Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
✝ Anna HildurÁrnadóttir
fæddist í Skál á
Síðu í Vestur--
Skaftafellssýslu 27.
maí 1938. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Mörk 15. októ-
ber 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Árni Krist-
inn Árnason, bóndi
í Skál á Síðu, f. á
bænum Á, á Síðu 3. ágúst 1904,
d. 6. október 1989, og Jóhanna
Pálsdóttir, f. í Ytri Dalbæ í
Landbroti 1. september 1913, d.
28. ágúst 2006. Árni og Jóhanna
eignuðust fimm börn. Systkini
Önnu eru: Guðrún, f. 28. febrúar
1941, Sigurbjörn, f. 23. ágúst
1942, Guðríður, f. 14. apríl 1945,
og Páll, f. 15. apríl 1945, d. 10.
júní 2016. Árið 1958 giftist Anna
Hildur eiginmanni sínum Stein-
grími Lárussyni, f. 5. maí 1933,
d. 24. október 2014. Foreldrar
Steingríms voru hjónin Lárus
Ólafur Steingrímsson bóndi í
Hörgslandskoti á Síðu, f. á
Kálfafelli í Fljótshverfi 11.
nóvember 1905, d. 6. september
1977, og Sigurlaug Margrét Sig-
urðardóttir, f. í Oddgeirsbæ í
leiddi úrvalsvörur og fylgdist vel
með nýjungum í sínu fagi. Þau
hjónin voru samhent og fengu
endurtekið viðurkenningu
Mjólkurbús Flóamanna fyrir
framleiðslu á úrvalsmjólk ásamt
því að framleiða gæðakjöt alla
sína búskapartíð. Anna starfaði
einnig í hlutastarfi á seinni árum
samhliða búskapnum utan heim-
ilis sem félagsliði hjá öldruðum.
Anna var áhugasöm um að til-
einka sér nýjungar og lauk 2004
eins árs fjarnámskeiði í rit-
vinnslu og upplýsingatækni.
Anna var í fjölmörg ár í kirkju-
kór Prestbakkakirkju og um
árabil í kvenfélagi hreppsins.
Anna var mikil húsmóðir og
lagði mikla rækt við heimilið.
Hún var listakokkur sem með út-
sjónarsemi sinni og dugnaði
útbjó allan mat og bakkelsi fyrir
heimilið. Gestkvæmt var á heim-
ilinu og voru gestir boðnir vel-
komnir og nutu góðra veitinga.
Anna var mikil hannyrðakona
og bar heimilið vott um fallegt
handbragð. Vettlingarnir og
sokkarnir frá henni voru róm-
aðir að gæðum og voru eftir-
sóttir bæði innan og utan fjöl-
skyldu.
Anna og Steingrímur brugðu
búi 2007 og fluttu til Reykjavík-
ur þar sem þau bjuggu til dán-
ardags.
Útför Önnu Hildar fer fram
frá Grafarvogskirkju í dag, 2.
nóvember 2018, og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Reykjavík 2.
september 1910, d.
12. febrúar 1978.
Dætur Önnu og
Steingríms eru: 1)
Lilja Sigríður, f. 7.
mars 1958. Synir
Lilju eru: Alexand-
er Jón, f. 12. maí
1992, og Aaron
Thomas, f. 6. júní
1995, maki Melanie
Frei. 2) Jóhanna
Kristín, f. 17. mars 1961, maki
Logi Ragnarsson, f. 18. febrúar
1960. Börn þeirra eru Halla
Hrund, f. 12. mars 1981, maki
Kristján Freyr og dóttir þeirra
er Hildur Kristín, f. 24. október
2014, og Haukur Steinn, f. 13.
ágúst 1990.
Anna ólst upp í Skál á Síðu.
