Morgunblaðið - 02.11.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Hellisheiði í baksýnisspeglinum Myrkrið skerpir á ýmsu svo lengi sem nokkurrar birtu nýtur við. Á leið til borgarinnar með Hellisheiði að baki má sjá bólstra virkjunar rísa í ljósaskiptunum.
Hari
Kosið verður til
Bandaríkjaþings
þriðjudaginn 6.
nóvember. Þetta eru
svonefndar „midterm“
kosningar, til þeirra er
efnt þegar forsetinn
hefur setið hálft kjör-
tímabil sitt. Nú eiga
repúblikanar meiri-
hluta í báðum deildum
þingsins. Kosið er um
alla 435 fulltrúa-
deildarþingmennina og 35 af 100
öldungadeildarþingmönnum, þá er
kosið um 39 ríkisstjóra auk fjölda
annarra embætta. Spáð er að repú-
blikanar haldi meirihlutanum í öld-
ungadeildinni en staða þeirra í full-
trúadeildinni er sögð tvísýn.
Gegn Trump
Fyrir skömmu gaf Max Boot,
sérfræðingur við hugveituna Coun-
cil on Foreign Relations, dálkahöf-
undur The Washington Post og ráð-
gjafi hjá CNN-sjónvarpsstöðinni,
út bókina The Corrosion of Conser-
vatism: Why I Left the Right –
Tæring íhaldsins: Vegferð mín frá
hægri.
Boot kom til Bandaríkjanna á
áttunda áratugnum, barnungur
gyðingadrengur frá Sovétríkjunum
með landflótta móður sinni. Hann
hreifst af stefnu repúblikana og
barðist fyrir henni á háskólaárum
sínum. Um nokkurt árabil var hann
ritstjóri miðopnusíðu The Wall
Street Journal og skrifaði leiðara í
blaðið sem styður sjónarmið banda-
rískra hægrimanna.
Í bókinni um tæringu íhaldsins
gerir Boot upp við Donald Trump,
sem hann telur óverðugan fulltrúa
skoðana íhaldsmanna. Flokkur
repúblikana sé í svað-
inu með hann sem for-
seta og þeir forystu-
menn flokksins sem
láti sig hafa það að
styðja Trump séu ekki
trausts verðir. Boot
færir rök fyrir máli
sínu sem höfða að
minnsta kosti sterkt til
þeirra sem búa utan
Bandaríkjanna og
fylgjast af áhuga með
því sem gerist í stjórn-
málum þar án þess að
hafa kosningarétt.
Í prófkjöri repúblikana árið 2016
barðist Boot gegn Trump. Hann
segir að sér hafi verið lífsins
ómögulegt að styðja Trump frá því
að hann birtist í anddyri Trump-
turnsins í New York og talaði niður
til Mexíkana sem nauðgara og
morðingja.
Að slíkur maður skyldi vinna
prófkjör repúblikana og síðan for-
setakosningarnar sjálfar hafi verið
„mesta áfall lífs“ síns, segir Boot.
Af þessum sökum hafi hann ákveðið
að binda enda á aðild sína að Repú-
blikanaflokknum og skráð sig utan
flokka. Hann gat ekki verið félagi í
„trumpvæddum Repúblikana-
flokki“.
Boot segir að íhaldsstefnan sem
Donald Trump boðaði fyrir kosn-
ingar og fylgi síðan sé í algjörri
andstöðu við þá íhaldsstefnu sem
hann aðhyllist og tengi mönnum
eins og Ronald Reagan forseta og
George Will, þjóðkunnum banda-
rískum dálkahöfundi. Í þeirri
stefnu gæti miklu meiri bjartsýni
en hjá Trump, hún sé opnari og
höfði til margra án þess að brenni-
merkja minnihlutahópa, í henni fel-
ist áhersla á hnattrænt forystu-
hlutverk Bandaríkjanna, frjálsa
verslun og takmörkun ríkisumsvifa
á heimavelli. Trump standi fyrir of-
stæki og fordóma, hann búi í hag-
inn fyrir rasisma, kvenfyrirlitningu
og útlendingaandúð, ali á sundrung
meðal Bandaríkjamanna og ýti und-
ir samsæriskenningar.
Til stuðnings Trump
David Gelernter, tölvunarfræði-
prófessor við Yale-háskóla og for-
stjóri Dittach LLC, skrifaði á dög-
unum grein í The Wall Street
Journal undir fyrirsögninni: Raun-
verulega ástæðan fyrir hatri þeirra
á Trump. Hann er yfirstærð af
venjulegum Bandaríkjamanni –
hispurslaus, einfaldur, klár í slag-
inn, tortrygginn í garð mennta-
manna. Í greininni segir:
„Allar kosningar í Bandaríkj-
unum eru áhugaverðar, komandi
kosningar eru þó hrífandi af ástæðu
sem flestir álitsgjafar gleyma að
nefna: Demókrata skortir öll mál-
efni. Efnahagslífið blómstrar og
staða Bandaríkjanna á alþjóðavett-
vangi er sterk. Í utanríkismálum
minntust Bandaríkjamenn þess á
hárréttu augnabliki sem Machia-
velli ráðlagði prinsunum fyrir fimm
öldum: Sækist ekki eftir að vera
elskaðir, sækist eftir að skapa
ótta.[…]
Nú á vinstrið aðeins eitt málefni
eftir: „Við hötum Trump.“ Þetta er
forvitnilegt hatur, vinstrið hatar
Donald Trump vegna nákvæmlega
þess sama og veldur hatri þess á
Bandaríkjunum. Afleiðingarnar
skipta máli og eru sársaukafullar.
