Morgunblaðið - 02.11.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Björn Bjarnason vitnar tilskrifa Markaðar Fréttablaðs
um fjármálasnilld Gunnars Smára
og milljarðana mörgu sem hann
dreifði eins og gotteríi á eilífum
nammidögum áður en hann reis
upp sem Mao Zedong endurborinn
úr brunarústum Fréttatímans.
Markaðurinn hefur
heimildarmann sem
þekkir vel til og
veit einnig um nýj-
an spena Gunnars
Smára og ótrúlega
reikninga sem ber-
ast nú gullkistu-
vörðum alþýð-
unnar:
Fréttir hafa birst um að fjár-málastjóra Eflingar – stéttar-
félags var skipað að taka veik-
indaleyfi þegar reikningur frá
eiginkonu Gunnars Smára var
ekki greiddur tafarlaust.
Þetta eru allt kaldar stað-reyndir sem við blasa. Á ólík-
legustu stöðum gefst Gunnari
Smára hvað eftir annað tækifæri
til að reyna að kjafta sig frá þeim
með því að benda á einhver furðu-
virki, nú síðast að hann sem sósí-
alisti sé einhver sérstakur tals-
maður launafólks eða leigjenda.
Mikill minnihluti í Eflingu –stéttarfélagi stóð að kjöri
Sólveigar Önnu Jónsdóttur í for-
mennsku félagsins. Síðan hefur
hún ráðið tvo háskólamenn, Stef-
án Ólafsson og Viðar Þorsteins-
son, til starfa fyrir félagið og í
jaðrinum er Gunnar Smári. Sjóðir
Eflingar eru sagðir nema 12 millj-
örðum.
Með því að setja fjármálastjór-ann og bókarann í veik-
indaleyfi er ætlunin að móta nýjan
farveg fyrir aðgang að fjár-
munum félagsins. Hvers vegna er
það forgangsmál?“
Gunnar Smári
Egilsson
4 blaða Smári
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Ég ætla ekki að eyða þeim dýr-
mæta tíma sem eftir er í að bera
kala til fólks. Ég vil nú ekki vera
það stór upp á mig að segja ég sé
yfir það hafinn en ég bara ætla
ekki að gera það,“ segir Geir H.
Haarde, sendiherra Íslands í
Bandaríkjunum og fyrrverandi for-
sætisráðherra, í viðtali fyrir GLS-
leiðtogaráðstefnuna sem hefst í
dag. „Í þessum réttarhöldum voru
bornar fram ásakanir á mig, sem
hefðu getað endað með því að ég
færi í fangelsi, sem voru að mínum
dómi fjarri öllu lagi og fullkomlega
út í hött eins og dómstólinn komst
reyndar að raun um, fyrir utan eitt
formsatriði,“ bætir Geir við.
GLS-ráðstefnan, eða Global
Leadership Summit, hefst í dag og
er þetta 10 ára afmælisráðstefna
hátíðarinnar. Fer ráðstefnan fram í
Háskólabíói og verður viðtalið við
Geir meðal annars spilað þar sem
hann fer yfir hvernig var að takast
á við að vera leiðtogi á tímum
hrunsins.
Hann segir í viðtalinu að réttar-
höldin í Landsrétti hafi verið hrak-
för sem aldrei hefði átt að leggja af
stað í. Spurður um hvernig hann
ráðleggur fólki að vinna úr því þeg-
ar fólk ber mann þungum sökum
hann segir nauðsynlegt að ná
stjórn á sjálfum sér fyrst. „Það
þarf að ná stjórn á sjálfum sér og
passa að láta ekki gremjuna, von-
brigðin og reiðina ná yfirhöndinni
og beina því í réttan farveg. Svo er
nú eitt til og það er fyrirgefningin
sem kemur oft í kjölfar iðrunar hjá
hinum aðilunum. Það er voða gott
að geta fyrirgefið fólki,“ segir Geir
og bætir við að ýmsir aðilar sem
tóku þátt í Landsréttarmálinu hafi
komið til hans og beðist fyrirgefn-
ingar, bæði beint og óbeint.
Ýmsir beðist fyrirgefningar
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Landsréttur Geir H. Haarde í Landsrétti árið 2012.
Geir H. Haarde ræðir Landsréttarmálið í viðtali við GLS Ráðstefnan hafin
Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið
Sýn hf. sendi í gær frá sér tilkynn-
ingu um að útlit væri fyrir að
EBITDA félagsins yrði undir upp-
gefnum horfum félagsins. Kemur
fram í tilkynningu félagsins að
þriðji ársfjórðungur 2018 hafi
reynst undir væntingum, einkum
vegna verkefna sem tengjast sam-
einingu kerfa, flutningi starfs-
manna og eininga. „Almennt má
segja að breytingar á horfum ársins
séu tengdar meiri kostnaði og fjár-
festingum í tengslum við samein-
inguna en upprunalegar áætlanir
gerðu ráð fyrir, auk nýtilkominnar
veikingar íslensku krónunnar,“
segir í tilkynningunni.
Þá segir einnig að stjórnendur
félagsins telji ekki forsendur til að
breyta áður útgefnum horfum fyrir
árin 2019 og 2020, þar sem margar
aðgerðir séu í gangi sem muni hafa
áhrif á niðurstöðuna auk ytri
óvissuþátta eins og komandi kjara-
samninga og gengisþróunar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýn Útlit er fyrir að EBITDA Sýnar hf. verði
undir áður uppgefnum horfum.
EBITDA undir upp-
gefnum horfum
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is