Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
2. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.14 121.72 121.43
Sterlingspund 154.36 155.12 154.74
Kanadadalur 92.17 92.71 92.44
Dönsk króna 18.399 18.507 18.453
Norsk króna 14.371 14.455 14.413
Sænsk króna 13.191 13.269 13.23
Svissn. franki 120.37 121.05 120.71
Japanskt jen 1.0697 1.0759 1.0728
SDR 167.27 168.27 167.77
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.1453
Hrávöruverð
Gull 1217.7 ($/únsa)
Ál 1951.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.28 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heildarviðskipti með hlutabréf í
október í Kauphöllinni námu 41,1 millj-
arði króna, eða tæplega 1,8 millj-
örðum á dag. Þetta kemur fram í við-
skiptayfirliti Kauphallarinnar.
Viðskiptin eru samkvæmt yfirlitinu,
13% meiri en mánuðinn á undan, en í
september námu viðskipti með hluta-
bréf tæplega 1,6 milljörðum á dag.
Séu viðskiptin hinsvegar borin sam-
an við sama tíma á síðasta ári, þá er um
29% samdrátt á milli ára að ræða.
Mest viðskipti í október voru með
bréf Marel, eða 6,8 milljarðar. Næst
mest viðskipti voru með bréf Haga, eða
4,6 milljarðar. Þar á eftir kom N1 með
4,2 milljarða.
Úrvalsvísitalan Kauphallarinnar
hækkaði um 1,1% milli mánaða.
Í lok október voru hlutabréf 23 félaga
skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First
North á Íslandi. Nemur heildarmark-
aðsvirði skráðra félaga nú 978 millj-
örðum króna, samanborið við 1.002
milljarða í september.
29% minnkun viðskipta
í Kauphöll milli ára
STUTT
henni á grundvelli rekstrarleyfis. Ef
hrun verður í bréfamagni og tekjum
þar með, verður að mæta því með
fjárveitingu eða skerðingu á þjón-
ustu. Tekjur af einkaréttinum hafa
hingað til að hluta verið nýttar til að
greiða niður alþjónustuna, sem ekki
eru viðskiptalegar forsendur fyrir,
en alþjónustuskyldan felst í því að
dreifa sendingum allt að 20 kg um
allt land, m.a. á óhagkvæmum svæð-
um þar sem enginn vill sinna þeirri
þjónustu,“ segir Ingimundur.
Bendir hann á að hagnaður af
einkarétti fyrirtækisins hafi á síð-
ustu árum ekki dugað til að standa
undir kostnaði við ófjármagnaða al-
þjónustu.
„Íslandspóstur hefur verið að
greiða niður tap af alþjónustunni
með samkeppnisvörum og lántökum
og nú þegar tekjurnar af einkaréttar-
bréfunum dregst jafn harkalega
saman og raun ber vitni þá verður
þessi staða illviðráðanleg. Við höfum
í raun ekki tækin í höndunum til að
bregðast strax við nema að takmörk-
uðu leyti, því stór hluti þjónustunnar
er bundinn lögum og reglugerðum.“
Samkvæmt lögum má einka-
réttarþjónustan sem Íslandspóstur
sinnir ekki skila nema ákveðnum,
ákvörðuðum hagnaði og því er gjald-
skráin lögbundin.
Hagræðingar leitað
Fyrirtækið hefur farið fram á það
við Póst- og fjarskiptastofnun að
verðskrá verði hækkuð en reiknað
var með að slík breyting hefði aukið
tekjur fyrirtækisins um 100 milljónir
á þessu ári.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að orðið verði við þeirri beiðni okkar.
En á sama tíma og við höfum bent á
nauðsyn þess að hækka verðskrá þá
höfum við ráðist í ýmsar hagræðing-
araðgerðir, en þær duga engan veg-
inn til,“ segir Ingimundur.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
landspósti munu þær aðgerðir fela í
sér sparnað upp á 160 milljónir króna
sem hvergi nærri mun duga til að
mæta því tapi sem flest stefnir í að
verði af rekstrinum.
Munu þurfa að hlaupa á ný
undir bagga með Póstinum
Morgunblaðið/Eggert
Fjárfesting Nú standa yfir framkvæmdir við Stórhöfða 21 sem miða að stækkun póstmiðstöðvar fyrirtækisins.
