Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Karl Olgeirsson hefur lifað og hrærst í heimi tónlistarinnar frá unga aldri. Hann spilar á píanó, orgel og fleiri hljóðfæri, leikur inn á plötur hjá hin- um og þessum, undir á tónleikum hér og þar, stýrir upptökum og útsetn- ingum, kennir tónlist og syngur ef svo ber undir. Í áranna rás hefur hann samið lög og texta, sem margir helstu söngvarar landsins hafa flutt á plötum og opinberum vettvangi. Þótt hann hafi komið víða við er Mitt bláa hjarta –14 nýir jazzsöngvar fyrsta platan, sem hann gefur út í eigin nafni. Af því tilefni blæs hann til útgáfutónleika kl. 21 í kvöld, föstudag, í Björtuloftum í Hörpu. Af þeim tólf söngvurum sem koma við sögu á plötunni syngja tíu á tón- leikunum við undirleik þriggja blás- ara og fjögurra manna hrynsveitar með Karl við píanóið. Söngvararnir sem fram koma eru Ragnheiður Gröndal, KK, Kristjana Stefánsdóttir, Helgi Hrafn Jónsson og Bogomil Font svo nokkrir séu nefndir. Mitt bláa hjarta á sér fortíð og fyrirrennara í samnefndri nótnabók, sem Karl gaf út í september og hefur að geyma nótur við sömu lög og á plötunni. „Þegar ég var að vinna í FÍH og MÍT fannst mér einfaldlega vanta fleiri íslensk djasslög fyrir söngelska. Fljótlega áttaði ég mig á að nótnabók væri ekki nóg, betra væri að heyra lögin til að geta sungið þau. Í vor hófst ég því handa við textasmíð- arnar samhliða nótnaskrifunum.“ segir Karl. Hefur mikið að segja Hann kveðst ekki hafa lagt upp með ákveðið þema í textunum, ein- ungis að þeir væru fjölbreyttir og lög- in líka. „Enda væri ekkert gaman að gefa út 14 lög og öll næstum eins,“ segir hann brosandi. „Að vísu eru nokkrir textanna um söknuð, aðrir um ástina, sem alltaf er svo vinsælt að syngja um. Eitt lagið á plötunni fjallar um ást sem kviknar, annað smáerjur milli elskenda. Annars er enginn rauður þráður hvað textana varðar.“ Og vissulega snúast þeir um margt fleira en söknuð og ást. Veðrið til að mynda og óhlýðinn strák, sem aldrei getur setið kyrr og er rosalega spenntur að uppgötva heiminn. „Við gerð nótnabókarinnar og plötunnar fékk ég sterklega á tilfinninguna að ég hefði uppgötvað eitthvað nýtt sem höfundur. Skyndilega fannst mér ég hafa svo mikið að segja og fylltist meira sjálfstrausti en ég hef áður fundið fyrir.“ Karl segir hafa komið sér til góða hversu mikið hann gat sjálfur unnið við útgáfu bæði nótnabókarinnar og plötunnar. Spurður um það helsta bendir hann á hið augljósa; til að byrja með semji hann lögin, skrifi þau upp á nótur, semji textana og velji söngvara fyrir hvert lag. „Ég hef of- boðslega gaman af öllu þessu stússi og ætlaði meira að segja að prenta nótnabókina sjálfur í leysiprentar- anum mínum. Hún reyndist of stór þannig að það gekk ekki eftir. Hins vegar er ég upptökumaður og gat því mixað plötuna sjálfur.“ Með Kristjönu í hausnum Í fyrstu hafði hann hugsað sér að syngja flest lögin sjálfur og fá kannski með sér tvær eða þrjár söngkonur. „Á endanum söng ég einungis eitt lag, Er haustið kemur, af því mig langaði bara svo mikið að vinna með þeim frá- bæru söngvurum sem ég þekki. Ég var ekki með sérstaka söngvara í huga þegar lögin urðu til. Helst að Krist- jana Stefánsdóttir hafi verið í hausn- um á mér þegar ég gerði Árstíðirnar þrjár því það er svo rosalega djassað lag og hún er djassdrottningin okkar.“ Nafnið á plötunni kom í framhaldi af því að Karl var einhverju sinni í sköpunarferlinu að velta vöngum yfir hvort hann hefði nógu mikið að segja í fjórtán lögum. Honum fannst tólf of lítið í nótnabók og fjórtán hugsanlega of mikið á plötu. „Í þessum hugrenningum varð mér litið yfir á Esjuna og þá laust því niður í kollinn á mér að kannski væru fjöllin blá af sömu ástæðu og hjörtu manna verða blá, fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina sorgmædda.“ Platan tók að sögn Karls furðulega stuttan tíma í vinnslu. Hann byrjaði að taka upp um miðjan júlí og hún var komin í framleiðslu í byrjun septem- ber. „Mér finnst svo skemmtilegt við djassinn að hann verður til í augna- blikinu, öfugt við popplögin til dæmis, sem geta verið heilmikið púsluspil í upptökum. Þess vegna þurftum við ekki að æfa mikið, tónlistarfólkið mætti bara í stúdíóið á tilteknum tíma og úr varð nokkurs konar spunalota.“ Mitt bláa hjarta er á geisladiski og vínyl auk þess sem lögin eru á staf- rænum veitum. Djassinn í augnablikinu  Karl Olgeirsson efnir til tónleika í kvöld í tilefni af útgáfu plötunnar Mitt bláa hjarta –14 nýir jazzsöngvar  Nýverið gaf hann út samnefnda bók sem hefur að geyma nótur við lögin á plötunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Á góðum nótum Flestir söngvararnir á plötunni syngja á tónleikunum við undirleik þriggja blásara og fjögurra manna hrynsveitar með Karl við píanóið. Myndlistarsýningin Hvít sól verður opnuð á morgun, laugardag, kl. 16 í Skaftfelli á Seyðisfirði en að henni stendur listhópurinn IYFAC sem er skammstöfun fyrir Inspirational Young Female Artist Club, sem þýða mætti sem Klúbb ungra myndlistarkvenna sem veita inn- blástur. Á sýningunni mun listhóp- urinn sýna innsetningu sem hann vann sérstaklega fyrir þessa sýn- ingu, að því er segir í tilkynningu. „Síðustu mánuði hefur hópurinn rannsakað tímann sem hugtak og upplifun og samband manneskj- unnar við sólina. Við á norðurhveli jarðar búum við þær öfgar að sólin er ekki áreiðanleg klukka, hún færir okkur þó mjúklega inn í árstíðirnar með öfgakenndri birtu og myrkri. Ef við myndum smíða okkar eigin sólarklukku, hvernig liti hún út og hvað myndi hún mæla?“ segir þar. Í aðdraganda sýningarinnar kom hópurinn í rannsóknarferð til Seyðisfjarðar í júlí með það að markmiði að upplifa og kortleggja aðstæður um hásumar sem nýtast svo til samanburðar við gerð verks- ins sem verður til sýnis yfir hávetur, eins og því er lýst. Sýningin er því opnuð tæpu hálfu ári síðar við gjör- ólíkar aðstæður og stendur yfir til 3. mars 2019. IYFAC er vinnustofa og umræðu- vettvangur um sköpun fyrir félags- menn sem eru ungar konur og þær sem taka þátt í sýningunni eru Halla Birgisdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sig- urðardóttir. Morgunblaðið/Eggert Skapandi Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er í hópnum IYFAC. Hvít sól í Skaftfelli Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.