Morgunblaðið - 02.11.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Borgar-
braut 2, 340 Stykkishólmi á eftirfarandi eignum, sem hér
segir:
Arnarstapi, fnr. 211-1957 og fnr. 211-1959, Borgarbyggð, þingl. eig.
Sturla J Stefánsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn
8. nóvember nk. kl. 14:00.
Háafellsland, Skorradalshreppur, fnr. 210-6622, þingl. eig. Björn
Björnsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 8. nóvem-
ber nk. kl. 14:00.
Vallholt 18, Snæfellsbær, fnr. 210-3964, þingl. eig. Elín Kristrún
Halldórsdóttir og Elías Jóhann Róbertsson, gerðarbeiðandi Lands-
bankinn hf., fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Hagaflöt 9, 50% ehl. Akranes, fnr. 228-5774, þingl. eig. Mariusz Piotr
Zaworski, gerðarbeiðandi Borgun hf., fimmtudaginn 8. nóvember nk.
kl. 14:00.
Garðabraut 27, Akranes, fnr. 210-0831, þingl. eig. Halldóra Hallgríms-
dóttir og Bergþór Páll Pétursson, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður,
fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Sæunnargata 3, Borgarbyggð, fnr. 211-1735, þingl. eig. Jón Hall
Ómarsson, gerðarbeiðandi Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., fimmtu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Másstaðir 2, Hvalfjarðarsveit, fnr. 210-5266, þingl. eig. Björn Ingi
Hrafnsson, gerðarbeiðendur Hvalfjarðarsveit og Vátryggingafélag
Íslands hf. og Tollstjóri og Landsbankinn hf., fimmtudaginn 8.
nóvember nk. kl. 14:00.
Skarð 1, Dalabyggð, 67% ehl., fnr. 137833, þingl. eig. Kristinn B.
Jónsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 8. nóvember
nk. kl. 14:00.
Helluskógur II lóð 1, Borgarbyggð, fnr. 226-3711, þingl. eig. Eignar-
haldsfélagið 1957 ehf., gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Lækjarmelur 13, Hvalfjarðarsveit, fnr. 226-8191, þingl. eig. Helga Rós
Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Sýn hf. og Hvalfjarðarsveit, fimmtu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Hjallholt 37, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-3905, þingl. eig. Ívar Smári
Guðmundsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves,
fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Másstaðir 3, Hvalfjarðarsveit, fnr. 210-5267, þingl. eig. Björn Ingi
Hrafnsson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Tollstjóri
og Landsbankinn hf., fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Másstaðir 4, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-4073, þingl. eig. Björn Ingi
Hrafnsson, gerðarbeiðendur Tollstjóri og Landsbankinn hf., fimmtu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Másstaðir 5, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-4074, þingl. eig. Björn Ingi
Hrafnsson, gerðarbeiðendur Tollstjóri og Landsbankinn hf., fimmtu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Litla-Holtsland, Dalabyggð, fnr. 137871, þingl. eig. Fóðuriðjan Ólafs-
dal ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 8. nóvember
nk. kl. 14:00.
Kjarrás 14, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-3816, þingl. eig. Friðbert Braga-
son, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 8. nóvember nk.
kl. 14:00.
KARL MAGNÚS, SH, Snæfellsness- og Hnappadalssýsla, (FISKISKIP),
fnr. 1911, þingl. eig. Kristján Helgason ehf, gerðarbeiðendur Vestur-
byggð og Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, fimmtudaginn 8. nóvember
nk. kl. 14:00.
Höfn, Hvalfjarðarsveit, fnr. 210-5525, þingl. eig. Diljá Petra F. Palmer,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl.
14:00.
Skálholt 9, Snæfellsbær, fnr. 210-3868, þingl. eig. Eryk Ulatowski,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl.
14:00.
Indriðastaðir 7, Skorradalshreppur, fnr. 210-6700, þingl. eig. Guð-
mundur Heimisson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., fimmtu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 14:00.
Efra-Nes, Borgarbyggð, fnr. 134858, þingl. eig. Camp2 ehf., gerðar-
beiðandi Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 8. nóvember nk. kl.
14:00.
Deildartún 4, Akranes, íbúð 0101, fnr. 210-1244, þingl. eig. Krzysztof
Sylwester Nazaruk, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn
8. nóvember nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
1. nóvember 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Bogahlíð 26, Reykjavík, fnr. 203-1360, þingl. eig. Sigrún Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg,
Vátryggingafélag Íslands hf., Bogahlíð 24-26,húsfélag og Íbúða-
lánasjóður, þriðjudaginn 6. nóvember nk. kl. 10:00.
Bríetartún 8, Reykjavík, fnr. 228-8898, þingl. eig. Sveinbjörn Thora-
rensen, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Borgun hf., þriðjudag-
inn 6. nóvember nk. kl. 10:30.
Brúnavegur 1, Reykjavík, fnr. 201-7383, þingl. eig. Thonglek Utsa og
Gunnar Jósefsson, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf., Orku-
veita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 6. nóvember nk kl. 11:00.
