Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Svo geturfarið aðBrexit-út-
gangan hverfi í
skugga annarra
atburða í Evr-
ópusambandinu.
Það hefði allt til
þessa þótt ólíklegt.
En það urðu kaflaskil í
valdabrölti ESB þegar
skriffinnar þess endur-
sendu ítölsku ríkisstjórn-
inni fjárlagafrumvarp
hennar, sem hún taldi sig
hafa sent norður eftir til
kynningar sem hreins
formsatriðis. En annað kom
á daginn. Nú er komið í ljós
að valdhafar í Brussel líta á
fjárlögin frá Róm sem
endanlega sín, þótt ríkis-
stjórnir í höfuðstað ein-
stakra ESB-landa fái enn
um hríð að gera uppkastið
að þeim. Það sé ekki lengur
sent til Brussel til kynn-
ingar. Þangað sé það nú
sent til samþykktar eða
synjunar.
Og þeir andlitslausu með
skattfrjálsu launin sín í
virkjum valdsins í Brussel
tilkynntu einfaldlega að
þeir höfnuðu „ítölsku“ fjár-
lögunum. Skipuðu þeir
skátadrengjunum í Róm að
sýna að þeir væru ávallt
viðbúnir og bæri að senda
yfirboðurum sínum, skrif-
stofublókunum í Brussel,
„innan 15 daga“ fjárlög sem
þeir þar gætu sætt sig við.
Varaforsætisráðherra og
innanríkisráðherra Ítalíu,
lýðræðislega kosinn og
þekkt andlit í sínu heima-
landi, brást harkalega við.
Svaraði hann að bragði að
ítalska ríkisstjórnin myndi
ekki taka svo mikið sem
eina evru úr fjárlagafrum-
varpinu. Sennilegra væri að
hún myndi svara þessari
ósvífnu ögrun með því auka
við á útgjaldahlið laganna í
samræmi við eindreginn
þjóðarvilja.
Vissulega muna menn of
vel eftir því að stjórnmála-
menn úr öllum flokkum
tóku stórt upp í sig í Grikk-
landi við svipaðar að-
stæður. Sósíalistinn Tsip-
ras var hvað glaðbeittastur
þeirra og leiðtogar flokk-
anna hægra og vinstra
megin við miðjuna voru
skammt undan. En „eld-
huginn“ Tsipras endaði
kylliflatur og framlágur við
fætur meistaranna í
Brussel og AGS.
Hann hélt for-
sætisráðherra-
titlinum að nafn-
inu til en var í
raun aðeins
fremstur í röð
þeirra sendi-
sveina sem grísk stjórnmál
lögðu erlendum yfir-
boðurum sínum til.
Formlegum björgunar-
aðgerðum er nú lokið í
Grikklandi með þeim ár-
angri að þjóðarframleiðsla
þess hefur dregist saman
um fjórðung og Grikkir
sitja uppi með skuldir sem
þeir fá aldrei greitt. Það er
þó huggun þessum harmi
gegn að þeir þýsku og
frönsku bankar sem áttu
töluvert undir eru nú
komnir fyrir vind og bónus-
ar burgeisa þar farnir að
virka eins og áður og það
var jú fyrir mestu.
Salvini og félagar hans í
ítölsku ríkisstjórninni, sem
hefur ríflegan meirihluta á
þinginu í Róm, segja brattir
að Ítalíu verði ekki líkt við
Grikkland. Og vissulega
eru þar á ferð annars vegar
stórríki í ESB og hins veg-
ar smáríki í ESB. Engin
ríki eru eins neðarlega á
virðingarskala veraldar og
smáríki í ESB. En nær 80
ára dæmi er þó til um það
að Ítalía hafi ekki alltaf haft
mikið í Grikkland að gera.
En hvað sem því líður eru
viðbrögð Matteo Salvini
varaforsætisráðherra
næsta einstök. Hann biður
nú landa sína að fjölmenna í
mótmælagöngu hinn 8.
desember næstkomandi til
stuðnings ríkisstjórninni í
baráttunni. Sýna þar sam-
stöðu og styrk svo þeim í
Brussel verði ljóst að Ítalir
knékrjúpi ekki lengur.
„Ítalir eru ekki lengur
þrælar,“ segir Salvini, „þeir
hafa risið upp og svara
hnarreistir fyrir sig.“
Vonandi hefur hann og
aðrir í stjórnarmeirihlut-
anum afl til að fylgja digr-
um orðum sínum eftir. En
það má ekki gleyma því að
við ofurefli er að etja.
