Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018 Hellisheiði í baksýnisspeglinum Myrkrið skerpir á ýmsu svo lengi sem nokkurrar birtu nýtur við. Á leið til borgarinnar með Hellisheiði að baki má sjá bólstra virkjunar rísa í ljósaskiptunum. Hari Kosið verður til Bandaríkjaþings þriðjudaginn 6. nóvember. Þetta eru svonefndar „midterm“ kosningar, til þeirra er efnt þegar forsetinn hefur setið hálft kjör- tímabil sitt. Nú eiga repúblikanar meiri- hluta í báðum deildum þingsins. Kosið er um alla 435 fulltrúa- deildarþingmennina og 35 af 100 öldungadeildarþingmönnum, þá er kosið um 39 ríkisstjóra auk fjölda annarra embætta. Spáð er að repú- blikanar haldi meirihlutanum í öld- ungadeildinni en staða þeirra í full- trúadeildinni er sögð tvísýn. Gegn Trump Fyrir skömmu gaf Max Boot, sérfræðingur við hugveituna Coun- cil on Foreign Relations, dálkahöf- undur The Washington Post og ráð- gjafi hjá CNN-sjónvarpsstöðinni, út bókina The Corrosion of Conser- vatism: Why I Left the Right – Tæring íhaldsins: Vegferð mín frá hægri. Boot kom til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum, barnungur gyðingadrengur frá Sovétríkjunum með landflótta móður sinni. Hann hreifst af stefnu repúblikana og barðist fyrir henni á háskólaárum sínum. Um nokkurt árabil var hann ritstjóri miðopnusíðu The Wall Street Journal og skrifaði leiðara í blaðið sem styður sjónarmið banda- rískra hægrimanna. Í bókinni um tæringu íhaldsins gerir Boot upp við Donald Trump, sem hann telur óverðugan fulltrúa skoðana íhaldsmanna. Flokkur repúblikana sé í svað- inu með hann sem for- seta og þeir forystu- menn flokksins sem láti sig hafa það að styðja Trump séu ekki trausts verðir. Boot færir rök fyrir máli sínu sem höfða að minnsta kosti sterkt til þeirra sem búa utan Bandaríkjanna og fylgjast af áhuga með því sem gerist í stjórn- málum þar án þess að hafa kosningarétt. Í prófkjöri repúblikana árið 2016 barðist Boot gegn Trump. Hann segir að sér hafi verið lífsins ómögulegt að styðja Trump frá því að hann birtist í anddyri Trump- turnsins í New York og talaði niður til Mexíkana sem nauðgara og morðingja. Að slíkur maður skyldi vinna prófkjör repúblikana og síðan for- setakosningarnar sjálfar hafi verið „mesta áfall lífs“ síns, segir Boot. Af þessum sökum hafi hann ákveðið að binda enda á aðild sína að Repú- blikanaflokknum og skráð sig utan flokka. Hann gat ekki verið félagi í „trumpvæddum Repúblikana- flokki“. Boot segir að íhaldsstefnan sem Donald Trump boðaði fyrir kosn- ingar og fylgi síðan sé í algjörri andstöðu við þá íhaldsstefnu sem hann aðhyllist og tengi mönnum eins og Ronald Reagan forseta og George Will, þjóðkunnum banda- rískum dálkahöfundi. Í þeirri stefnu gæti miklu meiri bjartsýni en hjá Trump, hún sé opnari og höfði til margra án þess að brenni- merkja minnihlutahópa, í henni fel- ist áhersla á hnattrænt forystu- hlutverk Bandaríkjanna, frjálsa verslun og takmörkun ríkisumsvifa á heimavelli. Trump standi fyrir of- stæki og fordóma, hann búi í hag- inn fyrir rasisma, kvenfyrirlitningu og útlendingaandúð, ali á sundrung meðal Bandaríkjamanna og ýti und- ir samsæriskenningar. Til stuðnings Trump David Gelernter, tölvunarfræði- prófessor við Yale-háskóla og for- stjóri Dittach LLC, skrifaði á dög- unum grein í The Wall Street Journal undir fyrirsögninni: Raun- verulega ástæðan fyrir hatri þeirra á Trump. Hann er yfirstærð af venjulegum Bandaríkjamanni – hispurslaus, einfaldur, klár í slag- inn, tortrygginn í garð mennta- manna. Í greininni segir: „Allar kosningar í Bandaríkj- unum eru áhugaverðar, komandi kosningar eru þó hrífandi af ástæðu sem flestir álitsgjafar gleyma að nefna: Demókrata skortir öll mál- efni. Efnahagslífið blómstrar og staða Bandaríkjanna á alþjóðavett- vangi er sterk. Í utanríkismálum minntust Bandaríkjamenn þess á hárréttu augnabliki sem Machia- velli ráðlagði prinsunum fyrir fimm öldum: Sækist ekki eftir að vera elskaðir, sækist eftir að skapa ótta.