Hún lauk grunnskóla, vann einn
vetur fyrir sér í vist á Kirkjubæj-
arklaustri og fór síðan 15 ára að
vinna fyrir sér í vist á heimilum í
Reykjavík. Hún stundaði nám í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur
veturinn 1955-1956. Anna hóf
síðan búskap í Hörgslandskoti
árið 1956 með Steingrími Lár-
ussyni. Hún var ásamt eigin-
manni sínum metnaðarfullur
sauðfjár- og kúabóndi, fram-
Elsku mamma okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þínar dætur,
Lilja og Jóhanna.
Tengdamóðir mín, Anna
Hildur Árnadóttir, var svo sann-
arlega öflugur liðsmaður ís-
lensks samfélags. Hún ásamt
eiginmanni sínum, Steingrími
Lárussyni, stundað búskap með
myndarbrag í rúmlega 50 ár í
Hörgslandskoti á Síðu. Anna
var dugnaðarforkur til allra
verka, ósérhlífin, ótrúlega út-
sjónarsöm og vel að sér í öllu
sem tengist heimilis- og bú-
rekstri. Maður dáðist að því
hvernig hún náði að halda öllu
einstaklega snyrtilegu innan-
dyra þrátt fyrir mikinn mann-
fjölda öll sumur. Þess utan tók
hún þátt í öllum útistörfum sem
tengdust rekstri búsins. Snyrti-
mennskan var þar í hávegum
höfð enda búið verðlaunað um
langt árabil fyrir úrvalsmjólk og
mikil gæði í hvívetna.
Hún var heldur ekki hrædd á
nokkurn hátt við að reyna sig
við ný verkefni. Það sá maður
meðal annars á því að hún
skráði sig í fjarnám í tölvutækni
og fórst það vel úr hendi. Ekki
var málakunnáttunni fyrir að
fara en hún lét það ekki slá sig
út af laginu heldur hélt ótrauð
áfram. Hún nýtti sér tæknina
sér til framdráttar svo sem
heimabankatengingu og rit-
vinnslu. Hún var auk þess dug-
leg að nýta sér Facebook til að
fylgjast með og hafa samband
við fólk. Feimni var ekki til í
hennar orðabók, hún spjallaði
við alla alveg óhikað. Það var
sama hvort um var að ræða Ís-
lendinga eða útlendinga sem
áttu leið hjá, hún náði ávallt á
einhvern hátt að gera sig
skiljanlega.
Anna hafði gaman af tónlist
og var félagi í kirkjukór sveit-
arinnar um langt árabil. Hún
átti talsvert safn af íslenskri
tónlist sem oft var í spilaranum
á hennar heimili. Eitt var það
sem henni þótti sérstaklega
gaman og það var að fara í
berjamó sem hún reyndi að
gera bæði á meðan hún bjó fyrir
austan en einnig eftir að þau
hjónin brugðu búi og fluttu í
borgina.
Eins og áður sagði var Anna
mikil húsmóðir, hún kunni bók-
staflega allt sem tengdist mat-
argerð. Hjá mér voru það kóte-
lettur í raspi sem voru í
uppáhaldi. Hún bjó til allan mat
til heimilisins, rúllupylsur,
kæfu, hangikjöt, bjúgu, slátur,
sultur, saft og svo mætti áfram
telja. Einnig var hún mjög vel
að sér varðandi hannyrðir af
ýmsum toga. Oftar en ekki voru
fullar kommóður af sokkum,
vettlingum og húfum í öllum
mögulegum stærðum, þetta var
bara eins og að koma inn í
verslun að fá að skoða hjá henni
úrvalið. Hún var líka nákvæm í
mörgu og það sá maður m.a.
þegar kom að rekstri bílsins,
hann skildi alltaf vera hreinn og
í góðu standi, helst að farið væri
með hann í skoðun vel fyrir til-
settan tíma og dekkjaskipti
skyldu fara fram á þeim dag-
setningum sem lögboðnar eru.
Hún var með svolitla bíladellu
að því er mér fannst og þar náð-
um við vel saman. Hún hafði
einnig mikinn áhuga á velferð
barnabarna sinna og sama gilti
um langömmubarnið hennar.