Grikkir sáu fljótt í sínu
andófi að þeir höfðu gefið
frá sér sitt einasta vopn,
sjálfstæðan gjaldmiðil sinn.
Það hafa Ítalir einnig gert.
En ekki Bretar. Sá er mun-
urinn. Án pundsins færu
þeir hvergi.
Allir hljóta að hafa
samúð með Ítalíu.
En meira þarf til að
trúa því að þeir
standist atlöguna}
Salvini ákallar þjóðina
Í
sland tekur við formennsku í
Norðurlandaráði í byrjun næsta árs
og á nýafstöðnu Norðurlandaráðs-
þingi í Ósló fyrr í vikunni kynnti ég
þær áherslur sem við munum leggja
á sviði menningarmála. Þrjú áhersluatriði
íslensku formennskunnar snúa að sjálfbærri
ferðamennsku í norðri, hafinu og ungu fólki
á Norðurlöndunum en viðfangsefni okkar á
menningarsviðinu tengjast einkum hinu
síðastnefnda.
Þannig eru verkefni okkar Menntun fyrir
alla og Platform-Gátt umfangsmikil verk-
efni á sviðum menntunar og lista fyrir ungt
fólk. Þar er sérstök áhersla lögð á þátttöku
og samræðu þeirra um mennta- og menn-
ingarmál og heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. Á þessu ári förum við einnig með
formennsku í norrænu barna- og ungmennanefndinni
NORDBUK en eitt af markmiðum hennar er að efla
samtakamátt og þátttöku ungs fólks á Norðurlönd-
unum í samfélagslegum verkefnum og lýðræðisferlum.
Ísland leggur áherslu á tungumálasamstarf í for-
mennsku sinni og mun ég mæla fyrir því að kannað
verði hvort tímabært sé að endurskoða málstefnu
Norðurlanda í heild sinni. Á fundinum í Ósló urðu þau
tímamót að íslenska og finnska voru í fyrsta sinn
formlega skilgreindar sem opinber mál Norður-
landaráðs og er það mikið framfaraskref. Þá munum
við skipuleggja tvær ráðstefnur þar sem málefni
Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (e. UNESCO) um heimsminjar og
menningarerfðir verða í brennidepli. Á
vettvangi fjölmiðlunar munum við gera
átak í að efla fjölmiðlun sem tæki gegn
falsfréttum og upplýsingaóreiðu. Á sviði
íþrótta- og æskulýðsmála er ráðgert að
skipuleggja hliðarviðburði á stórri ráð-
stefnu íslensku formennskunnar um #ég-
líka-byltinguna næsta haust.
Á fundi norrænu menningarmálaráðherr-
anna í Ósló var einnig tekin ákvörðun um
sameiginlega menningarkynningu Norður-
landanna, hliðstæða Nordic Cool sem fram
fór í Washington 2013 og Nordic Matters í
Lundúnum 2017, og mun sendinefnd kynna
tillögur sínar að staðsetningu þriðju menn-
ingarkynningarinnar um miðjan nóvember.
Ég vil að lokum óska verðlaunahöfum Norður-
landaráðs, sem veitt voru á þinginu, hjartanlega til
hamingju. Það er sérlega ánægjulegt að tvenn verð-
laun hlotnuðust íslensku listafólki að þessu sinni; rit-
höfundinum Auði Övu Ólafsdóttur sem hlaut bók-
menntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Ör og
aðstandendum kvikmyndarinnar Kona fer í stríð sem
fengu kvikmyndaverðlaunin. Verðlaun þessi munu án
efa auka hróður fyrrgreindra verka og listamanna enn
frekar.
Lilja
Alfreðsdóttir
Pistill
Raddir unga fólksins á Norðurlöndum
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Alþýðusamband Íslands(ASÍ) hafnar núverandihugmyndum að starfs-getumati. Þetta kemur
fram í stefnu ASÍ um heilbrigðis-
þjónustu og velferðarkerfið sem
samþykkt var á 43. þingi ASÍ. Þar
segir einnig að ASÍ vilji vinna með
Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ) að
þeirra málum. Þá segir í stefnu ASÍ
að örorkulífeyriskerfið þarfnist víð-
tækrar endurskoðunar. „Horft verði
til getu í stað vangetu með áherslu á
atvinnutengda endurhæfingu og
virkni á forsendum fólks með skerta
starfsgetu, m.a. með samvinnu og
aukinni ábyrgð atvinnulífsins og í
góðu samráði við þau sem málið
varðar. Samhliða þarf að endur-
skoða greiðslukerfi almannatrygg-
inga þannig að það hvetji til virkni
og atvinnuþátttöku, einfalda það og
afnema krónu á móti krónu skerð-
ingar.“
Mikilvæg afstaða ASÍ
„Við erum ánægð með afstöðu
ASÍ og hún er mjög mikilvæg,“
sagði Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður ÖBÍ. „Alþýðusambandið
og verkalýðsfélögin eru að taka
ábyrga afstöðu með sínu fólki.
