Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 58

Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 ✝ Hannes ReynirSigurðsson fæddist í Keflavík 30. júní 1939. Hann lést á heimili sínu 13. október 2018. Hannes var son- ur hjónanna Sig- urðar Jóhanns Guðmundssonar bifreiðastjóra, f. 21.7. 1906, d. 1.5. 1965, og Sigrúnar Hannesdóttur húsmóður, f. 22.9. 1911, d. 24.7. 2001. Syst- kini Hannesar eru: Guðmundur, f. 10.6. 1933, d. 24.10. 2013, Arnbjörg, f. 1.9. 1934, d. 6.4. 1987; Tyrfingur Hafsteinn, f. 13.6. 1936, d. 30.6. 2004; Sig- urður Vignir, f. 26.4. 1941; Guðni Sigurbjörn, f. 16.3. 1944; Grétar Þór, f. 26.3. 1945, d. 24.11. 1945; Grétar Þór, f. 4.1. 1947; Lilja Björk, f. 24.7. 1951. Margrét Arnardóttir, f. 24.11. 1964, gift Guðmundi Svavars- syni, f. 1.5. 1965. Þeirra börn: a) Örn Steinar, f. 10.12. 1983, b) Sigurjón Þór, og c) Dagmar Ósk, f. 13.5. 1998. 2) Örn Arn- arson, f. 26.8. 1970, d. 26.5. 1994. Langafabörnin eru fimm talsins. Hannes Reynir ólst upp í Keflavík. Hann starfaði hjá Varnarliðinu sem ungur maður. Hannes lærði bifvélavirkjun og rak síðar bílaverkstæðið Bíla- vík í Keflavík. Hann vann ýmis störf, m.a. við uppsetningu á vélum. 1983 fluttust þau Dag- mar til Reykjavíkur, þá vann hann hjá Fóðurblöndunni sem Guðbjörn Guðjónsson rak. Fyrst vann hann við bíla- viðgerðir hjá Guðbirni, síðar sem umsjónarmaður. Þá vann hann sem næturvörður hjá Vá- tryggingarfélaginu VÍS. Sein- ustu starfsárin vann Hannes í Bláfjöllum við viðhald og við- gerðir. Útför Hannesar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 25. október 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Eftirlifandi eiginkona Hann- esar er Dagmar Jó- hannesdóttir, f. 24.7., 1943. Þau gengu í hjónaband 31.12. 1984. Börn Hannesar: 1) Sig- rún, f. 28.9. 1961, gift Snorra Snorra- syni, f. 2.12. 1961. Börn þeirra: a) Hildur Rakel, f. 6.10. 1980, sambýlismaður Brynjar Már Bjarnason, þau eiga tvo syni. b) Helga Rut, f. 20.3. 1991, sambýlismaður hennar Valur Úlfarsson, þau eiga einn son. c) Hannes Reyn- ir, f. 30.5. 1994. 2) Margrét Harpa, f. 20.1. 1971, gift Jóni Einarssyni, f. 8.4. 1970. Börn þeirra: a) Jessý Rún, f. 31.1. 1997, b) Einar, f. 18.5. 2006. Börn Dagmarar: 1) Anna Hugurinn reikar til baka er ég sest niður og skrifa nokkrar línur um Hannes R. Sigurðsson, tengdaföður minn. Leiðir okkar lágu saman fyrir tæpum 30 árum er við tengdumst fjölskyldubönd- um. Margar góðar samveru- stundir höfum við átt á þessu tímabili. Ófáar stundir á Flúðum í sumarbústaðnum þeirra Döggu, þar var alltaf glatt á hjalla og hlý- legt viðmót þegar fjölskyldan að norðan kom og dvaldi. Um jól og áramót skiptumst við á að dvelja hvort hjá öðru ásamt því að ferðast saman til útlanda. Hann- es var þúsundþjalasmiður og lét ekkert stöðva sig er viðkom við- gerð á vélum, bílum og viðhaldi húsa. Hann átti ráð undir rifi hverju og leitaði ég oft ráða hjá honum. Þegar við hjónin heimsóttum Hannes og Döggu til Reykjavík- ur fórum við Hannes yfirleitt bryggju- og bílasölurúnt og átt- um við þar góðar samverustund- ir. Hannes hafði mikinn áhuga á bátum en hann gerði út smábáta á yngri árum. Í þessum ferðum voru sagðar margar góðar sögur sem ég geymi. Hannes var fylginn sér en stutt var í húmorinn hjá honum. Rólegur og yfirvegaður en ákveð- inn maður. Hann gerði ekki mannamun, talaði við alla og hafði lag á fólki. Fljótlega fór manni að þykja vænt um Hannes og að meta hreinskilni hans. Genginn er góður maður. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Guðmundur J. Svavarsson. Í dag kveð ég tengdapabba minn, Hannes Reyni Sigurðsson. Ég hitti Hannes í fyrsta sinn í gamla sumarbústaðnum hans að Flúðum sumarið 1988, þá sem til- vonandi tengdasonur hans. Ég man að hann tók mér fagnandi og urðu strax kærleikar á milli okkar. Hannes var laghentasti maður sem ég hef kynnst. Hannes var snillingur í því, að byggja upp vélar, báta og bíla. Hjá Hannes voru engin vandamál, bara lausn- ir. Eins og oft vill vera með þá sem hafa yfirburði á þessu sviði, þá var Hannes algjör f́ullkomn- istı́ og þar af leiðandi hundleið- inlegt að vinna