Anna var góð fyrirmynd, dug-
leysi og leti var ekki til í hennar
huga og það smitaði út frá sér í
sveitastörfunum meðal þeirra
sem áttu þess kost að dvelja í
Kotinu fyrr á árum.
Ég kveð nú tengdamóður
mína og vona að henni líði vel á
nýjum stað.
Far í friði og hafðu bestu
þakkir fyrir samveru undanfar-
inna áratuga.
Logi Ragnarsson.
Það er úr nægu að taka af
góðum minningum um ömmu
Önnu – enda var ég svo heppin
að fá að eyða stórum parti úr
hverju ári fyrir austan fyrstu 20
ár ævinnar.
Eins og lóan kemur á vorin
mætti ég með rútunni austur í
Kot þar sem amma var í essinu
sínu og kenndi mér réttu tökin í
sauðburðinum hratt og örugg-
lega. Minningar frá smölun að
hausti færa mér ilm af flatköku
og hangikjöti hennar ásamt yl
frá hlýrri heimaprjónaðri lopa-
peysu í köldu rigningarveðri.
Jólaferðirnar í Kotið voru síðan
alltaf bestar en þá dró amma
fram fallegu silfruðu örþunnu
jólakúlurnar sem virtust að
minnsta kosti 100 ára og sem
við hengdum saman á gervitréð
í stofunni ásamt glerfuglinum
sem komið var fyrir á efstu
greininni. Sömu ánægju veittu
páskaferðirnar með útiveru í
fjósi og fjárhúsi þar sem ómót-
stæðilegar kótelettur í raspi og
karamellu Royalbúðingur seðj-
uðu hungrið að degi loknum.
Þegar ég hugsa til baka kem-
ur samt hljóðið í kleinujárninu
hennar einhvern veginn alltaf
upp í hugann og „klingrið“ þeg-
ar deigið var skorið. Hún beitti
járninu af öryggi, vandvirkni og
hraða - skorið var niður í 300
kleinur hið minnsta og svo
gjarnan hent í snúða eða hjóna-
bandssælu næsta dag. Við
baksturinn sönglaði amma
gjarnan lag og hveitið þyrlaðist
upp þegar við snerum rösklega
við kleinunum. Í Kotinu var
ekkert bakkelsi keypt úr búð,
ekki einu sinni brauðið og allar
sultur búnar til heima – úr rifs-
berjum úr garðinum, rabarbar-
anum við hlöðuna eða kræki-
berjum sem við sóttum inn að
Þverá.
Dagarnir hófust árla morg-
uns með mjöltum og aldrei end-
aði vinnudagurinn fyrr en að
lokum seinni mjöltum klukkan
sjö. Á háannatíma, til dæmis í
sauðburði og heyskap, var
vinnudagurinn langt fram á
kvöld. Amma stýrði mjöltum og
rak hin ýmsu verk eftir árstíma
þess á milli ásamt því að elda
tvisvar sinnum á dag, oft ofan í
10-20 manns á sumrin og svo
voru kvöldin nýtt vel, t.d. í
prjónaskap. Í ofanálag þá var
allt hreint og strokið í Kotinu –
þvotturinn brakandi ferskur af
snúrunni ofan við bæinn og
heimilið fallegt með hekluðum
dúkum og útsaumuðum mynd-
um eftir ömmu.
Já ég held því hiklaust fram
að amma, með sínum ótrúlega
myndarskap, hefði getað starf-
rækt öll Icelandair hótelin sof-
andi – og öll hótel landsins vak-
andi! Þvílík atorka, yfirsýn,
útsjónarsemi og vandvirkni allt
í senn. „Ekkert slór“, „ekkert
hálfkák“ og „áfram með smjör-
ið“ – eins og hún sagði iðulega.
Og það var sama hversu hratt
maður vann – aldrei komst mað-
ur með tærnar þar sem amma
var með hælana. „Ekki vera að
gufast þetta“ sagði hún gjarnan
ef einhver okkar vinnumann-
anna á bænum var ekki með
hugann við verkefnið.
