Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 40
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Satin stripe dúnkoddi. Tvöfalt lag. 500 gr. Moskus dúnn og smáfiður. Stærð: 50x70 cm. SATIN STRIPE koddi Fullt verð: 9.900 kr. Aðeins 7.920 kr. 20% AFSLÁTTUR Afmælis DORMALUX heit dúnsæng Dásamleg, heit dúnsæng frá Quilts of Denmark. Stærð: 140×200 cm. 800 g. 90% hreinn andadúnn. 10% smáfiður. Má þvo á 60°c en það er hitastig sem rykmaurar þola ekki – því er gott að nota sæng sem þolir þennan þvottahita ef um rykofnæmi er að ræða. Fullt verð: 27.900 kr. Aðeins 19.530 kr. 30% AFSLÁTTUR Afmælis MISTRALHOME –ÓTRÚLEGTÚRVAL Rúmfötin frá Mistral home eru úr bómullarsatíni. Rúmfötin eru með 300 gsm bómullarþræði sem tryggir frábæra endingu, viðkomu ogmýkt. Mistral Home sængurföt Fullt verð: 8.900 kr. AFMÆLISVERÐ aðeins 6.900 kr. COLOURBLOCK – blue-grey COLOURBLOCK – greyge HASTI – anthracite MAMPHIS – grey-lilac SIVAN – black-white SATIN STRIPE – anthracite SATIN STRIPE – gull grey SATIN STRIPE – white WILLIAM – blue-turquoise WILLIAM – taupe-pink SQUARE – black-white HASTI – blue dark LOST – black-white LUNA – darkgrey / light gray www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN Dormaá afmæli og þá er veisla Afgreiðslutími Rvk Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum) Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi) Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI Það er áhugavert að fylgjast með því hvaða íslensku rit- hendur eru dýrastar á uppboðsvefjum eins og Ebay en eiginhandaráritanir frægra ganga þar kaupum og sölum. Undanfarið hafa íslensku knattspyrnumennirnir verið með dýrustu áritanirnar og næst á eftir kemur hljóm- sveitin Of Monsters and Men. Fyrir 30.000 krónur ís- lenskar má fá eiginhandaáritun íslenska karlalandsliðs- ins í knattspyrnu og hvað staka leikmenn varðar er hægt að fá bolta áritaðan af Aroni Einari Gunnarssyni á tæpar 30.000 kr. Það vekur athygli að jólakort sem Kristján Eldjárn fyrrverandi forseti hefur sent í nafni embættis síns er einnig til sölu á Ebay á svolítinn pening eða um 20.000 kr. íslenskar og áritun annars fyrrverandi forseta lýðveldisins, Ólafs Ragnars Grímssonar er á uppboði á um 15.000 kr. Af íslenskum tónlistarmönnum eru Of Monsters and Men dýrastir en mynd með áritun þeirra er til sölu á um 20.000 kr. Áritun Kristjáns Eldjárns er nokkuð dýr á Ebay miðað við íslenskar eiginhandaráritanir. Ljósmynd/Skjáskot af Ebay Dýrustu áritanirnar Vinsældir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu endurspeglast í vinsældum eiginhandaráritana leikmannanna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á uppboðsvefjum fæst ýmislegt sem ekki finnst úti í búð og þar á meðal íslenskar eiginhandaráritanir. Mætur maður í Reykjavík, sem kýs að kalla sig „Áhorfanda“, skrifar eftirfarandi bréf 6. sept- ember 1970: „Kæri Velvakandi! ÍSÍ er að hleypa af stokkunum hreyfingu, sem á að ná til allra landsmanna til verndunar heilsu og líkamsþreki. Búið er að ráða framkvæmdastjóra, og unnið er að öflun fjármagns til að standa straum af kostnaðinum, sem þessu er samfara. En menn eru í vanda. Hvað á barnið að heita? Okkur vantar orð, sem hægt er að nota í þessu sambandi, orð, sem er stutt og munntamt. Venja okkar er sú, að ný orð verða að merkja eitthvað, fela í sér skýringu á verknaðinum, hlutnum o.s.frv. Annars getum við ekki fellt okkur við orðið. Er- lendis er orðið „trim“ notað um þessa starfsemi. Ég fyrir mitt leyti felli mig ágætlega við þetta orð. Ég dreg mjög í efa, að unnt sé að finna orð, sem fullnægir kröfum okkar, og þá er ekki um annað að ræða en velja næst- bezta kostinn. Orðið trimm er þjált og auðvelt í beygingu. Nafnorðið yrði þá trimm, í hvor- ugkyni með greini trimmið. Sögnin yrði að trimma í þátíð trimmaði, lýsingarhætti nútíðar trimmandi og lýsingarhætti þá- tíðar trimmað. Sá sem trimm- aði, væri nefndur trimmari, og Sigurður Magnússon fengi starfsheitið trimmstjóri. Hvað segir þú um þetta?“ GAMLA FRÉTTIN Má það heita trimm? Fyrst var talað um að trimma, svo skokka en nú er mest rætt um að hlaupa. Morgunblaðið/Þorkell ÞRÍFARAR VIKUNNAR Magnús Hreggviðsson ráðgjafi. Jón Karl Ólafsson formaður aðalstjórnar Fjölnis. Joe Manchin bandarískur þingmaður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.