Skjótt skipast veður
» Í nóvember 2017 ákvað fyrir-
tækið að ráðast í framkvæmdir
við stækkun póstmiðstöðvar á
Stórhöfða sem kosta 700 millj-
ónir.
» Árið 2017 var 216 milljóna
hagnaður af rekstrinum.
» Í september fékk fyrirtækið
500 milljóna lán vegna lausa-
fjárstöðu sinnar.
Stefnir í 450 milljóna tap umfram áætlanir vegna fækkunar bréfsendinga
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Allt stefnir í að tap Íslandspósts af
bréfum sem fara í gegnum fyrirtækið
á grundvelli einkaréttar þess á send-
ingum af því tagi muni verða 450
milljónir umfram
þær áætlanir sem
fyrirtækið lagði
upp með í upphafi
árs. Þetta stað-
festir Ingimund-
ur Sigurpálsson,
forstjóri Íslands-
pósts, í samtali
við Morgun-
blaðið. Í gær
greindi Morgun-
blaðið frá því að
það sem af er ári hafa fyrrnefndar
bréfsendingar dregist saman um
14%.
„Samdrátturinn virðist aðeins
vera að aukast og reyndist 23% í
september og 20% í október,“ segir
Ingimundur en fyrirtækið hafði gert
ráð fyrir að samdrátturinn yrði um
7% á þessu ári.
Eins og greint hefur verið frá hef-
ur fjármála- og efnahagsráðuneytið
veitt fyrirtækinu 500 milljóna króna
skammtímafyrirgreiðslu til 12 mán-
aða vegna bráðs lausafjárvanda þess.
Sú lánveiting var veitt í september
og áður en ljóst var orðið að enn
myndi syrta í álinn varðandi fækkun
bréfsendinga.
„Það er ljóst að ef samdrátturinn
verður með þessum hætti þá mun
fyrirtækið þurfa á frekari stuðningi
að halda vegna tekjutapsins. Póst-
þjónusta er lögum samkvæmt á
ábyrgð ríkisins. Íslandspóstur sinnir
Ingimundur
Sigurpálsson
Heildarhagnaður tryggingafélagsins
Sjóvár nam 140 milljónum króna á
þriðja ársfjórðungi en á sama tímabili
í fyrra var um 472 milljóna króna tap
að ræða. Hagnaður af vátryggingar-
starfsemi félagsins nam 708 milljón-
um fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi
en á sama tímabili í fyrra nam upp-
hæðin 499 milljónum króna. Tap af
fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta
nam aftur á móti 426 milljónum
króna. Ávöxtun eignasafns félagsins
var neikvæð um 0,8% en 2,4% á sama
tíma í fyrra. Samsett hlutfall Sjóvár
nam 91,3% á þriðja ársfjórðungi en á
sama tíma í fyrra nam það 94,6%.
Eignir félagsins námu 45 milljörð-
um króna í lok september og eigið fé
13,5 milljörðum.
Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins
nemur hagnaður af vátryggingar-
starfsemi fyrir skatta 1,15 milljörðum
króna samanborið við 884 milljónir yf-
ir sama tímabil í fyrra. Heildarhagn-
aður tímabilsins nemur 259 milljón-
um en hann nam 1,3 milljörðum í
fyrra en tveir stórbrunar áttu sér stað
á árinu. Í árshlutauppgjöri Sjóvár er
tekið fram að horfur séu á því að sam-
sett hlutfall verði 97% fyrir árið 2018
og að hagnaður fyrir skatta verði um
900 milljónir króna. Í tilkynningu seg-
ir Hermann Björnsson forstjóri að
samsett hlutfall sé 3% undir því sem
gert var ráð fyrir. „Í því tilliti er þetta
besti þriðji ársfjórðungur frá því
Sjóvá var tekið til skráningar á mark-
að 2014. Afkoman fyrir fyrstu 9 mán-
uði ársins er einnig góð þegar litið er
til samsetts hlutfalls sem nam 97,8%.“
peturhreins@mbl.is
Tryggingar Samsett hlutfall Sjóvár
nam 91,3% á þriðja ársfjórðungi.
Hagnaður Sjóvár
140 milljónir
Hagnaður af
vátryggingarstarf-
semi 708 milljónir