Enda voru allir yfirleitt með
hugann við efnið í sveitinni –
sem skilaði framúrskarandi út-
komu, þar með talið verðlauna
mjólk ár eftir ár. Oft hugsa ég
til allra verðlaunagripanna sem
stóðu hógværir í hillunni í eld-
húsinu í Kotinu en höfðu hvetj-
andi áhrif á okkur öll.
Meira: mbl.is/minningar
Halla Hrund Logadóttir.
Nú er hún Anna mágkona
mín búin að kveðja þennan heim
og minnumst við hennar með
þakklæti.
Ég kynntist Önnu vorið 1964
þegar ég kom fyrst í Hörgs-
landskot með Sigga bróður
hennar og þar tóku Anna, Steini
og dæturnar á móti mér opnum
örmum og urðum við Anna
strax miklar vinkonur og hélst
sú vinátta alla tíð.
Anna var mikil húsmóðir og
hannyrðakona bæði við útsaum,
prjónaskap og fékk ég og mín
fjölskylda að njóta þess t.d allt-
af til sokkar frá Önnu frænku.
Og ekki má gleyma hangi-
kjötinu og flatkökunum sem við
fengum alltaf fyrir jólin og þeg-
ar sá pakki kom voru jólin kom-
in hjá okkur.
Við Anna vorum oft að grín-
ast með það seinni árin að það
væri ekki skrýtið þótt börnin
okkar væru vel gerð þar sem við
hefðum alið þau upp í samein-
ingu en strákarnir okkar voru
alltaf á sumrin hjá Önnu og
Steina og stelpurnar þeirra
fengu aðstöðu hjá okkur þegar
þær komu suður.
Þegar strákarnir okkar komu
heim á haustin fékk ég alveg að
heyra það að snúðarnir og klein-
urnar mínar væru nú ekki eins
góðar og hjá Önnu frænku þótt
við værum með sömu uppskrift.
Það var alltaf mikið fjör hjá
okkur Önnu þegar við vorum að
vinna eitthvað saman fyrir aust-
an, hvort það var að setja í hana
permanent eða útbúa veislur
eða eitthvað annað þá var mikið
hlegið og skrafað enda Anna
hláturmild og hress kona.
En margs er að minnast nú
þegar við kveðjum Önnu og
eigum við Siggi og börnin okkur
margar góðar minningar um
góða systur, mákonu og frænku
í gegnum öll árin sem við höfum
átt saman og eigum eftir að
sakna.
Elsku Lilja, Jóhanna og fjöl-
skyldur ykkar, við vottum ykk-
ur samúð okkar, missir ykkar er
mikill en minningarnar lifa í
hjörtum okkar allra áfram.
Hjördís, Sigurbjörn
bróðir og fjölskylda.
Fyrir nákvæmlega 40 árum
fórum við fjölskyldan í okkar
fyrstu heimsókn til Önnu og
Steina á Hörglandskot á Síðu.
Þau voru sannkallaðir höfðingj-
ar heim að sækja og það var
mikil gleði þegar Steini hringdi
eitt vorið og óskaði eftir að fá
frumburðinn okkar Hrafnhildi í
sveitina til að aðstoða við sauð-
burðinn. Næstu sumur á eftir
vorum við tíðir gestir á Hörg-
landskoti og vinskapurinn hélst
alla tíð.
Þegar minnst er á kvenskör-
unga þá sé ég alltaf fyrir mér
Önnu. Það var með ólíkindum
að fylgjast með á hve einfaldan
hátt Anna bæði verkstýrði og
kom sjálf miklu í verk á stuttum
tíma. Strax eftir mjaltir á
morgnana var hún komin í eld-
húsið að framreiða morgunverð
fyrir mannskapinn. Síðan hófst
hún handa við ýmis verk og
útbjó hádegisverð. Á meðan
verið var að ganga frá eftir há-
degisverðin var hún oftar en
ekki búin að skella nokkrum
jólakökum, lagtertum eða snúð-
um í ofninn sem var boðið upp á
í kaffinu. Þegar komið var með
baggana heim á hlað henti hún
þeim hraðar en nokkur karl-
maður á færibandið, skellti sér
aftur í fjósið og síðan var eld-
aður kvöldmatur og alltaf bauð
hún upp á kvöldkaffi áður en
farið var að sofa.