Eiðistorg 17, Seltjarnarnesbær, fnr. 206-7345, þingl. eig. Virginia
Rosemary Thurston og Nathaniel John Thurston, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 6. nóvember nk. kl. 14:00.
Frakkastígur 24A, Reykjavík, fnr. 222-0181, þingl. eig. Ingólfshvoll
ehf., gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykja-
víkurborg, Arion banki hf., Creditinfo Lánstraust hf. og Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hf., þriðjudaginn 6. nóvember nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
1. nóvember 2018
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Ofanflóðavarnir á Patreksfirði, Vesturbyggð.
Urðargata, Hólar og Mýrar.
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vesturbyggðar er einnig
að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30.
Bingó kl. 13.30, 250 kr. spjaldið. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur
við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Áskirkja Jólabasar Áskirkju, Vesturbrún 30, verður haldinn þann
sunnudaginn 11. nóvember að aflokinni messu um kl. 12. Ef þið viljið
gefa muni á basarinn þá endilega komið þeim til kirkjunnar, kirkju-
vörður mun taka á móti. Ef þið hafið tök á að gefa okkur kökur eða
annað kruðerí á kökuborðið okkar þá endilega komið með í efri sal
kirkjunnar sunnudaginn 11. nóvember milli kl. 10 og 11.
Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.30.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7. kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Félagsvist Kvenfélags Garðabæjar verður
fimmtudaginn 8. nóvember kl. 19 að Garðaholti. Skráning í Jónshúsi.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist, FEBK.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl, 10. Flugunhýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir D.G. kl. 13.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju
kl. 9-10, botsía kl. 10.15-11.20, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir
kl. 9 samdægurs). Zumba-dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13-13.50,
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, Hæðargarðsbíó kl. 14. Allir velkomnir,
óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum,
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9. Brids hefst kl. 12.30 í dag í
Borgum. Hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og hið vinsæla
vöfflukaffi milli kl. 14.30 til 15.30. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13
í dag. Góða helgi.
Seltjarnarnes Kaffispjall í krók kl. 10.30. Leikfimi með Evu kl. 11.
Syngjum saman á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. og
brids í Eiðismýri 30, kl.13.30. Skráning hafin á grill- og skemmti-
kvöldið sem haldið verður í salnum á Skólabraut miðvikudaginn
14. nóvember kl. 19. Matur frá Grillvagninum. Tónleikar í boði Monu-
iku Abendroth hörpuleikara og Bjargar Gísladóttur ljóðskálds. Nánari
uppl. í síma 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögunámskeið, Hávarðarsaga Ísfirðings,
kennari Baldur Hafstað, kl. 13. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Ýmislegt
Vantar þig hjálp
við að setja saman húsgögn
frá Rúmfatalagernum eða
Ikea? Ekkert mál!
Sími 7879293
Íbúð óskast
Tvær snyrtilegar og skemmtilegar
konur yfir 40 ára með vinnu leita að
íbúð í langtímaleigu stutt frá 101
eða 105, Rvk. Sími 7879293
Húsnæði óskast
Sólbaðsstofa Súper sól
Enduropna Sólbaðsstofu Súper sól í
Hólmaseli 2,109 Rvk. Nýir sól- og
kollagen-bekkir beint frá Ítalíu.
Opnunartilboð: 7, 10, 11 mínútur,
aðeins fyrir 1200 kr. Allir velkomnir
frá kl. 10 til 22, sími 5870077.
fasteignir
✝ Jón Skúli Öl-versson fædd-
ist í Freyju 20. apríl
1930. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Norðfirði 27. októ-
ber 2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Ölver
Sigurður Guð-
mundsson, útgerð-
armaður, f. 6.4.
1900, d. 11.2. 1976,
og Matthildur G.J. Jónsdóttir,
húsfreyja, f. 16.9. 1904, d. 26.9.
1989. Jón Skúli var þriðja barn
þeirra hjóna en þau áttu ellefu
börn. Þau eru: 1) Sólveig, f. 11.1.
1927, d. 20.7. 2000, 2) Margrét,
f. 14.2. 1928, d. 23.6. 1976, 3) Jón
Skúli, 4) Guðmundur Marteinn,
f. 7.7. 1931, d. 28.8. 1985, 5)
Olga, f. 3.10. 1933, d. 23.11.
2016. 6) Þráinn, f. 3.3. 1935, 7)
Magnús, f. 29.7. 1937, d. 4.3.
2004, 8) Þóra, f. 3.8. 1939, 9)
Lovísa, f. 13.9. 1940, 10) Þór-
arinn, f. 28.10. 1941, og 11) Sig-
urður Ölver, f. 13.2. 1943.
Jón Skúli kvæntist Unni Sig-
finnsdóttur, f. 1.1. 1931, d. 9.11.
2007, árið 1953 en Unnur var
frá Borgarfirði eystri. Þau eign-
uðust fjögur börn en þau eru: 1)
Matthildur, f. 27.5. 1953, gift
Kára Hilmarssyni,
f. 3.6. 1950. Þeirra
börn eru: Jón Hilm-
ar, f. 16.2. 1976,
Rakel, f. 6.5. 1979,
Eva Björk, f. 13.10.
1987, og Andri, f.
