlegu umhverfi og margt á dag- ana drifið undanfarin 18 ár, t.d. hryðjuverkin 9/11 2001, hamagang- urinn fyrir hrun, hrunið sjálft, Eyja- fjallajökulsgosið og svo vöxturinn núna undanfarin ár og uppbygging ferðaþjónustunnar, svo eitthvað sé nefnt. Það er gaman að hafa verið með í ákvarðanatöku um helstu þætti í flugi- og ferðaþjónustu á þessum umbrotatíma, sem hefur valdið grundvallarbreytingum í samfélaginu, og mikill heiður að hafa verið treyst fyrir því svona lengi að tala fyrir hönd þess öfluga liðs sem myndar Icelandair.“ Nýr miðbær Sigtún þróunarfélag er með stórhuga áform um að byggja upp í miðbæ Selfoss um 35 hús í klassískum íslenskum stíl. Guðjón Arngrímsson mun starfa við þetta verkefni næstu árin. Úr fluginu í uppbyggingu  Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur sagt starfi sínu lausu en hann hef- ur gegnt því undanfarin 18 ár  Mun einbeita sér að uppbyggingu á nýja miðbænum á Selfossi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Icelandair Starfsemi félagsins hefur vaxið ótrúlega mikið þau 18 ár sem Guðjón hefur verið talsmaður þess og áfangastöðum fjölgar ár hvert. Guðjón Arngrímsson Tölvumynd/Batteríið Arkítektar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.