Anna reykti bestu hangilæri
sem ég hef smakkað, ræktaði
kartöflur og ýmislegt grænmeti
í garðinum. Anna var ákveðin
kona, hrein og bein og sagði
hlutina án umbúða. Hún var líka
einstaklega hláturmild og trúði
því að öllum væri allt mögulegt,
oft heyrði ég hana segja: „Þú
getur það ef þú vilt það“ – vilji
er allt sem þarf.
Það allra skemmtilegasta við
að koma í sveitina var að spjalla
því Anna og Steini höfðu bæði
einstakan hæfileika að segja
skemmtilega frá og sögurnar
voru óþrjótandi. Þau spurðu líka
frétta og við lærðum fljótt að
taka vel eftir á leiðinni austur á
hvaða bæjum var byrjað að
heyja og hvar ekki. Gestagang-
urinn var mikill og það brást
aldrei að á meðan við stopp-
uðum komu oft nokkrir gestir á
dag. Allir voru velkomnir í gist-
ingu á meðan húsrúm leyfði og
aðrir gistu úti í tjöldum.
Við komum á hverju einasta
sumri í töðugjöld því þá var
hægt að rétta hjálparhönd og í
lokin var haldin þvílík og önnur
eins veisla þannig að borðið
svignaði af kræsingum.
Við minnumst þeirra heiðurs-
hjóna Önnu og Steina með
miklu þakklæti. Dætrunum Jó-
hönnu, Lilju og fjölskyldum
vottum við okkar innilegustu
samúð.
Gunnhildur og Hafsteinn.
Anna Hildur
Árnadóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
stuðning, vináttu og hlýhug vegna fráfalls
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
stjúpföður, tengdaföður, afa, sonar, bróður
og mágs,
ÓMARS INGA FRIÐLEIFSSONAR,
Rauðalæk 41.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A4 LSH í Fossvogi
og líknardeildar fyrir vinsemd og góða umönnun.
Svala Lind Ægisdóttir
Oliver Ómarsson Arna Björk Óðinsdóttir
Mikael Freyr Oliversson
Ingi Þór Ómarsson
Anice Theodór Chebout
Abraham Amin Chebout
Friðleifur Björnsson Elva Regína Guðbrandsdóttir
Gunnar Þór Friðleifsson Inga Guðmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGER RAGNARSDÓTTIR,
Þykkvabæ 15, Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 25.
október. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 9. nóvember klukkan 13.
Jóhann E. Björnsson
Dóróthea Jóhannsdóttir Hörður Helgason
Sigrún Jóhannsdóttir Skúli Guðbjarnarson
Ragnar Jóhannsson Anna Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ARNDÍS BIRNA SIGURÐARDÓTTIR,
áður Blöndubakka 15,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 30.
október. Útför verður auglýst síðar.
Halla Guðrún Jónsdóttir Gísli Arnar Gunnarsson
Brynjólfur Gunnar Jónsson
Arndís Lára Jónsdóttir Ebenezer G. Guðmundsson
Hallgrímur Júlíus Jónsson Berglind Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
KARL HARALDSSON
læknir,
Gautlandi 15, Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 19. október.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 6. nóvember klukkan 13.
Guðrún Bryndís Karlsdóttir Ísak Sverrir Hauksson
Kolbrún Karlsdóttir
Gunnlaugur Karlsson Kerstin Gaudlitz
Haraldur Karlsson Birna Pétursdóttir
Teitur Áki, Freyja Sóllilja, Hildur Iðunn, Benjamín Julian,
Brynja Sóley, Guðný Diljá, Sunneva Björk, Philip Etienne,
Simon Freyr og Ernir Snær