með honum, eins og er með alla snillinga. Í þau fáu skipti sem Hannes bað mig um að aðstoða sig, þá fólst aðstoðin að- allega í því að Hannes sýndi mér hvernig ætti að gera þetta. Ég bara horfði á og umlaði gáfulegu „já-i“ með hæfilegu millibili, með- an Hannes kláraði verkið. Hannes var mikill sagnamaður og eins og sagnamönnum er títt, þá sagði hann oft sömu söguna, en með mismunandi áherslum. Ég hlustaði alltaf með athygli, sama hversu oft ég hafði heyrt frásögnina og skaut inn spurn- ingum á réttum stöðum og þá svaraði Hannes alltaf með orðun- um, „Já, ég skal segja þér það lagsmaður“ og brosti. Hannes lét ekki segja sér neitt og hafði mjög fastmótaðar skoð- anir á eiginlega öllu. Þegar Hannes horfði hvasst á mann, barði tveimur puttum í borðið og sagði „Nei, heyrðu nú. Það þarf ekkert að segja mér....“, þá var ég fljótur að pakka saman og breyta um umræðuefni. Eitt skiptið þeg- ar ég var hjá honum í sumarbú- staðnum og hann bauð mér grill- að lambalæri á diskinn, sagði ég honum að ég væri orðin græn- metisæta, þá svaraði hann „lömb- in borða gras“ og ég borðaði kjötið. Hannes heimsótti okkur til Englands og til Miðvestur- Bandaríkjanna. Það var einstak- lega gaman að fá hann í heim- sókn. Hannes hafði þann vana í ferðum sínum að kíkja á safn- hauga fyrir vélahluti, bíla og báta. Þar gat hann dvalið lengi í leit að einhverjum hlut sem gæti fengið nýtt líf í höndunum á hon- um, því alltaf var hann að smíða og gera við vélar, báta og bíla. Það var gaman að fylgjast með Hannesi þegar hann var að leita í haugum af vélahlutum og prútta um verð við karlana. Ef ekkert varð af viðskiptunum og ég spurði: Hvernig gekk?, þá svar- aði Hannes, „Þeir skilja ekkert hvað ég er að tala um. Ég held að þeir tali bara ekki ensku“, en ef af viðskiptunum varð, þá svaraði hann „Já, já, þessir vissu hvað ég var að tala um“. Málið sem þeir töluðu var vélamál og Hannes talaði það reiprennandi. Oft var fjör í sumarbústaðn- um hjá Hannesi, sérstaklega þegar Bjössi bróðir hans var í heimsókn. Þá var mikið sungið og ég man að Hannes tók alltaf hástöfum undir þegar eftirfar- andi laglínur voru sungnar, Suður um höfin að sólgylltri strönd sigli ég fleyi mínu til að kanna ókunn lönd. Lífið er sigling og nú er Hannes kominn bak við ystu sjónarrönd. Hannes gaf ónýtum hlutum nýtt líf og nú hefur himna- smiðurinn fengið þann besta. Ég á eftir að sakna hans, en ég veit að við hittumst á ný og þá segir hann mér sögurnar: „Ég skal segja þér það lagsmaður.“ Snorri Snorrason. Leiðir okkar Hannesar lágu saman árið 1995, þegar ég kynntist Margréti dóttur hans. Tíminn hefur því verið nægur til að kynnast vel og eiga saman góðar stundir. Samt er tíminn einhvern veginn aldrei nægur. Hannes og Döggu hitti ég fyrst þegar ég kom út á Álftanes, þar sem þau bjuggu. Ungir menn eru dálítið titrandi þegar þeir hitta tilvonandi tengdaforeldra fyrst, en það var auðvelt að kynnast Hannesi og Döggu. Hannes var ekki margorður, hann var hæglátur maður sem vildi láta verkin tala, enda ein- stakur verkmaður. Það var því oftast spjallað meðan verið var að vinna eitthvað saman. Fyrir nokkrum árum þá keypti ég mér í mikilli bjartsýni fornmótorhjól með hliðarvagni, sem ég sannfærði sjálfan mig um að ég gæti haldið við sjálfur milli þess sem ég dáðist af myndum af gripnum á netinu og sá sjálfan mig fyrir mér þeysast um í íslenskri sól og stillu. Þetta er rússneskt mótorhjól sem hannað var í síðari heimsstyrj- öldinni og maðurinn sem annað- ist kaupin fyrir mig erlendis sagði mér að það væri lykilatriði við svona kaup að eiga hlýjan bíl- skúr og nægan frítíma. Ef hr. Mincinauskas er að lesa þetta núna, þá vil ég segja honum að það er enn mikilvægara að eiga tengdaföður sem er snillingur í vélaviðgerðum. Hannes hjálpaði mér að halda gripnum gangandi fyrstu árin, seinustu árin hefur mér tekist að gera við sjálfur, svo eitthvað hefur honum tekist að kenna mér. Ég margbauð Hannesi að fá hjólið lánað og taka jafnvel Döggu með í hliðar- vagninum og bjóða henni upp á ís. Einhvern veginn hefur aldrei orðið af því, sennilega hefur hon- um ekki þótt þetta ökutæki