Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Tæplega tvö þúsund
manns bíða eftir lið-
skiptaaðgerðum og
biðtími er um tvö ár.
Embætti landlæknis
ber lögum samkvæmt
að hafa eftirlit með
heilbrigðisþjónustunni.
Í skýrslu Landlæknis
árið 2016 segir: „Bið-
tími eftir læknisþjón-
ustu og ýmsum skurð-
aðgerðum á Íslandi er
oft langur. Samkvæmt könnunum
Embættis landlæknis bíða meira
en 80% sjúklinga lengur en tvö ár
eftir mjaðmarskiptum eða hnjá-
skiptum. Erlendis gilda víða þau
viðmið að meira en 80% sjúklinga
skuli komast í þessar aðgerðir
innan þriggja mánaða.“ Í sömu
skýrslu Landlæknis 2016 setti
embættið ákveðin viðmiðunar-
mörk um það sem getur talist
ásættanleg bið eftir heilbrigðis-
þjónustu. Eftirfarandi viðmið
skyldu gilda:
Samband við
heilsugæslustöð sam-
dægurs.
Viðtal við heilsu-
gæslulækni innan
fimm daga.
Skoðun hjá sér-
fræðingi innan 30
daga.
Aðgerð/meðferð
hjá sérfræðingi innan
90 daga frá grein-
ingu.
Biðtími eftir
aðgerð
Í skýrslu Embættis landlæknis:
„Biðlistar eftir völdum aðgerðum í
febrúar 2018“ kemur fram að í
febrúar 2018 voru samtals 709
komnir á formlegan biðlista eftir
gervilið í hné og 385 á biðlista eftir
gervilið í mjöðm eða samtals 1094.
Í þessari skýrslu Landlæknis segir
ennfremur: „Mikilvægt er að hafa
í huga að í umfjöllun um bið er
miðað við hve lengi fólk hefur beð-
ið frá því það fór á biðlista. Þannig
er tími sem fólk beið eftir að kom-
ast að hjá skurðlækni á aðgerðar-
stað, sem metur hvort ástæða sé
til að gera aðgerð, ekki talinn með
í biðtíma. Bið eftir tíma getur
hlaupið á mánuðum en ásættanleg
bið eftir skoðun hjá sérfræðingi er
30 dagar samkvæmt viðmiðum
Embættis landlæknis.“
Vinur minn greindist nýlega
með samangróinn mjaðmarlið með
tilheyrandi verkjum og hömlun á
hreyfigetu. Í ljós kom að hann
þarf að bíða í tæp tvö ár eftir að-
gerð á LSH eða sem hér segir: a)
Tími frá því heimilislæknir sendir
beiðni til LSH um skoðun á
göngudeild þar til svar barst:
Tveir mánuðir. b) Biðtími eftir
boðun LSH í viðtal og skoðun á
göngudeild: 6- 8 mánuðir og c)
Biðtími eftir aðgerð frá skoðun á
göngudeild samkv. bæklunarlækni;
12 mánuðir. Þegar viðkomandi hef-
ur verið á formlegum biðlista leng-
ur en þrjá mánuði á hann lagalega
séð rétt á að leita læknisaðgerðar
erlendis á kostnað Sjúkratrygg-
inga. Hugsanlega er biðtíminn eft-
ir skoðun á göngudeild þess vegna
svona langur?
Að ráði trúnaðarlæknis fyrir-
tækisins sem vinur minn starfar
hjá hefur hann verið frá vinnu sl.
tvo mánuði og verður svo áfram
þar til hann verður vinnufær.
Hann þjáðist verulega vegna
verkja í mjöðminni og átti þess
vegna erfitt með gang, notaði tvær
hækjur.
