Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  258. tölublað  106. árgangur  STERKAR KVEN- HETJUR Í LÉTTU SMARTLANDI ÞRÍTUGIR FJÓR- BURAR FRÁBÆR FYRSTA LEIKTÍÐ SVÖVU Í ATVINNUMENNSKU SYSTRAGLEÐI BAKSÍÐA EIN ÞRIGGJA BESTU Í NOREGI ÍÞRÓTTIR32 SÍÐNA SÉRBLAÐ „Þessi tími er svolítið í móðu hjá mér. Ég skil samt ekki hvernig ég komst í gegnum þetta. En undir lokin fékk ég taugaáfall á spítal- anum. Þá gjörsamlega brotnaði ég niður, það var enginn sérstakur að- dragandi, það bara þyrmdi yfir mig, mér sortnaði fyrir augum og ég gat ekki dregið andann. Mér fannst ég vera að kafna og það spratt fram kaldur sviti. Mér leið eins og ég væri að deyja,“ segir Sunna Elvíra Þorkelsdóttir m.a. í viðtali í tímariti Smartlands sem kemur út í fyrsta sinn í dag. Sunna komst í fréttir fyrr á þessu ári þegar hún féll á milli hæða á heimili sínu á Spáni. Sunna Elvíra dvaldi í 12 vikur á spítala á Spáni, bæði í Malaga og í Sevilla. Í dag er hún lömuð fyrir neðan brjóst og býr í sérútbúinni íbúð fyr- ir fatlaða ásamt dóttur sinni. Sunna hefur verið í endurhæfingu á Grensási og lýsir m.a. þeirri reynslu í viðtalinu. mm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Lömuð Sunna Elvíra tekst nú á við nýjan veruleika í hjólastól. Eins og ég væri að deyja  Sunna Elvíra í tímariti Smartlands  Ekið var á 295 hreindýr frá árinu 1999 til apríl 2018, sam- kvæmt upplýs- ingum úr gagna- grunni Náttúrustofu Austurlands (NA). Einkum er ek- ið á hreindýr á veturna þegar aðstæður eru slæm- ar, hálka, myrkur og lélegt skyggni, á sama tíma og hreindýrin leita í auknum mæli niður á lág- lendi í nágrenni við vegi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu NA, Ekki keyra á hreindýr! sem samin var fyrir Vegagerðina. »14 Ekið var á 295 hreindýr á 20 árum Hreindýr Verða fyr- ir bílum á vetrum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Svo gæti farið að útflutningsverð- mæti afurða uppsjávartegunda minnkaði um hátt í 20 milljarða króna á næsta ári frá yfirstandandi ári. Áætlað er að útflutningsverð- mæti uppsjávarfisks í ár verði um 47,5 milljarðar, en miðað við þær for- sendur sem nú liggja fyrir gætu það orðið um 28,3 milljarðar á næsta ári. Fyrir fimm árum, árið 2013, var út- flutningsverðmætið í hæstu hæðum og var um 80 milljarðar króna. Yrðu að draga saman seglin Samkvæmt ráðgjöf Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins verður verulegur samdráttur í makríl- og kolmunna- afla á næsta ári og engin loðnuveiði samkvæmt niðurstöðum mælinga Hafrannsóknastofnunar. Hins vegar er gert ráð fyrir yfir 50% aukningu í norsk-íslenskri síld eftir samdrátt síðustu ár. Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, segir að verði þessi sviðsmynd að veruleika þýði það gífurlegt högg fyrir fyrirtækin, en ekki síður og jafnvel enn meira fyrir samfélögin. Hann segir að uppsjávarfyrirtækin séu yfirleitt öflug. Þau hafi verið að byggja upp og hagræða og hafi nýtt gott árferði síðustu ár til að styrkja sig. Fyrirtækin muni verða að bregðast við með því að draga saman seglin. „Uppsjávarfyrirtækin eru komin mun lengra heldur en bolfiskurinn í hagræðingu, auk þess sem þau eru flest blönduð og hafa þá einhverja sveiflujöfnun í bolfiskinum,“ segir Gunnþór. „Fjárfestingar síðustu ár taka hins vegar í og fyrirtækin geta ekki annað en dregið saman til að bregðast við þessu. Það leiðir til minni vinnu, minni tekna og minni umsvifa í samfélögunum.“ 20 milljarðar gætu tapast  Verðmæti uppsjávarafla gæti farið úr 47,5 milljörðum í 28,3 milljarða á næsta ári  Yrði gífurlegt högg fyrir fyrirtækin og samfélögin  Mikið fjárfest síðustu ár MVerðmætið svipað … » 6 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Með nýju Krossmýrartorgi á Ár- túnshöfða verður til ný miðstöð verslunar og þjónustu í borginni. Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ASK-arkitektum, vinnur að deili- skipulagi torgsins. Hann segir unnið að útfærslu á gatnakerfi svæðisins m.t.t. umferðar af ýmsu tagi. Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís, segir torgið mikilvægt. „Það má segja að Borgarlínan sé lykilatriði í því að torgið verði jafn kröftugt og menn sjá fyrir sér. Það má gera ráð fyrir að þarna verði þungamiðjan í verslun og þjónustu í þessu hverfi,“ segir Björn. Hægt að þétta byggðina meira Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður samgöngu- og skipulagsráðs, segir athugun benda til að mögulegt verði að þétta byggðina meira með- fram Borgarlínu en talið var. »10 Borgarlínustöð ný þungamiðja  Deiliskipulagi Ártúnshöfða lýkur í vor  Krossmýrartorg miðstöð verslunar Drög Svona hafa arkitektar séð fyrir sér Borgarlínustöð á Krossmýrartorgi. Teikning/ÞG verk/fasteignavefur Þau eru reisuleg húsin í Viðey, fyrstu steinhúsin sem byggð voru á Íslandi. Landreisnarmaðurinn Skúli fógeti stóð fyrir því og hér standa þær utan við slotið, Þórunn Jarla Valdimarsdóttir rithöf- undur og Hrefna Róbertsdóttir, forseti Sögu- félagsins, en Þórunn afhenti Hrefnu eintak af nýrri bók sinni um Skúla fógeta á þessu gamla heimili höfðingjans. Skúli var mikil tilfinninga- vera og ævi hans ævintýri líkust. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilög stund þegar bók um Skúla var afhent úti í Viðey Sólin baðaði hinn forna stað ljósi sínu í tilefni dagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.