sér- staklega virðulegt. Döggu stendur þó ísrúnturinn enn til boða. Hannes keypti fjórhjól fyrir einhverjum árum síðan og not- aði það mest upp í bústað. Hann var búinn að smíða á það snjó- tönn og skóflu. Þannig að það var nýtt í að ryðja snjó, til moksturs eða til að draga kerru. Svo var það, að stundum þurfti að vinna verk í nokkurri hæð, t.d. að klippa tré eða mála þak- kant. Hann smíðaði því pall framan á hjólið og festi þar tröppur og hjólið virkaði því sem færanlegur vinnupallur. Nema hvað hjólið var orðið dálítið framþungt og valt, hann nýtti því það sem var hendi næst og festi aftan á hjólið utanborðs- mótorinn af bátnum sem hann hafði smíðað, til að þyngja hjólið að aftan. Það kom glampi í augu Hannesar þegar hann sagði frá fólkinu sem átti leið hjá og var að velta þessu tæki og manninum fyrir sér og horfði alveg sérstak- lega hugsi á utanborðsmótorinn. Hannes var alla tíð mjög hraustur og sterkur. Það var upp í bústað fyrir tæpum þrem- ur mánuðum síðan, að ég var að moka undan bústaðnum þar sem Hannes Reynir SigurðssonÚtför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA SÍMONARSONAR HÁKONARSONAR bónda, Haga, Barðaströnd. fer fram frá Hagakirkju laugardaginn 27. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Þennan dag verður aukaferð með Baldri frá Stykkishólmi kl. 09.30 og til baka frá Brjánslæk kl. 17.30. Kristín Ingunn Haraldsdóttir Björg Bjarnadóttir Eiríkur Jónsson Margrét Bjarnadóttir Kristján Finnsson Jóhanna Bjarnadóttir Árni Þórðarson Hákon Bjarnason Birna Jónasdóttir Kristín Bjarnadóttir Haraldur Bjarnason María Úlfarsdóttir Gunnar Bjarnason Regína Haraldsdóttir afa- og langafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR PÁLSSON frá Stóruvöllum í Bárðardal, fyrrum garðyrkjubóndi í Gufudal og verkstjóri hjá Hagvirki, lést föstudaginn 19. október á Land- spítalanum í Fossvogi. Jarðarförin fer fram í Hveragerðiskirkju laugardaginn 3. nóvember klukkan 14. Guðbjörg S. Birgisdóttir Guðmundur G. Norðdahl Sævar Birgisson Gerður Sævarsdóttir Brynja Birgisdóttir Bjarni Kristinsson Árni Birgisson Ásta Hólm Birgisdóttir Sigurbjörg Birgisdóttir Þorsteinn Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, LILJA GRÉTARSDÓTTIR búvísindakandídat, Hávarsstöðum, Hvalfjarðarsveit, lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 19. október. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 30. október klukkan 14. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Julio Gutierrez Narcisa Gutierrez Emiliano Gutierrez Hólmfríður Gísladóttir Grétar Jónsson Sigríður Hilda Radomirsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR Núpalind 6, Kópavogi, lést miðvikudaginn 3. október. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 29. október klukkan 15. Kristjana Bjarnadóttir Þorsteinn Sigurðsson Ólöf Bjarnadóttir Guðlaugur G. Jónsson Ása Bjarnadóttir Árni Valur Árnason Elín Hreindal Bjarnadóttir Birna Bjarnadóttir Gísli Örn Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR frá Sandbrekku, Hjaltastaðarþinghá, Laufási 5, Egilsstöðum, lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju föstu- daginn 19. október. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 27. október klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisþjónustu á Fljótsdalshéraði. Erlendur Steinþórsson Þorbjörg Gunnarsdóttir Þorsteinn Ingi Steinþórsson Steinunn Ásmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Frændi okkar, JÓN ÞORBERG VALDIMARSSON sem lést föstudaginn 12. október, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 31. október klukkan 13. Valdimar Guðlaugsson Ólína Guðlaugsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, LÁRA VILHELMSDÓTTIR ljósmóðir, Ægisgötu 14, Ólafsfirði, lést föstudaginn 19. október. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 27. október klukkan 14. Jóna Vilhelmína Héðinsd. Sigfríður Héðinsdóttir Ingimundur Sverrisson Lára og Héðinn Ingimundarbörn Okkar yndislega SNÆDÍS GUNNLAUGSDÓTTIR, lögfræðingur og jarðvinur, er látin. Fjölskyldan Kaldbak

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.