Liðskiptaaðgerðir í Klíníkinni
Ég ráðlagði vini mínum að leita
til Klíníkurinnar í Ármúla. Hann
komst strax í viðtal hjá lækni og
þar sem losnaði aðgerðadagur, þá
fór hann í aðgerð vikuna á eftir,
en annars er víst um 4-6 vikna bið
hjá þeim. Sjúkratryggingar Ís-
lands (SÍ) hafa formlega óskað eft-
ir leyfi heilbrigðisráðherra til að
gera tímabundinn samning við Klí-
níkina til að framkvæma mjaðma-
og hnjáliðskiptaaðgerðir hérlendis
en ráðherra hafnað þeirri fyrir-
ætlan. Því þurfa sjúklingar að
greiða aðgerðina úr eigin vasa sem
kostar kr. 1,2 milljónir.
Klíníkin framkvæmdi samt 62
mjaðma- og hnjáliðaaðgerðir 2017.
Læknar Klíníkurinnar hafa eins og
fjallað hefur verið um í fréttum
farið ferð með sjúklinga á einka-
rekið sjúkrahús í Sviþjóð og fram-
kvæmt aðgerðir þar sem greiddar
hafa verið að fullu af SÍ til sænska
sjúkrahússins. Hefur þetta vakið
margar spurningar um meðferð
skattfjár í heilbrigðiskerfi okkar
því kostnaður SÍ er tvöfaldur við
sambærilega aðgerð erlendis en
verðskrá Klíníkurinnar og er þá
ekki tekið tillit til óhagræðis sjúk-
lingsins og aðstandenda vegna að-
gerða í öðru landi.
Í tilfelli vinar míns var þetta
mjög einfalt reikningsdæmi. Það
borgar sig fyrir hann að greiða
sjálfur þessa aðgerð á Klíníkinni í
stað þess að bíða 20 mánuði eftir
skoðun á göngudeild og aðgerð á
LSH, já og til að halda vinnunni!
Hann mun leita eftir stuðningi
sjúkrasjóðs stéttarfélags síns sem
mundi hvort eð er hafa þurft að
borga honum 80% launa í níu mán-
uði eða samtals um 4 milljónir.
Síðan mun Tryggingastofnun
greiða honum dagpeninga í minnst
eitt ár eða 4 milljónir til viðbótar.
Ég ræddi við vin minn eftir að-
gerðina á Klíníkinni. Hún tókst
mjög vel og sólarhring eftir að-
gerðina er búið að útskrifa hann.
Þjónustan einstaklega fagmannleg
og góð. Einkaherbergi í sérstakri
álmu hótelsins í Ármúla. Þá líst
honum mjög vel á eftirfylgni
læknanna því hann verður í
sjúkraþjálfun í sama húsi og Klí-
níkin. Sem sagt fyrsta flokks
sjúkraþjónusta og eftirfylgni.
Þessir löngu biðlistar verða
næstu sjö árin eða þar til nýr með-
ferðarkjarni LSH er risinn.
Sjúkratryggingar eiga þess vegna
að fá leyfi ráðherra til að huga
betur að hag sjúklinga og semja
strax við Klíníkina í Ármúla um að
taka að sér mjaðma- og hnjálið-
skiptaaðgerðir til að grynna á
þessum langa biðtíma og biðlista
til að létta þjáningar viðkomandi
sjúklinga. Ég vona að heilbrigðis-
ráðherra sé mér sammála og taki
frumkvæði í þessu máli með hag
sjúklinga að leiðarljósi. Hvað
finnst þér lesandi góður?
Neyðarástand í liðskiptaaðgerðum
Eftir Jón Hjaltalín
Magnússon » Sjúkratryggingar
eigi að fá leyfi ráð-
herra til að semja strax
við Klíníkina í Ármúla
um að taka að sér
mjaðma- og hnjálið-
skiptaaðgerðir.
Jón Hjaltalín
Magnússon
Höfundur er verkfræðingur og
áhugamaður um þjóðmál.
jhm@simnet.is
F
IM
M
TU
DAGSLEIKU
R
•
M
O
RGUNBLAÐ
SI
N
S
•
FINNDU
HAPPATÖLUNA
Í BLAÐINU
– og þú gætir dottið
í lukkupottinn