8.1. 1990. 2) Sig-
finnur, f. 19.12.
1957, kvæntur
Bjarnveigu Jónas-
dóttur, f. 4.10.
1958. Þeirra börn
eru: Grétar Örn, f. 22.2. 1977, og
Unnur Ósk, f. 25.8. 1982. 3) Jó-
hanna Bryndís, f. 2.11. 1961, gift
Páli Freysteinssyni, f. 5.7. 1960.
Þeirra börn eru: Hafrún Ósk, f.
29.6. 1982, Bryndís, f. 15.7.
1988, og Andrea Sif, f. 3.6. 1992.
4) Erla Jónsdóttir, f. 25.4. 1963,
gift Árna Jóhanni Óðinssyni, f.
3.4. 1961. Þeirra börn eru: Jón-
ína Brá, f. 15.5. 1986, Brynjar, f.
30.3. 1990, Sigurbjörg Lovísa, f.
21.10. 1997, og Óðinn Skúli, f.
28.5. 2002, d. 24.5. 2018.
Jón Skúli ólst upp á Norðfirði
og bjó þar alla sína tíð. Hann fór
ungur til sjós og tók snemma við
skipstjórn en sjómennskan varð
hans ævistarf.
Útför hans fer fram frá Norð-
fjarðarkirkju í dag, 2. nóvember
2018, klukkan 14.
Elsku afi. Það er erfitt að horf-
ast í augu við þá staðreynd að við
munum ekki fá að njóta þess að
hafa þig hjá okkur lengur.
Að þurfa að kveðja er ólýsan-
lega sárt og erfitt að sætta sig
við.
Í dag erum við sorgmædd yfir
því að missa en um leið þakklát
fyrir að hafa átt.
Elsku afi, nú ertu farinn frá
okkur en ég verð að trúa því að
við munum hittast aftur. Það
verður tekið vel á móti þér hinu-
megin, þú ryður líka þá braut fyr-
ir okkur hin.
Hún er konan, sem kyrrlátust fer
og kemur þá minnst þig varir,
og les úr andvaka augum þér
hvert angur, sem til þín starir.
Hún kemur og hlustar, er harmasár
hjörtun í einveru kalla.
Hún leitar uppi hvert tregatár.
Hún telur blöðin, sem falla.
Og hún er þögul og ávallt ein
og á ekki samleið með neinum.
Því hún er sorgin, sem sefar hvert
mein,
og sífellt leitar að einum.
(Tómas Guðmundsson)
Nú vantar ekki bara einn, nú
vantar okkar besta mann.
Illa breytir fer því flatt,
fjandskap beitir þessi gæi,
þjóðtrú neitar, það er satt,
en leitun er að betri manni.
(Höf. ók.)
Á þessum tímamótum rifjast
upp óteljandi minningar sem
margar hverjar framkalla óhjá-
kvæmilega bros á varir. Þú varst
alveg einstakur, afi. Þú gast allt
og varst alltaf tilbúinn að rétta
hjálparhönd ef eitthvað kom upp
á og alltaf til í eitthvert bras. Þú
varst gæddur óteljandi kostum
og fyrirmynd í svo mörgu. Þú
varst réttsýnn með sterka rétt-
lætiskennd. Líf þitt var stórbrot-
ið á marga vegu, það vita þeir
sem urðu þeirrar gæfu aðnjót-
andi að hafa verið þér samferða í
lífinu. Lífshlaupið spannar merk-
ustu tíma í mannkynssögunni og
það hlýtur að hafa verið gaman
að fá að alast upp og lifa á þessum
stórmerkilegu tímum.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson)
Ekkert verður samt án þín,
missir okkar allra er mikill en
minningarnar ylja svo sannar-
lega. Við erum heppin að hafa
fengið að upplifa svo margar góð-
ar stundir með þér gegnum tíðina
og vegna þeirra lifir þú áfram
með okkur.
Takk fyrir allt, elsku afi. Guð
geymi þig.
Grétar Örn.
Jón Skúli
Ölversson
Elsku Hansína
okkar. Það er alltaf
sárt að kveðja þann
sem manni þykir
svo vænt um, en við trúum því að
þú sért komin á góðan stað í
Sumarlandinu þar sem þín bíða
Magnús Gunnar, maðurinn þinn,
og Halldór, sonur þinn.
Þótt þú hafir verið orðin 92 ára
leistu alls ekki út fyrir það, alltaf
Hansína
Magnúsdóttir
✝ Hansína Magn-úsdóttir fædd-
ist 10. júlí 1926.
Hún lést 27.
september 2018.
Útför Hansínu
fór fram 10. októ-
ber 2018.
svo ungleg, sæt og
fín.
Það var alltaf svo
gaman að koma til
þín í kaffi og þú bak-
aðir bestu vöfflur í
heimi.
Það er ekki hægt
að kveðja án þess að
minnast á vin þinn
Garðar til margra
ára, hvað hann var
þér góður og traust-
ur vinur og þökkum við honum
það.
Elsku Hansína, við kveðjum
þig með miklum söknuði. Guð
geymi þig. Þinn sonur og tengda-
dóttir,
Örn og Bergljót (Bessý).