Flestir örorkulífeyrisþegar eiga að
baki langt starf á vinnumarkaði áður
en þeir hafa veikst, slasast eða eru
orðnir svo illa farnir líkamlega að
þeir geta ekki lengur unnið.“
Þuríður sagði oft um að ræða
fólk í láglaunastörfum sem hefði
unnið 2-3 störf til að ná endum sam-
an. Það hefði oft svo lítil réttindi að
það hefði ekki efni á að hætta vinnu
um sjötugt.
Lengi hefur verið rætt um að
taka upp starfsgetumat í stað ör-
orkumats hér á landi. Þuríður segir
að öryrkjar vilji ekki fá starfsgetu-
mat eins og það sem kynnt hefur
verið. Sífellt fleiri sem metnir eru til
örorku fari á tímabundna örorku og
svo hafi verið undanfarna tvo ára-
tugi. Í örorkumatinu felist starfs-
getumat að vissu marki.
„Frá aldamótum hefur það ver-
ið stefna víða í löndum í kringum
okkur að taka upp starfsgetumat.
Það átti að leiða til þess að öryrkjar
færu í auknum mæli út á vinnumark-
aðinn. En það virðist hafa gleymst
að vinnumarkaðurinn hefur ekki
fylgt þessari hugsjón stjórnvalda
eftir. Örorkulífeyrisþegar sem
metnir eru með ákveðna starfsgetu
hafa sjaldnast fengið vinnu við sitt
hæfi. Hið endanlega starfsgetumat
er hvort vinnumarkaðurinn tekur
við okkur eða ekki,“ sagði Þuríður.
Hún sagði að versta afleiðing þessa
væri að fólk með starfsgetumat en
án vinnu lenti á atvinnuleysisskrá
um tíma og væri svo ýtt þaðan á fá-
tækrastyrk hjá sveitarfélögum.
„Við viljum að þeir sem vilja og
geta fái atvinnu við hæfi. En at-
vinnulífið hefur ekki verið tilbúið að
taka á móti fólki sem hefur takmark-
aða starfsgetu. Það þarf að skapa
svigrúm með t.d. sveigjanlegum
vinnutíma. Nú er það svo að þú vinn-
ur annaðhvort 100% eða þú færð
ekki vinnu,“ sagði Þuríður.
„Stjórnvöld þurfa að byggja
upp traust því þau njóta ekki mikils
trausts í þessum hópi. Fólk hefur
fylgst með reynslunni af starfsgetu-
mati í öðrum löndum og er mjög
hrætt við þetta. Þessi hópur hefur
það slæmt og vill ekki lenda í því
að hafa það verra. Starfsgetumat
og viðeigandi aðlögun að vinnu-
markaði þarf að vera samkvæmt
samningi Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðs
fólks. Hann hefur verið
fullgiltur hér og við
vonum að hann verði
lögfestur fljótlega.“
Hugmyndum um
starfsgetumat hafnað
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) á
í viðræðum við stjórnvöld og
hefur fengið kynningu á hug-
myndum þeirra um starfsgetu-
mat, að sögn Þuríðar Hörpu Sig-
urðardóttur, formanns ÖBÍ. Hún
segir að öryrkjum lítist ekki á
hugmyndirnar.
ÖBÍ bíður nú eftir fundi með
velferðarráðuneytinu og ætlar
að sjá hvað þar verður lagt á
borðið. „Við erum öll af vilja
gerð að vinna með stjórnvöldum
að góðum málum,“ sagði Þur-
íður. „Það má ekki verða svo að
öryrkjar og fatlað fólk
verði framfærslulaust
ef það fær ekki
vinnu. Ef stjórnvöld
meina eitthvað með
því að örorkulífeyris-
þegar fari meira út á
vinnumarkað þá verð-
ur að afnema krónu á
móti krónu
skerð-
inguna.“
Í viðræðum
við stjórnvöld
ÖRYRKJABANDALAGIÐ
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Golli
Vinna Á Múlalundi starfar fólk með skerta starfsorku. Atvinnulífið þarf
að koma til móts við fólk með skerta starfsorku, að mati formanns ÖBÍ.