[…] Nú á vinstrið aðeins eitt málefni eftir: „Við hötum Trump.“ Þetta er forvitnilegt hatur, vinstrið hatar Donald Trump vegna nákvæmlega þess sama og veldur hatri þess á Bandaríkjunum. Afleiðingarnar skipta máli og eru sársaukafullar. Málum er ekki þannig háttað að allir vinstrisinnar hati Bandaríkin. Vinstrisinnar sem ég þekki hata hins vegar dónaskap Trumps, vilja hans til að taka slaginn, ónærgætni hans, vissu hans um sérstöðu Bandaríkjanna, tortryggni hans í garð menntamanna og að hann skuli neita að trúa að konur og karl- ar séu jafngild. Verst af öllu þá stjórnist hann ekki af neinni hug- sjón heldur því einu að láta verkin tala. […] Trump minnir okkur á hver venjulegi Bandaríkjamaðurinn er í raun. Ekki aðeins venjulegi banda- ríski karlmaðurinn eða venjulegi hvíti Bandaríkjamaðurinn. Við vit- um fyrir víst hvað gerist 2020, menntamennirnir verða orðlausir yfir þeim fjölda kvenna og blökku- manna sem greiða Trump atkvæði. Hann er ef til vill að draga upp nýtt pólitískt landakort: venjulegi Bandaríkjamaðurinn andspænis þeim sem slá um sig.[…] Þeir sem kusu Trump og ætla að kjósa frambjóðendur hans nú í nóvember hafa áhyggjur af þjóð- inni, ekki ímynd hennar. Forsetinn á rétt á virðingu okkar af því að Bandaríkjamenn eiga rétt á henni – ekki þeir sem slá um sig í aukahlut- verkum eins og álitsgjafar sjón- varpsstöðvanna, sósíalískir fram- haldsskólakennarar og framúr- skarandi prófessorar heldur mann- skapurinn sem hefur gert Bandríkin mikil og gerir þau stöð- ugt meiri.“ Trump er þungamiðjan Þótt Trump sé ekki í framboði í kosningunum í næstu viku hefur hann dögum og vikum saman sótt kosningafundi víðsvegar um Banda- ríkin til að viðra skoðanir sínar og rækta bein tengsl sín við kjósendur. Trump er sem fyrr ómyrkur í máli um andstæðinga sína. Þeir deila ekki á hann vegna málefna heldur vegna framgöngu hans og málflutnings. Hann hafi ekki þann myndugleika sem hæfi þjóðhöfð- ingja, í stað þess að hvetja til sam- heldni ýti hann undir sundrung. Af- leiðingar stjórnarhátta hans birtist svo í öfgafullum aðgerðum stuðn- ingsmannanna eins og því að senda bréfsprengjur til andstæðinga Trumps. Þá sætir hann gagnrýni eftir að skotglaður gyðingahatari í Pittsburgh myrðir 11 manns í bænahúsi gyðinga. Þegar bent er á að hann hafi lagt sig fram um stuðning við málstað Ísraels, meðal annars með flutningi bandaríska sendiráðsins til Jerúsalem, er blásið á allar slíkar röksemdir. Hann ali á illsku í þjóðfélaginu í stað þess að laða fram ágæti þess. Ekkert náttúrulögmál ræður þessari stöðu Trumps og banda- rískra stjórnmála heldur hann sjálfur. Hann deilir og drottnar. Vegna þess hvernig Trump heldur á málum og sækist sífellt eftir sviðsljósinu kallar hann á að dómur kjósenda í kosningunum verði dóm- ur yfir honum. Stóra spurningin er hvort Trump hafi með málflutningi sínum tekist að flytja venjulega kjósendur demókrata til fylgis við sig á sama tíma og hann fælir frá sér og flokki sínum menn á borð við Max Boot, álitsgjafa og menntamenn. Misnot- ar Trump íhaldsstefnuna og gerir einlægum hugsjónamönnum hennar óleik en laðar jafnframt þá sem áð- ur kusu Demókrataflokkinn til fylgis við sig? Eftir Björn Bjarnason » Trump er sem fyrr ómyrkur í máli um andstæðinga sína. Þeir deila ekki á hann vegna málefna heldur vegna framgöngu hans og mál- flutnings. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Trump er þungamiðjan í þingkosningunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.