Málum er ekki þannig háttað að
allir vinstrisinnar hati Bandaríkin.
Vinstrisinnar sem ég þekki hata
hins vegar dónaskap Trumps, vilja
hans til að taka slaginn, ónærgætni
hans, vissu hans um sérstöðu
Bandaríkjanna, tortryggni hans í
garð menntamanna og að hann
skuli neita að trúa að konur og karl-
ar séu jafngild. Verst af öllu þá
stjórnist hann ekki af neinni hug-
sjón heldur því einu að láta verkin
tala. […]
Trump minnir okkur á hver
venjulegi Bandaríkjamaðurinn er í
raun. Ekki aðeins venjulegi banda-
ríski karlmaðurinn eða venjulegi
hvíti Bandaríkjamaðurinn. Við vit-
um fyrir víst hvað gerist 2020,
menntamennirnir verða orðlausir
yfir þeim fjölda kvenna og blökku-
manna sem greiða Trump atkvæði.
Hann er ef til vill að draga upp nýtt
pólitískt landakort: venjulegi
Bandaríkjamaðurinn andspænis
þeim sem slá um sig.[…]
Þeir sem kusu Trump og ætla að
kjósa frambjóðendur hans nú í
nóvember hafa áhyggjur af þjóð-
inni, ekki ímynd hennar. Forsetinn
á rétt á virðingu okkar af því að
Bandaríkjamenn eiga rétt á henni –
ekki þeir sem slá um sig í aukahlut-
verkum eins og álitsgjafar sjón-
varpsstöðvanna, sósíalískir fram-
haldsskólakennarar og framúr-
skarandi prófessorar heldur mann-
skapurinn sem hefur gert
Bandríkin mikil og gerir þau stöð-
ugt meiri.“
Trump er þungamiðjan
Þótt Trump sé ekki í framboði í
kosningunum í næstu viku hefur
hann dögum og vikum saman sótt
kosningafundi víðsvegar um Banda-
ríkin til að viðra skoðanir sínar og
rækta bein tengsl sín við kjósendur.
Trump er sem fyrr ómyrkur í
máli um andstæðinga sína. Þeir
deila ekki á hann vegna málefna
heldur vegna framgöngu hans og
málflutnings. Hann hafi ekki þann
myndugleika sem hæfi þjóðhöfð-
ingja, í stað þess að hvetja til sam-
heldni ýti hann undir sundrung. Af-
leiðingar stjórnarhátta hans birtist
svo í öfgafullum aðgerðum stuðn-
ingsmannanna eins og því að senda
bréfsprengjur til andstæðinga
Trumps. Þá sætir hann gagnrýni
eftir að skotglaður gyðingahatari í
Pittsburgh myrðir 11 manns í
bænahúsi gyðinga. Þegar bent er á
að hann hafi lagt sig fram um
stuðning við málstað Ísraels, meðal
annars með flutningi bandaríska
sendiráðsins til Jerúsalem, er blásið
á allar slíkar röksemdir. Hann ali á
illsku í þjóðfélaginu í stað þess að
laða fram ágæti þess.
Ekkert náttúrulögmál ræður
þessari stöðu Trumps og banda-
rískra stjórnmála heldur hann
sjálfur. Hann deilir og drottnar.
Vegna þess hvernig Trump heldur
á málum og sækist sífellt eftir
sviðsljósinu kallar hann á að dómur
kjósenda í kosningunum verði dóm-
ur yfir honum.
Stóra spurningin er hvort Trump
hafi með málflutningi sínum tekist
að flytja venjulega kjósendur
demókrata til fylgis við sig á sama
tíma og hann fælir frá sér og flokki
sínum menn á borð við Max Boot,
álitsgjafa og menntamenn. Misnot-
ar Trump íhaldsstefnuna og gerir
einlægum hugsjónamönnum hennar
óleik en laðar jafnframt þá sem áð-
ur kusu Demókrataflokkinn til
fylgis við sig?
Eftir Björn
Bjarnason » Trump er sem fyrr
ómyrkur í máli um
andstæðinga sína. Þeir
deila ekki á hann vegna
málefna heldur vegna
framgöngu hans og mál-
flutnings.
Björn
Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Trump er þungamiðjan í þingkosningunum