Morgunblaðið - 02.11.2018, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Ármúla 24 - s. 585 2800
Það er varla hægt
að minnast á áfengi og
vímuefni án þess að
huga að geðheil-
brigðismálum. Það
getur verið erfitt að
ákveða og það er
spurning hvort hægt
er að ákveða hvort
komi á undan, geðræn
veikindi eða neysla
vímuefna. Það skiptir því máli að við
höldum áfram að huga að forvörnum
á öllum sviðum mannlífs. Forvarnir
kosta lítið í samanburði við þann
ávinning sem þær skila. Okkur ber
því að huga sérstaklega að frjálsum
félagasamtökum sem beita sér sér-
staklega í þessum málaflokki. Um
600 manns eru á biðlista á Vogi og
það eru fyrst og fremst ungmenni og
ungt fólk sem ekki fær þá hjálp sem
það þarf nauðsynlega á að halda. Oft
eru geðræn vandamál svo sem geð-
rof fylgifiskur neyslu vímuefna sér-
staklega hjá ungu fólki og einstak-
lingur sem verður háður vímuefnum
á unglingsárum getur orðið fyrir
óbætanlegu, félagslegu og andlegu
tjóni. SÁÁ hefur ekki getað sinnt
forvarnafræðslu sinni sem skyldi
þrátt fyrir að búa yfir allri þeirri sér-
þekkingu sem á þarf að halda.
Forvarnir eru lykilatriði til bættr-
ar lýðheilsu og um leið bætts rekst-
urs í heilbrigðiskerfinu. Það á að
huga að forvörnum strax í bernsku
og forvarnir á að hugsa sem samfellu
frá vöggu til grafar. Forvarnir eru
hugtak sem spannar vítt svið að-
gerða sem beinast að samfélaginu
öllu. Þær miða að því að efla heil-
brigði, fyrirbyggja sjúkdóma og
hindra sjúkdómsþróun sem og fylgi-
kvilla sjúkdóma sem þegar eru til
staðar. Oftast er talað um forvarnir í
tengslum við að stemma stigu við
neyslu áfengis og fíkniefna. Þá er
mikilvægt að grípa inn um leið og
þörfin kallar enda hagur samfélags-
ins alls. Talið er að stór hluti þjóð-
arinnar glími við áfengis- og vímu-
efnavanda, jafnvel er því haldið fram
að hlutfallið sé allt að 20%.
Fjölskyldur skipta sköpum þegar
um forvarnir er að ræða, því er
stundum haldið fram að ekki sé auð-
velt að vera barn eða unglingur og
aukinn tími fjölskyldunnar saman er
því afar mikilvægur. Gera verður
allt sem hægt er til að hamla þeirri
þróun sem nú er, neysla unglinga á
ávanabindandi efnum hefur aldrei
áður haft eins alvarlegar afleiðingar.
Aðilar innan meðferðargeirans
halda því fram að það eina sem dugi
gegn neyslu áfengis og vímuefna sé
forvarnarfræðsla, takmarkað fram-
boð og takmarkað aðgengi. Við
stöndum frammi fyrir því að lands-
lagið hefur gerbreyst síðustu miss-
eri, internetið býður alla aldurshópa
velkomna til leiks og í dag fara þar
fram viðskipti á ólöglegum og ávís-
uðum vímuefnum. Mismunandi að-
stæður barna og unglinga kalla á að
forvarnafræðsla í skólum sé með
þeim hætti að ungt fólk sé meðvit-
aðra um áhættu þess að byrja að
fikta við efni, hvaða nafni sem þau
kallast. Við nefnum skólana sér-
staklega þar sem þeir gegna lykil-
hlutverki og innan þeirra rúmast sú
þekking sem til þarf. Við þessu þarf
að bregðast og svarið er að sam-
félagið í heild verður að vinna saman
að því að efla forvarnir. Það er okkar
mat að setja þurfi stefnu í mála-
flokknum, það á aldrei að hugsa um
forvarnir sem átaksverkefni heldur
verður að samþætta þær við öll svið
mannlífs, alltaf.
600 manns
á biðlista
Eftir Önnu Kol-
brúnu Árnadóttur
og Sigurð Pál Jóns-
son
Anna Kolbrún
Árnadóttir
» SÁÁ hefur ekki get-
að sinnt forvarna-
fræðslu sinni sem skyldi
þrátt fyrir að búa yfir
allri þeirri sérþekkingu
sem á þarf að halda.
Höfundar eru þingmenn
Miðflokksins.
annakolbrun@althingi.is
sigurdurpall@althingi.is
Sigurður Páll
Jónsson
Kona að nafni Ann Baird frá Con-
necticut er á landinu og er að leita að
pennavinkonu sinni, Guðrúnu Karls-
dóttur (kölluð Gulla). Hún er núna
u.þ.b. 75 ára gömul.
Þær skrifuðust á sem táningar og
héldu sambandi í rúmlega 20 ár. Ann
heldur að hún og Guðrún hafi verið
jafnaldrar.
Það sem hún man er að Guðrún
ólst upp hjá föður sínum og að hann
vann á þeim tíma hjá Póstinum í
Reykjavík. Guðrún fór oft til her-
stöðvarinnar í Keflavík til að skipta
íslenskum krónum í dollara til að
senda Ann.
Ann langar mjög að ná sambandi
við Gullu aftur og endurnýja gömul
kynni.
Ef einhver hefur upplýsingar þá
vinsamlegast skrifaðu Ann: steve-
ann3@aol.com.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Þekkið þið Gullu Karls?
Pennavinkonur Ann Baird frá Connecti-
cut leitar að Guðrúnu Karls.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að
nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í
samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið
birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for-
síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningar-
ferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í
síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is
Atvinna